Vikan - 11.10.1979, Qupperneq 51
voldugir óvinir að safna liði og taka samari1,
höndum. Hvað eftir annað varð keisarinn
að láta undan og skipa Rasputin að yfirgefa
borgina. En eitt sinn datt prinsinn aftur og
varð fyrir méiðslum. Dögum saman veltist
hann um í rúminu af sársauka, þangað til
svo dró af honum að honum var vart
hugað líf. Keisarafrúin sendi þegarskeyti til
Rasputins en hann svaraði henni með öðru
svohljóðandi: „Veikindin eru ekki eins
alvarleg og þau lita út fyrir.” Frá því andar-
taki sem keisarafrúin tók við þessu skeyti
breyttist sjúkdómur prinsins til batnaðar.
Fyrri heimsstyrjöldin hafði i för með sér
byltingu og hernaðarlegar ófarir í
Rússlandi. Eins og öllum er kunnugt er
talið að morðið á Franz Ferdinand, erkiher-
toga í Sarjevo, hafi leitt til þess að þessi
mikla styrjöld braust út. En það er ekki lítið
undarlegt að á sama andartaki og erki-
hertoginn var skotinn réðist brjáluð kona á
Rasputin og stakk hann með rýting.
Rasputin hataði styrjaldir og kynni að hafa
getað talið keisarann ofan af því að leiða
Rússland út í þessi stórhættulegu átök. En
hann var einmitt rúmfastur vegna þessarar
morðtilraunar, þegar ákvörðunin var tekin.
Endalok Rasputins voru ákveðin af
samsærismönnum síðustu daga ársins
1916. Felix Yussopov prins sem Rasputin
bar fullt traust til lokkaði hann í kjallara
nokkurn. Eftir að Yussopov hafði gefið
honum eitraðar kökur, skaut hann
Rasputin í bakið. Síðan var hann barinn
með járnstöng. En svo var lífskraftur hans
undramikill, að hann var enn á lífi þegar
samsærismennirnir fleygðu honum niður í
vökina á Nevafljótinu. Meðal skjala hans
fannst undarleg yfirlýsing sem var stíluð til
keisarans.
Þar lýsti Rasputin því yfir, að hann hefði
sterklega á tilfinningunni að hann myndi
hljóta ofbeldisdauða fyrir I. janúar 1917.
Og yrði hann drepinn af bændunt, myndi
keisarinn enn ríkja mörg komandi ár. En ef
það yrðu samsærismenn aðalsins sem að
því verki stæðu — eins og raunin sýndi —
„Þá mun ekkert barna yðar eða skyld-
menna lifa lengur en tvö ár.” Og hann
reyndist hafa rétt fyrir sér. Þetta rættist.
Keisarinn og fjölskylda hans voru öll myrt í
júlímánuði 1918, og sýndi þetta enn einn
furðulegan hæfileika þessa undarlega
manns. Hæfileikann til þess að sjá fram í
tímann.
Endir
41. tbl. Vikan S1