Vikan


Vikan - 08.03.1979, Side 8

Vikan - 08.03.1979, Side 8
DAGUR í LÍFI . . Bob fór með okkur vftt og breitt um Völlinn eftir afl vinnu lauk, og hér erum vifl I iþröttahöllinni. sal,#sundlaug og ýmsu öðru. Kvikmynda- hús er hér, og svo er ég virkur í skát% hreyfingunni hér á Vellinum. — En hvað með klúbbana? Fer ekki mestur hluti frístunda hermanna i að hanga þar? — Nei, nei, það er af og frá. Það er fjöldi manna hérna sem aldrei fer þangað. Ég fer næstum aldrei, nema þá að eitthvað sér- stakt sé um að vera. Það er svo margt annað sem hægt er að gera. — Megið þið fara inrfog út af Vellinum að vild? — Já, já, það eru engar hömlur settar á okkur í þeim efnum. Það eina er að við verðum að vera komnir inn á svaéðið fyrir klukkan 23.00, nema við gefum einhverja ástæðu fyrir fjarveru okkar. Ef við dveljum hjá vinum okkar utan Vallarins, eða á hótelherbergjum, þá er allt í lagi. Við megum bara ekki vera í reiðileysi utan Vallarins eftir klukkan 11, það er allt og sumt. Nei, nei, við þurfum ekki að vera i einkennisbúningum þegar við bregðum okkur i bæinn. — Hvernig lítur almenningur i Bandarikjunum á þá menn sem ganga í herinn af frjálsum vilja? — Eins og ég sagði áðan þá þykir það sjálfsagður hlutur að njóta þeirrar þjálf- unar sem þar er veitt. Fólk tekur manni vel þegar maður kemur heim í frí, og ég held að það sé borin virðing fyrir þessu starfi. — En hér á íslandi? Hver finnst þér afstaða fólks til ykkar vera? — Þeir íslendingar sem maður hefur kynnst, er aðallega fólk sem vinnur hér á Vellinum. Aðrir vinir manns eru bandarískir. Ég hef aldrei orðið var við nein óeðlileg viðbrögð af hálfu íslendinga bara vegna þess að ég sé hermaður. Mótmælendur herstöðvarinnar? Ég hef aldrei séð þá, enda er það ekki mitt hlut- verk hér að hugsa um málið þannig. Ég get ekki svarað fyrir aðra hermenn né hvort herstöðin sé mikilvæg eða ekki, ég heyri hermenn aldrei tala um slíkt. Starf okkar er að vera hér og starfa, og gera eins og okkur er sagt. Þrótt fyrir að Bob fari næstum aldrei i klúbbana, tókum við ekki annafl f mól en afl hann sýndi okkur afl minnsta kosti einn. Hann baufl okkur i Top of the Rock þar sem við fengum bjór ó meðan hann drakk Seven Up.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.