Vikan


Vikan - 29.03.1979, Side 11

Vikan - 29.03.1979, Side 11
SNJÓRINN ER ÞOKA BLINDA MANNSINS „Skyldu ferflaskrifstofumar taka vifl jafnfötluðu fólki og ég ar afla þarf óg ef til vill að kaupa tvo farméifla ef ferflin til Grikklands yrfli að veru- leika?" Til þess afl fá svar vifl þessu fór Vikan mefl Brynju inn ó ferðaskrifstofu. Brynja sagðist hafa farifl tvisvar mefl Útsýn og fíkafl vei og þvf var gengifl inn á afgreiðslu Útsýnar. Þar haffli Brynja tal af Erlu Nönnu Jóhannsdóttur, sem vildi aét fyrir hana gera og sagðist skyidu athuga mólið og láta hana vita niðurstöfluna sem allra fyrst. Fáeinum dögum síðar hringdi svo Ingótfur Guðbrartdsson í Brynju og tjáfli henni að þvi miður gæti ferðaskrifstofan ekki tekifl afl sár svo mikið fatiað fólk án þess afl það heffli fylgdarmann þvf slíkt vsari bsafli fararstjóra og ferðafólki of mikifl álag. En svo draumurinn msatti rsetast baufl hann Brynju f Grikklandsferð með Útsýn, á kostnað Útsýnar, og þarf Brynja þvi afleins afl finna sár heppilegan og fómfúsan ferðafálaga. En þafl er varla hsegt að krefjast þess afl Ingólfur i Útsýn bjóði öllum öryrkjum i ókeypis utanferð. Vseri fráleitt afl skattborgarar tsekju sig saman i andlitinu og byflu þeim, sem ekki geta ferðast með ferflaskrifstofunum á eigin spýtur? Það þsetti flestum heldur dýrt að borga tvöfalt verfl fyrir sólariandaferðina. En mefl skipulögðum ferflum fyrir fjölfatlafla mefl sárhsefða farar- stjóra og jafnvel afl Tryggingastofnunin tseki þátt i kostnafli vseri stigifl skref i framfaraátt. Þetta er hlutur, sem ég held, að við gætum lagt meiri rækt við hér heima, því ég er sannfærð um, að hægt væri að nýta starfsgetu öryrkja meira en gert er hér á íslandi. Þrátt fyrir að nokkuð hafi miðað í þeim efnum á undanförnum árum, og þá má sérstaklega minnast á þá, sem eiga við andlega fötlun að stríða, i þeirra málefnum hefur nánast orðið bylting, má gera mun betur. Öryrkjar og langlegusjúklingar þurfa ekki að vera eins miklir ómagar á þjóð- félaginu og nú er, því það er einmitt vilji flestra öryrkja að gera gagn. Aðgerðaleysi það, sem þeir eru dæmdir til af þjóðfélag- inu, er engum hollt og mikil þörf á fleiri vernduðum vinnustöðum og íbúðum fyrir fatlaða, líkt og nú er í Hátúni, sem er stórt spor í rétta átt. Það má ef til vill segja, að þjóðfélagið dæmi öryrkja, eins og vanheilsa sé saknæm, því af ýmsum ástæðum lenda til dæmis langdvalarsjúklingar í mikilli og langri einangrun.” Snjórinn er þoka blinda mannsins „Mér líkaði mjög vel í skólanum. Þar voru allir að berjast að sama marki og hjálpuðust að eftir megni. Mér fannst þetta hryllilega erfitt í fyrstu og gat ekki ímyndað mér, að ég gæti nokkurn tímann lært notkun hvíta stafsins, sem er undirstaða alls hjá hinum blinda. Skólinn var á stóru herrasetri, og fyrst kom maður inn í stórt anddyri. í því miðju var stórt borð, og það borð var landamerki hússins. Allir blindir verða að setja sér ákveðin landamerki og miða alla hluti út frá því. Hér í þessu herbergi var það ryamottan, það síðasta sem ég gerði, áður en ég varð blind. Við þetta stóra borð í skólanum voru mottur til tveggja hliða, og þá var hægt að átta sig, hvernig allt sneri. Þar var líka stór matsalur, og fólki var fljótlega kennt að bjarga sér sjálft við matborðið, en það er alger list að brytja matinn niður eftir að sjónin er horfin. Fyrst af öllu var mér kennd notkun hvíta stafsins. Hann er hið alþjóðlega merki um blindu, en hér á íslandi vita alltof fáir, hvað hann táknar. í fyrstu var ég mjög óörugg og næstum feimin við hvíta stafinn, en það vandist eins og allt annað. Það var fyrst eftir að ég var orðin mjög örugg með hann, sem kennarinn fór með mig út. Hún byrjaði á því að fara með mig í barnaskóla og ganga þar eftir göngunum. Skólinn var byggður í ferhyrning, og það gekk bara vel. Eftir þetta fór hún svo með mig út á götu. Fyrst var ég mjög óörugg og áttavillt, næstum dottin út af gangstéttinni og fleira í þeim dúr. Hún gekk alltaf í humátt á eftir mér, tilbúin að grípa mig, ef ég gerði ein- hverja vitleysu. í lokin var svo komið, að ég var orðin næstum sjálfbjarga í Torquay og gat farið ein nokkurn spöl og einnig yfir götur. Hér á landi vantar okkur slíkan umferliskennara, sem kennir notkun hvíta stafsins og hvernig blindur maður getur bjargað sér i umferðinni. Það vantar hér skóla og námskeið til þess að koma blindum sem fyrst út í lífið á nýjan leik. Það þarf líka að kynna hvíta stafinn fyrir íslendingum, svo þeir hætti að ganga á þá, sem blindir eru, og jafnvel ýta þeim til hliðar, því fæstir gera sér grein fyrir, hvað hann táknar. Hér á íslandi er næstum ógjörningur að bjarga sér, og mættum við taka Englendinga okkur til fyrirmyndar í því efni. Því ekki að ráða hingað enskan umferliskennara og halda námskeið? Hér á landi gerir snjórinn talsvert strik í reikninginn. Það er ekkert hugsað um blinda, þegar snjómokstur er skipulagður, en snjórinn er einmitt þoka blinda mannsins. Venjuleg þoka hefur að sjálf- sögu engin áhrif á þann, sem ekki sér, en snjórinn er hans þoka, því þá hverfa öll landamerki hvíta stafsins.” I draumi er ég alsjáandi „Eini hluturinn, sem ég hef ekki vanist, er að vakna i myrkrinu á morgnana, því i draumi hef ég fulla sjón. Því hlakka ég oft til næturinnar, þá er ég alveg heilbrigð og allir hlutir svo skærir og fallegir. Hlutir, sem ég hef aldrei séð í raun og veru, birtast mér í draumi, og því finnst mér myrkrið á morgnana hræðilega svart. En það birtir til 13. tbl. Vikan II

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.