Vikan - 29.03.1979, Side 24
13. Portúgölsk rauðvín
Víkan prófar léttu vínin:
Vín er þorskur og loðna Portúgala,
mikilvægasta gjaldeyrisafurð þeirra.
Mestan gjaldeyri fá þeir fyrir rósavín sín
og púrtvín, en hvítvín og rauðvín flytja
þeir einnig út i miklum mæli.
Fyrr í þessum greinaflokki var fjallað
um þau sjö portúgölsku hvitvin, sem fást
í Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. í
þetta sinn verður fjallað um rauðvínin
sjö frá Portúgal.
Lesendur muna kannski, að hvítvínin
fengu hraksmánarlega útreið í
gæðaprófun Vikunnar. Þau reyndust
jafnveist hvítvína Ríkisins, að meðaltali
með falleinkunnina fjóra. Aðeins eitt
þeirra komst upp í fimm.
Til fróðleiks má rifja upp, að
einkunnir frá 0 og upp í 3 þýða, að vínið
sé ódrykkjarhæft, vond vín fá 4, léleg
vin 5, sæmileg 6, góð 7, mjög góð 8,
frábær 9 og loks fá 10 vín, sem eru
einstök í sinni röð.
Fimm í einkunn að
meðaltali
Rauðvínin fóru betur út úr gæðapróf-
un Vikunnar, en samt ekki nógu vel.
Þau fengu að meðaltali fimm í einkunn
og tvö þeirra komust upp í sex, sem er
tæpast nógu hátt til útflutnings. Það
tekur þvi varla að flytja nema góð vín
milli landa.
Samt verður að segja, að góð kaup eru
I öðru vínanna, sem fengu sex í einkunn,
og mjög góð i hinu. Það stafar af þvi, að
verð portúgölsku vinanna er með því
lægsta í Ríkinu, og til sliks þarf að taka
mikið tillit.
Hinar lágu einkunnir portúgalskra
vína gefa visbendingu um, að eitthvað sé í
verulegu ólagi í vínviðskiptum Portúgals
og lslands. Við þurfum ekki á neinu
hinna sjö hvítvína að halda og tæpast
nokkru hinna sjö rauðvína. Ekkert
þeirra er saltfisks virði.
Hvítvínin voru öll samsull jrekktra
fyrirtækja, án staðfæringar- og gæða-
stimpils portúgalska ríkisins. Ástandið er
betra á rauðvínunum, því að þrjú af sjö
hafa stimpilinn, öll frá héraðinu Dao í
Norður-Portúgal.
Sandur og klettar til
skiptis
Næst á eftir púrtvínsdalnum Duoroer
Dao markverðasta vínhérað Portúgals,
land graníthæða, þar sem skiptast á
sandur og klettar. Vinræktin er ekki eins
áberandi í landslaginu og i sumum
frjósamari hlutum Norður-Portúgals,
þar sem heilu dalimir eru þaktir vínviði.
Slíkt hrjóstur sem I Dao hentar
ræktun gæðavína. Það er segin saga um
Og
vín
allan heim, að mörg bestu vinin fást af
stöðum, þar sem ekki þrífst önnur
ræktun. Flögubergið í Moseidal, mölin í
Graves, klettarnir í Duoro og hnullung-
amir í Chateauneuf-de-Pape em önnur
dæmi um það.
Portúgölum hefur enn ekki tekist að
ná hinu besta úr Dao. Helst eru það svo-
nefnd „Reserva” vín, fimmtán ára göm-
ul, sem minna á góð Bordeaux-vín og
eru eftirsótt út um lönd.
Venjuleg Dao-rauðvín eru yfirleitt
seld fjögurra ára gömul, hreinleg og vel
gerð vín, nokkuð hörð og skörp og án
alls mildandi sætleika i bragði. Þau eru
úr margvíslegum tegundum lítt kunnra
vínberja.
Orðin „hörð” og „skörp” tákna hér
ekki hið sama. Hart er andstæðan við
mjúkt, skarpt er andstæðan við flatt.
Mjög hart vín má kalla herpt, en mjög
skarpt vin má kalla vinsúrt. Hið fyrra er
mælikvarði á viðarefnin í víninu, en hið
síðara á vínsýruna.
Vínblanda skaust framúr
Kaldhæðni örlaganna réð því, að
ekkert hinna þriggja Dao-rauðvina í
Ríkinu varð efst í gæðaprófun Vikunnar
á portúgölskum rauðvínum. Það var
hversdagsleg vínblanda fyrirtækis, án
staðfæringar og gæðastimpils, sem náði
fremsta sæti.
ALIANCA, án árgangs, frá
samnefndu fyrirtæki, borðvín, merkt
„velho”, sem þýðir gamalt, bar einkenni
Dao-vína. Það var skarpt og hart vín
með lítilli ilman.
Alianca fékk sex í einkunn. Það er
dýrast hinn portúgölsku rauðvína,
kostar 1.850 krónur. 1 samanburði við
önnur rauðvín Ríkisins er þetta lágt
verð, svo að líta má þannig á, að góð
kaup séu í því.
GRANADO, árgangur 1974, frá
Vinicola, lenti í öðru sæti, einnig með
sex í einkunn. Þetta vin er „Dao Regiao
Demarcada” með tilheyrandi stimpli og
númeri frá portúgalska ríkinu.
Granado var ekki hart og skarpt eins
og flest hinna. Það var mjúkt og þægi-
legt á bragðið og fremur hlutlaust. Dauf
ilman þess minnti örlítið á Bordeaux.
Þar sem Granado kostar aðeins 1.700
Mér liður djöfullega. Það er eins og verið sé að stinga mig með nálum i bakið
allan daginn.
Mamma! Mér tókst loksins að fá Balla til að stinga upp garðinn.
krónur, verða að teljast í því mjög góð
kaup.
Léleg rauðvín má
kæla
DAO, án árgangs, frá Alianca, varð
þriðja í röðinni í gæðaprófun Vikunnar
með fimm í einkunn. Það er „Dao
Regiao Demarcada”, kostar 1.800
krónur, hart vín og skarpt, en að öðru
leyti hlutlaust.
QUINTA DO MORANGAL, án
árgangs, frá Nacionais, var einnig hart
og skarpt. örlítið vottaði fyrir hreinsi-
lagarlykt, sem hvarf við kælingu.
Einkunnin var fimm og verðið 1.700
krónur.
CAMARATE CLARETE, árgangur
1969?, frá Fonseca fékk líka fimm í
einkunn og kostar 1.700 krónur. Þetta
var greinilega gamalt vín — vottaði fyrir
brúnu í kantinn, þegar glasinu var
hallað. En það hafði ekki mildast með
aldrinum, var enn hart og skarpt.
SOLAR, án árgangs, frá samnefndu
fyrirtæki, hafði, eins og Morangal,
daufa ólykt, sem minnti á hrein-
gerningarlög. Þessi ólykt hvarf við
kælingu, svo að best er að drekka vínið
beint úr ísskáp. Bragðið var hart og
skarpt. Magnið var 70 sentilítrar í stað
75 sentilítra i hinum flöskunum. Ein-
kunnin var fjórir og verðið 1.700
krónur.
. . . en ónýtum verður ekki
bjargað
CABIDO, án árgangs, frá Real, rak
lestina með þrjá í einkunn, þótt vínið
hefði „Dao Regiao Demarcada” stimpil
portúgalska ríkisins. Það var korklykt af
því, og bragðið sýndi, að um skemmda
vöru var að ræða.
Þetta vín þoldi ekki að standa,
sennilega orðið of gamalt. Það lagaðist
ekki við kælingu. Einkunnin var þrír og
verðið 1.700 krónur.
Þessi yfirleitt hörðu og skörpu vin frá
Portúgal eru tæpast líkleg til mikilla
vinsælda hér á landi, enda má vafalaust
fá betri Dao-vín á sama verði frá þessu
fræga vínræktarlandi.
25 er of mikið
Ofan á sjö hvítvín og sjö rauðvín
býður Ríkið upp á ellefu rósavín frá
Portúgal. Samtals eru þetta 25 létt vin,
sem er óhóflega mikið í samanburði við
jafngóð og betri vinlönd.
Að minnsta kosti má segja það um
rauðvínin og hvítvínin, að þau stuðla
ekki að auknu jafnvægi í viðskiptum
íslands og Portúgals. Þau eru lítið keypt,
skemmast í geymslu á löngum tima og
koma óorði á portúgölsk vín.
Um rósavínin veit ég minna. En rósa-
24 Vikan 13. tbl.