Vikan - 01.11.1979, Blaðsíða 31
BHHHHBBHHBBHHBflflEHHflBl
Vestmanneyingar
Örn Óskarsson.
Meistarar í fyrsta sinn
■HBflflflHHHflflflHBHflflHflflMBHHBBHflflflflBHHBHflflHB
Eyjamenn tóku fyrst þátt í tslandsrr.ótinu árið
1912 og þrátt fyrir hartnær 70 ára baráttu á
knattspyrnuvellinum var það ekki fyrr en í ár að
þeim tókst að vinna hinn eftirsótta íslandsmeist-
aratitil eftir æsispennandi keppni. Það er í
rauninni ekki fyrr en 1968, að Eyjamenn láta
eitthvað verulega að sér kveða á knattspyrnu-
sviðinu hérlendis. Árið 1967 báru þeir sigur úr
býtum i 2. deildinni og unnu sér réttinn til að leika
á meðal þeirra bestu. ÍBV hafði um árabil verið á
meðal fremstu liða 2. deildarinnar en ávallt skort
herslumuninn til að komast upp. Það hafðist loks,
eins og fyrr sagði, 1967 og síðan hafa Eyjamenn
veriðí 1. deildinni aðárinu 1976 undanskildu.
Á sínu fyrsta ári í 1. deildinni höfnuðu Eyja-
menn í 5. sæti en þá voru aðeins 6 lið i deildinni.
Þeim hafði tekist það, sem mestu máli skipti. að
halda sér í deildinni. Sama ár sigruðu Eyjamenn i
bikarkeppninni í fyrsta sinn eftir hörkuleik við B-
lið KR. Á þessum tíma máttu félög senda bæði A
og B-lið ef þau vildu og á leið sinni í úrslitin vann
B lið KR-inganna meira að segja A-lið félagsins.
Eftir mikla baráttu og hörkuleik stóðu Eyjamenn
uppi sem sigurvegarar 2-1 og tryggðu sér þar með
réttinn til að leika i Evrópukeppni bikarhafa árið
eftir.
Árið 1969 höfnuðu Eyjamenn i 4. sæti af 7
liðum i I. deildinni og hlutu 12 stig úr jafn-
mörgunt leikjum. I Evrópukeppninni lék ÍBV
gegn búlgörsku bikarmeisturunum Levski
Spartak Í snarvitlausu veðri á Laugardals-
vellinum þar sem markataflan og vallarklukkan
fuku um koll mátti ÍBV biða 0-4 ósigur. Sama
markataia varð uppi á teningnum í siðari leik
liðanna, sem fram fór í Sofiu í Búlgaríu.
Þórólfur Beck tók við liðinu 1970 og bundu
Eyjamenn miklar vonir við störf hans. Margt fer
þó öðruvísi en ætlað er og Viktor Helgason tók
við liðinu síðari hluta keppnistímabilsins. Að
þessu sinni hafnaði ÍBV í næstneðsta sæti deildar-
innar.
Sumarið 1971 er besta sumar ÍBV að nýliðnu
sumri frátöldu. Viktor náði upp mjög góðri
stemmningu liðinu og Eyjamenn stefndu í sinn
fyrsta meistaratitil. Þeir höfðu tveggja stiga
forskot á Keflavík þegar skammt var til mótsloka.
Óvænt tap gegn einu af lakari liðum deildarinnar
gerði það að verkum að Keflvikingar komust upp
að hlið þeirra. Liðin hlutu bæði 20 stig en Eyja-
menn voru með mun betri markatölu. Hún gildir
hins vegar ekki hérlendis og því varð að fara fram
aukaleikurá Laugardalsvellinum. Þaðerskemmst
frá að segja að Eyjamenn hrundu þar eins og
spilaborg að 10.000 áhorfendum viðstöddum og
ÍBK sigraði 4-0. Þetta er mesti áhorfendafjöldi á
leik á milli tveggja íslenskra liða fyrr ogsíðar.
Þessi frammistaða dugði ÍBV til að komast í
Evrópukeppni öðru sinni. Að afloknu keppnis-
tímabili þar sem Eyjaliðið hafnaði i 2. sæti á nýjan
leik var haldið til Noregs til að leika við Viking frá
Stavangri i UEFA-keppninni. Þrátt fyrir stór-
góðan leik máttu Eyjaskeggjar þola tap. 0 1.
Siðari leiknum lauk með markalausu jafntefli i
vitlausu veðri. Eyjamenn þar með úr leik. Þetta
sama sumar sigraði ÍBV aftur í bikarkeppninni
eftir leik við FH. Lokatölur 2-0.
Sumarið 1973 varð ÍBV í 3. sæti í 1. deildinni
og dróst gegn v-þýska stórliðinu Borussia
Mönchengiadbach i Evrópukeppni bikarhafa.
Viðureign ÍBV við Þjóðverjana varð eitt alls
herjar tap bæði knattspyrnu- og fjárhagslega. Örn
Óskarsson skoraði mark ÍBV i 1-7 tapi hér d
Laugardalsvellinum. Skellurinn úti varðenn verri
eða 0-9. Gífurlegt tap varð á þátttöku liðsins í
Evrópukeppninni.
Nokkuð tók nú að halla undan fæti hjá ÍBV og
1974 varð liðið í 4. sæti og siðan fylgdi afleitt ár í
kjölfarið. Liðið fékk meira að segja möguleika til
að halda sæti sínu með sigri í aukaleik gegn Þrótti
þar sem fjölgun stóð fyrir dyrum i I. deildinni.
Það tókst ekki heldur og ÍBV var i 2. deildinni á
nýjan leik.
Dvölin þar varð aöeins eitt sumar enda Eyja-
menn með allt of gott lið til að vera þar. Þeir
sigruðu mjög glæsilega i 2 deildinni og náðu 3.
sætinu I I. deildinni árið eftir. Þaö tryggði þeim
sæti i UEFA keppninni haustið 1978.
Sumarið 1978 færði Eyjamönnum 4. sæti 1.
deildar og um haustið var leikið gegn írska liðinu
Glentoran í UEFA-keppninni. Jafntefli varð á
Kópavogsvelli 0-0 og einnig úti, 11. Eyjamenn
komust því óvænt áfram i 2. umferð og drógust þá
gegn Pólverjunum Slask frá Wroclaw. Fyrri
leikurinn á Melavellinum tapaðist 0-2. sem var
alger óþarfi. í þeim síðari komu Eyjamenn mjög á
óvart og töpuðu aðeins I -2.
Síðan rann sumarið 1979 upp allt annað en
bjart og fagur. ÍBV hafði misst nokkra góða
leikmenn og liðinu var ekki spáð velgengni i
sumar. En leikmenn bitu á jaxlinn og hrakspárnar
þjöppuðu mönnum saman. Eftir að hafa siglt
lygnan sjó ntestan hluta mótsins stungu þeir liðin
af á lokasprettinum og tryggðu sér islandsmeist-
aratitilinn með I -0 sipri \ fir Vikingi á Laugardals-
vellinum. Sannarlegasætursigur Eyjamanna og til
að bæta um bctur var Arsæll Sveinsson kjörinn
leikmaður íslandsmólsins af Morgunblaðinu.
Eyjamenn voru vel að sigrinum komnir. Þeir
lögðu sína helstu keppinauta. Val og Akranes. í
báðum leikjunum og fengu ekki á sig ntark gegn
þessum liðum. Það sýnir styrkleika liðsins betur
en flest annað. Loksins eftir áralanga baráttu.
svita og tár var íslandsbikarinn loks kominn til
Eyja.
Ef hægt er að eigna einum manni sigurinn er
það vafalítið þjálfari Eyjamanna Viktor Helgason
sem fær þann heiður. Hann tók við þjálfun liðsins
í vor þegar allt stefndi í óefni. Leikmenn vissu
hvað hann hafði gert með liðið áður og undir hans
stjórn lögðu ÍBV-strákarnir hvern keppinautinn d
fætuV öðrum uns titillinn var i höfn. Til hamingju.
Eyjaskeggjar!
SSv.
44. tbl. ViKan 31