Vikan


Vikan - 16.08.1979, Page 18

Vikan - 16.08.1979, Page 18
Nýfæddur lítill snáði liggur 6 laufblöðum nokkr- um minútum eftir fæðingu sina. Þessi var heppn- ari en margir frændur hans — hann var sterk- byggður og lifði. flæddi yfir þá og truflaði fyrri lifsvenjur þeirra. Það átti að „frelsa” þessa villimenn. Líf þeirra var mjög einfalt — eins einfalt og mögulegt er. Þeir rækta nokkrar grænmet- istegundir og fara á veiðar þegar hungrið sverfur að. Öðrum tíma sínum verja þeir í það að vaða um í svima af völdum eitur- efna sem þeir nota óspart og trúa að komi þeim í samband við Guð sinn. Eitur þetta, sem þeir nota í ótakmörkuðu magni, vinna þeir úr tré sem kallast Pararo en gengur einnig undir nöfnunum Yopo og Nojo. í náttúrufræðibókum mun það aftur á móti heita Anadanthera Peregrina. í ágúst og september vaxa baunir á tré þessu sem indí- ánarnir týna af, þurrka, hengja upp osfrv. Baunirnar hafa mikið gildi innan kyn- stofnsins og eru notaðar sem gjaldmiðill líkt og peningar hjá okkur hinum betur siðuðu. Eiturinntakan er mikil athöfn hjá Yano- mamo-indíánunum. Röri er stungið upp í nasir þess sem eitrið ætlar að innbyrða og annar indiáni spýtir þvi síðan af miklum krafti upp í vit hans. Áhrifin eru skjótvirk og mikil: Viðkomandi breytist gjörsamlega. Hann vælir og grettir sig, augun fyllast tárum og hringsnúast í augnatóftunum. Er mesti skjálftinn er farinn úr manninum er þetta endurtekið einu sinni og þá er indíán- inn tilbúinn til að svífa af stað á vit and- anna og Guðs síns þar sem hann dvelur þar til áhrifin þverra. Yanomamo-konan er algerlega undir- gefin manni sínum. Hún byrjar að vinna fyrir sólarupprás, týnir ávexti, sér um mats- eld og vefur teppi og klæði úr baðmull sem vex villt — er sívinnandi. Og hún gerir fleira, hún fæðir börn. Þegar Yanomamo-kona verður ólétt er henni stranglega bannað að hafa samfarir við eiginmann sinn. Hún verður einnig að tína af sér allt tildur, hringana úr nefinu og eyrunum og hætta að mála sig. Hún verður að láta sér nægja að vappa um nakin með 18 Vikan 33. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.