Vikan


Vikan - 29.03.1979, Blaðsíða 9

Vikan - 29.03.1979, Blaðsíða 9
„Þegar ég var titíl var einkum tvennt, sem óg dáðist mjög afl. Þáð voru Baldur og Konni og Guttavisurnar. Þegar ég fyrir nokkmm émm hitti hann þennan á Mallorka minntí hann mig svo á Konna að ég stóðst ekki freistínguna og keyptí hann. Hann heitir Gutti í höfuflifl á visunum og er augasteinn allra barna, sem koma tíl mín í heimsókn." Að öllum öðrum ólöstuðum munu langdvalarsjúklingar geta talið sig bera höfuð og herðar yfir aðra hvað nægjusemi varðar, því fæstir gætu líklega látið sér nægja þær tólf óúsund krónur, sem þjóðfélagið álítur óá þurfa á mánuði. Sú upphæð á að nægja þeim til alls kostnaðar í lífinu nema fæðis og húsnæðis. Okkur lék forvitni á að fræðast um hvernig slíkt kraftaverk er samrýmanlegt verðlaginu hér á landi og áttum dag- stund með Brynju Arthúrsdóttur, sem átt hefur heimili á Reykjalundi í Mosfellssveit frá sautján ára aldri. Texti: baj Ljósmyndir: Jim Smart Snjórinn er þoka blinda mannsins „Auðvitað eru tólf þúsund krónur ekkert til að hafa ofan af fyrir sér með. Tökum sem dæmi unglinga, sem eru að stækka og þroskast. Þá langar ef til vill að kaupa sér plötur, fara í leikhús eða eitthvað slíkt. Það er alls ekki hægt fyrir þennan pening. Föt til dæmis, og gjafir handa ættingjum á afmælum og jólum, eru að sjálfsögðu varla til umræðu. Það kemur líka oft svo mikill aukakostnaður, þegar um öryrkja er að ræða svo sem leigubílar og annað, og því í rauninni miklu dýrara að lifa. Örorkubæt- urnar ganga sjálfkrafa til þess hælis eða sjúkrahúss, sem dvalið er á, og þessar tólf þúsund krónur hrökkva skammt. Leikhús- ferðir eru mikil upplyfting, og mér hefur alltaf verið óskiljanlegt, að námsmenn, sem hafa alla skanka heila, skuli þurfa afsláttar- miða að leikhúsum og kvikmyndum, en öryrkjar og langdvalarsjúklingar taldir fullgildir borgunarmenn síns miða. En þetta á sína skýringu, því hver er sjálfum sér næstur, og hvenær heldur þú, að öryrkjar verði orðnir voldugur og sterkur þrýstihópur?” Enginn veit sína ævina... „Reykjalundur er í rauninni allt mitt líf Hér hef ég verið að mestu óslitið frá sautján ára aldri. Hefði mér verið sagt það áður en ég veiktist, að svona myndi lif mitt verða, hefði ég bara hlegið og ekkert tekið mark á því. Það halda allir, að slíkt geti aldrei hent nema einhvern annan. Þetta byrjaði liklega, þegar ég var fjórtán ára í síld að sumarlagi á Raufarhöfn. Þá fór ég að taka eftir því að smágerð slitmyndun kom í ljós í hvítunni í augunum og eins á líkamanum. Ég var siðan lögð inn á sjúkra- hús strax eftir gagnfræðapróf. Sjúkdómur- inn reyndist vera sjaldgæfur bandvefssjúk- dómur, sem hefur meðal annars lagst á augun og valdið mér margs konar annarri örorku. Núna er ég orðin nokkuð fötluð líkamlega, búin að missa heyrn á öðru eyra að mestu leyti og orðin blind. Ég hef reynt allt til að ná heilsu á ný frá því að ég var sextán ára gömul. Sumt, sem ég gerði hér áður í þeim tilgangi, er býsna broslegt. Það gekk svo langt, að ég svaf með sveskjur á augunum, laxerolíu og tók inn bómolíu. Þvi síðasttalda hætti ég fljótlega, þvi bómolía er hryllilega bragðvond. Margir langdvalarsjúklingar einangrast, en ég hef verið mjög heppin. Vinir mínir hafa yfirleitt ekki snúið við mér baki, heldur margir sýnt fádæma trygglyndi, og að auki á ég góða fjölskyldu. 13. tbl. Vikan 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.