Vikan - 08.03.1979, Síða 31
STATUS
QUO:
— Það er gífurlegur munur á að spila
lag til upptöku, eða spila það á sviði,
segja þeir. — Og við æfum gífurlega
fyrir hverja hljómleikaferð, því að þar
skiptir sviðsframkoman svo miklu máli,
og við verðum alltaf að finna upp á ein-
hverju nýju. Hvað nýju plötuna snertir
vonum við auðvitað að hún verði okkar
besta. Það væri lítið gaman að vinna að
plötu, ef maður ynni ekki með því
hugarfari að gera hana ennþá betri en
þá síðustu.
Hljómsveitina skipa auk Francis
Rossi (f. 29. mai 1949), þeir Alan
Lancaster (f. 7. febrúar 1949), sem býr
um þessar mundir í Ástralíu, Rick Parfitt
(f. 12. okt. 1948) og John Coughlan (f.
16. sept. 1946). Um hljómsveitina var
rækilega fjallað í poppfræðiriti í 21. tbl.
1977.
NÝJA PLATAN
OKKAR BESTA!
— Við spilum ekki vegna peninga,
heldur vonum við bara að allir okkar
tónleikar séu góðir, segir Francis
Michael Rossi, einn af Status Quo
mönnum. — Það getur haft afdrifaríkar
afleiðingar í för með sér að spila illa,
jafnvel þó það sé bara í eitt skipti. Það
gerir okkur taugaóstyrka, og á næstu
tónleikum hugsum við ósjálfrátt: Við
spiluðum illa. En sem betur fer hefur
það ekki komið fyrir enn, að nokkrir
tónleikar okkar hafi mistekist.
Við höfum nú spilað saman í 12 ár, og
það er langur tími. Auðvitað hefur
okkur stundum dottið í hug að breyta
til, og við höfum reynt það. En einhvern
veginn gengur það ekki, við spilum best,
þegar við fjórir erum saman.
Þeir félagar vinna nú að upptöku á
nýrri LP-plötu, sem er væntanleg á
markaðinn í mars.