Vikan


Vikan - 29.03.1979, Síða 17

Vikan - 29.03.1979, Síða 17
Á KROSSGÖTUM En þó vissi hún að enginn dansari varð góður nema hann gæti leikið líka — það breyttist ekki einu sinni með öllum þessum nýju ballettum. Hún hafði verið klöppuð upp nítján sinnum þegar hún dansaði í Önnu Kareninu en samt þurft eftir það að sanna ágæti sitt í Giselle og Svanavatninu. Og hún hafði unnið stór- sigur. Þú getur verið hæstánægð, hugsaði hún með.sér. Það er rétt hjá Michael og Adelaide: þú ert orðin of gömul til að dansa Giselle, þú værir hlægileg sem saklaus sveitastúlka. Og þú ert líka of gömul fyrir Svanavatnið. Hún hafði oft séð eldri ballerínur gera sig að hálf- gerðum kjánum með því að reyna að halda of lengi í hlutverk sem þær voru löngu vaxnar upp úr. Og oft hafði henni gramist að enginn skyldi segja við þær: Hættu, sjálfrar þín vegna! Eyðileggðu ekki minninguna! Tárin blinduðu augu hennar. Það var eins og frægð hennar og i rauninni líf hennar rynni niður vangana með tárun- um. Hún reyndi að þerra þau burt svo lítið bæri á og lét sem hún væri að laga augnskuggana. Hún leit á Freddie til að athuga hvort hann hefði tekið eftir þessu. Andlit hans var skelfingin upp- máluð. Hún klappaði á hönd hans var- færnislega og þrýsti hana svo. Hún brosti og neyddi hann til að brosa líka. Svo þvingaði hún sjálfa sig til að einbeita sér að því sem var að gerast á sviðinu. Þótt Sevilla væri frábær ballerína varð hún samt að leggja hart að sér til að geta fylgt Yuri eftir því hann var ekki aðeins betri dansari heldur miklu yngri. Það var Yuri sem var stjarna kvöldsins en Emma vissi að þegar þau væru klöppuð upp myndi Sevilla láta líta svo út að það væri því að þakka að hún hefði leyft honum að njóta sín á hennar kostnað. Þannig yrði hún ekki siður hyllt en hann. Sevilla kunni ýmis brögð ekki siðuren Emma. Það voru einmitt þessi litlu brögð sem hún þurfti að kenna Emilíu. Þegar rétti tíminn kæmi, hún var enn svo hrein og ósnortin. Þetta litla sóló sem hún var að dansa væri undursamlegt ef hún teygði aðeins betur úr líkamanum. Og ef hún gæti haldið stöðunni aðeins lengur — en það gerði hún einmitt! Þetta hlaut Deedee að hafa kennt henni. Gott, þá var ekki eftir neinu að bíða, hún mátti heldur ekki vera að því. Tíminn var þeirra versti óvinur. Emilía hafði mikla hæfileika. Það varð að ýta undir hana og Emma varð að kenna henni allt sem hún sjálfkunni ogþaðstrax. Deedee hallaði sér upp að veggnum vinstra megin i áhorfendasalnum og fylgdist stolt með Emilíu enda þótt það vekti hjá henni minninguna um hana sjálfa og Emmu. Það var Emmu að þakka að hún gat gengið inn á hvaða sýningu sem hún vildi án þess að þurfa nokkuð að borga. En það var líka Emmu að þakka að hún stóð nú hér aftast i salnum í staðinn fyrir að vera uppi á sviðinu — nei, hún var of gömul til þess, hún myndi frekar sitja niðri í salnum eins og Emma án þess að eiga nokkra dóttur til að horfa á. Og dóttir hennar dansaði vel, mjög vel. Skyldi hún dansa eins vel og hún sjálf hafði dansað á hennar aldri. Það gat verið varhugavert að trúa minningunum. Auk þess var út- lit þeirra, líkamar og dansstíll svo gjör- ólíkur. Emilía dansaði sennilega betur en hún hafði gert. En hún hafði reyndar aldrei vitað hversu vel hún dansaði. Oh, Adelaide, Michael og allir höfðu sagt að hún væri stórkostleg, hún yrði áreiðan- lega frábær ballerina. En hún hafði aldrei fengið neina raunverulega stað- festingu á þessu svo hún gat ekki vitað hversu langt hún hefði getað náð. Hún vissi það ekki enn. Allt vegna Emmu. Þegar hún kom að sviðsbaki eftir sýn- inguna var Emma mætt á undan henni. Sevilla og Yuri voru enn að hneigja sig. „Fjórtán! Vá! Ljósameistarinn taldi hvað þau voru klöppuð oft upp. Á litlum sjónvarpsskermi fyrir framan sig sá hann Sevillu og Yuri hneigja sig fyrir framan logagyllt sviðs- tjöldin. Hún tók blóm úr blómvendi sem hún hélt á og rétti Yuri. Áhorfendur hylltu hana ákaft fyrir lítillæti hennar; Sevilla brosti eins og drottning; Yuri kraup á kné fyrir framan hana. Meira lófatak og síðan hlupu þau léttilega af sviðinu. Þegar þau voru komin á bak við tjöldin biðu þau án þess að brosa, sveitt og andstutt. Sevilla kvartaði yfir óþæg- indum í hægra fæti og Yuri hélt um aumt bakið. Lófatakið varð enn ákafara. Þau settu aftur upp sín fegurstu bros og flýttu sér fram fyrir tjöldin. Deedee kom auga á Emmu sem stóð við skrifborð Ijósameistarans yst í gang- inum sem lá að sviðinu. Hún stóð þar alein og brosti varfærnislega. Deedee fann sárt til með henni. Hún lagði af stað í átt til hennar en í sama bili þustu Adelaide og Michael fram hjá henni á leið til stjarnanna á sviðinu. Hún óskaði þess heitt og innilega að þau næmu staðar og segðu eitthvað við Emmu. Adelaide flýtti sér fram hjá til að kyssa Yuri og Sevillu sem nú stóðu aftur að tjaldabaki en Michael, guði sé lof, nam staðar og kyssti Emmu blíðlega á kinn- ina. En svo varð hann aftur að fram- kvæmdastjóra ballettsins og flýtti sér að sviðinu. Deedee gekk til Emmu og lagði hand- legginn utan um hana. „Mér fannst bíó- myndin skemmtilegri.” Emma hló. „Þau voru hreint ótrúleg.” „Stórkostleg. Heyrðu, hvar skiptir Emilia um föt?” „Bíddu meðan ég óska þeim til ham- ingju, svo skal ég sýna þér það. Þú mátt aldeilis vera stolt.” „0, þú veist hvernig mæður eru,” sagði Deedee áður en hún vissi af. Ertu aó byggjq, arftuaóbœla Gólfleppi Gólfdúkar Mólningarvörur Veggfóöur RÁÐ nr. 1: Komdu þá við í Litaveri.Það hefur ávallt borgað sig. RÁÐ nr. 2: Hringdu í Litaver og fáðu sent í póstkröfu. Hefurðu athugað verðið? LITAVER Grensásvegi 18 Hreyfilshúsinu Sími 82444 13. tbl. Vlkan 17

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.