Vikan


Vikan - 08.03.1979, Side 4

Vikan - 08.03.1979, Side 4
Dagur í lífi hermanns < Á melnum fyrírofan Kefíavík, þar sem heitir Miðnesheiði, er bandarísk herstöð. Um þá herstöð hefur verið sagt, að ekkert þyki bandarískum hermönnum verra en einmitt að vera sendir þangað. Ogmeðaná Vietnam-stríðinu stóð þótti hermönnum víst KefíavíkurfiugvöHur vera næst versti staður á jarðarkringiunni. En fyrir nú utan hvað bandarískir hermenn bera Vellinum iiia söguna, eru þeir margir ísiendingarnir sem hafa litia trú á því að þessir fáu dátar sem á Veiiinum eru myndukoma við miklum vörnum ef til átaka kæmi. Enn öðrum finnst öryggi sínu ógnað sé herstöðinni halimæft Aiit um það. Eftir mikla eftirgangssemi fékk ViKAN ieyfi bandarískra yfirvaida ti/þess að fylgjast með hversdags/egum degi í lífi óbreytts hermanns. Við ætluðum að fá að sjá hvað hann gerði jafnt í vinnu sem og frístundum, auk þess sem við hugðum okkur gott til g/óðarinnar ef við fengjum hann tii að úttala sig hreinskiinisiega um Keflavíkurflugvöll. Það var blaðafulltrúi hersins sem gerði okkur þetta kieift, og fyrir það erum við þakkiátir. En kálið er ekki sopið þó í ausuna sé komið. Ekki var hann stór — en bros- mildur Bob Dorey hét maðurinn sem beið okkar á skrifstofu blaðafulltrúans. Honum var ætlað að leiða okkur í allan sannleikann um daglegt líf hermanns á Keflavíkurflugvelli. Er við litum hann augum hvarflaði það ósjálfrátt að okkur hvort ekki væru sett nein skilyrði um hversu háir bandarískir hermenn þyrftu að vera til að teljast gjald- gengir. í eina tíð þurftu íslenskir lögreglu- þjónar að vera minnst 174 sm, en frá þvi skilyrði hefur nú verið fallið. Enda má gera ráð fyrir því að dvergar séu ekkert minna hættulegir á bak við byssur en risar. En semsagt, Bob Dorey, þessi nýi kunningi okkar var varla meira en rúmlega hálfur annar metri á hæð, en bros hans aftur á móti einn fjórði þeirrar lengdar. Blaðafulltrúinn tjáði okkur nú að maður þessi væri okkur til ráðstöfunar allan þann dag og mættum við fylgjast með vinnu hans, ræða við hann og taka eins margar myndir og okkur lysti. Þetta þóttu okkur góðar fréttir, því nú myndi okkur að öllum líkindum takast að gera nákvæmlega það sem við ætluðum okkur. Við vorum í þann mund að yfirgefa skrifstofu blaðafulltrúans með Bob á milli okkar þegar i veg fyrir okkur gekk kvenforkur mikill i fullum herklæðum og sagðist mundu fylgja okkur Bob þennan dag, til að firra okkur óþarfa vandræðum. Hvort sem það var nú satt eða ekki, þá tók þessi kona, sem kynnti sig sem Judy Jones Public Affaires, sér stöðu við hlið Bobs þaðan sem hún vék ekki allan daginn.. Hún fylgdist nákvæmlega með öllum samræðum okkar, auk þess sem hún hafði orð fyrir honum þegar henni þótti viðeigandi. Við birtum hér nokkrar myndir af Bob Dorey og nánasta umhverfi hans, auk viðtals sem við hann var tekið. Um viðtalið verður það eitt sagt, að það ber þess merki að augu Judy Jones hvíldu þungt á viðmælanda okkar allan tímann. Af svörum hans að dæma, hvarflaði það að okkur að maðurinn hefði verið sóttur sér- staklega til Bandaríkjanna til þess eins að ræða við blaðamenn VIKUNNAR. En það eru einungis getsakir. EJ 4 Vikan lO.tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.