Vikan


Vikan - 06.12.1979, Blaðsíða 43

Vikan - 06.12.1979, Blaðsíða 43
KJARN' I.IEIÐSI.A Tll. KÍNA „En þú ert samt sammála því að eitt- hvað verður að gera?” „Já,” samsinnti Jack. Hann neri hend- urnar og spurði sjálfan sig hvað ætti að gera. Hvað hafði valdið þessu rofi á sjálfsaga? Hvað hafði fengið hann til þess að ræða „fjölskyldumál” við ókunnugt fólk? Hættulegt ókunnugt fólk. Kimberly sá óvissu hans og fann til með honum. Hún sá hann nú i sjald- gæfri aðstöðu, óákveðinn, hikandi, næstum nakinn. Henni fannst hvort tveggja í senn sem hann heillaði hana og hræddi. Hún leit undan. „Kannski,” sagði Jack, „getum við hjálpað hvert öðru, með leynd. Ég vil fá þetta mál á hreint. En ég verð líka að vernda sjálfan mig. Svo — ef ég útvega ykkur þessar fölsku röntgenmyndir, getið þið þá séð um að þær verði lagðar fram sem sönnunargagn við yfirheyrsl- urnar á Point Conception? Sönnunar- gagn sem dregur í efa vinnuaðferðit þeirra verktaka sem byggt hafa bæði orkuverin? Og getið þið fullvissað mig um að nafn mitt verði hvergi nefnt? Það er lífsnauðsynlegt.” „Ég veit að ég get séð um þetta,” svaraði Richard snöggt. „Það eina sem ég þarf að gera er að hringja í Elliott Lowell og hann verður meira en fús til þess að kynna þetta.” „Og ég held að ég geti talið þá á stöð- inni á þetta, fengið þá til þess að fara með vagn þangað og sjá um að allt verði sent út — æ, guð minn góður!” Hún leit á úrið. „Ég er að verða of sein í sexfrétt- irnar. Fljótt, hvernig getum við nálgast þessar röntgenmyndir?” „i fyrramálið,” sagði Godell. „Ég fer til orkuversins eins og vanalega. Getur einhver sem þið treystið hitt mig á póst- húsinu í tveggja milna fjarlægð? Við skulum segja klukkan niu. Þaðerbestað það verði hvorugt ykkar, ef fylgst hefði verið með mér. Það getur vel verið því ég er þegar búinn að fara út af sporinu með þvi að tala við þessa verktaka og þeir gætu hafa látið það ganga lengra.” „Hector!” sagði Richard. „Já, við þekkjum hann. Hann er Mexikani, stór og feitur náungi. Ágætis piltur. Náinn vinur minn.” „Og þakka þér fyrir,” sagði Kimberly og færði sig i átt til dyra. „Þakka þér svo sannarlega fyrir. Ég verð að fara núna en ég hef samband við þig.” Hún var tilbúin meðblýantinn. Jack gaf henni upp simanúmerið sitt og þau gengu út. O, jæja, hugsaði hann. O, jæja, o, jæja. Hann lét frá sér bjór- dósina og gekk inn í eldhúsið til þess að fá sér einn tvöfaldan. Richard og Kimberly hlupu sem mest þau máttu niður ganginn að upptöku- herberginu þegar klukkuna vantaði nokkrar sekúndur i að sexfréttirnar byrjuðu. Þau þeyttu upp hurð. Fyrir ofan hana var rautt ljósaskilti sem á stóð opnið ekki þegar rauða Ijósið er kveikt. Þau gengu inn. MacChurchill, sem sat bak við glerskerm inni í stjórnher- berginu, sá hana og kom strax til hennar. 1 þann mund gaf sviðsstjórinn merki og Pete Martin sendi bros inn i mynda- vélina. „Gott kvöld, þetta er Pete Martin. Nú er klukkan sex og tími til kominn að heyra fréttirnar...” Kimberly tók sér móð og másandi stöðu svo hún yrði reiðubúin að byrja þegar hún fengi lykilorð. Hún slétti úr blússunni og renndi fingrunum í gegnum hárið. MacChurchill greip í handlegg hennar og hvíslaði reiðilega í eyra hennar: „Hvar í fjáranum hefur þú verið i dag? Og hvað gengur eiginlega á? Þú áttir að hitta nokkra lögfræðinga í dag og við biðum í hálftíma eftir þér. Jacovich er I kasti!” Kimberly horfði á Pete Martin og leit siðan á sviðsstjórann, reiðubúin að taka við lykilorðum sínum. Gjöf ársins „Skovsyre" Þetta er niunda skeiðin i dýr- mœtri seriu frá Georg Jensen. Skeiðin er úr steriingsiHri, gull- húðuð og með blómamynd úr email. Hvert ár kemur ný skeið með nýju blómamynstri. Upp- lag hverrar skeiðar verður mjög takmarkað. Jóhannes Norðfiörð hf. Hverfisgötu 49, simi 13313 Laugavegi 5, simi 12090. „Hvar er árans filman?” hvæsti Chur- chill. „Fáðu Jacovich hingað niður,” hvíslaði Kimberly á móti. „Við erum með sögu, sem þú myndir ekki trúa!” Sviðsstjórinn sendi Kimberly merki um að tíu sekúndur væru eftir. „Hlustaðu nú, stúlka min,” hvíslaði Churchill, „mér er sama hvers konar sögu þú ert með, þú skipar ekki —” „Ég sagði þér að fá hann hingað niður og það fljótt,” sagði Kimberly. Svogekk hún inn á sviðið um leið og Pete Martin kynnti hana: „Og hér er svo Kimberly Wells....” Kimberly brosti inn í myndavélina og las upp: „Þakka þér fyrir Pete. I kvöld ætlum við að taka tali alveg nýja gerð af lækni — mann sem fer í vitjanir til þess að lækna — veika fiska. Sviðið breyttist og nú sást skyrtu- klæddur maður beygja sig yfir smelt fat fullt af vatni og dró upp úr þvi, með töng, óttasleginn gúppifisk. Rödd Kimberly heyrðist nú af seguibandi. „Hann heitir Horace Seward og býr i Burbank. Hann segist hafa ákveðið að sérhæfa sig í fisksjúkdómum þegar einn af hans eigin rándýru fiskum dó eftir að hafa gleypt stóra vísinn af Mikka mús armbandsúri...” Nákvæmlega tuttugu minútum siðar, þegar fréttatíminn var liðinn, sátu Kimberly, MacChurchill, Richard Adams og Don Jacovich i fundarher- berginu. „Mig hefur langað til að tala svolitið við þig og pennan félaga þinn hérna,” sagði Jacovich hvasst. „Hvað gengur eiginlega á?” Kimberly rakti i stuttu máli það sem gerst hafði um daginn. Hún sagði frá áliti dr. Elliott Lowells og Gregs, kjarn- orkuverkfræðingsins, og sagði þeim frá meginatriðunum í samtali þeirra við Jack Godell. „Svo þannig er það. Þetta eru ajlar þær staðreyndir sem við höfum getað aflað okkur. Ég veit að það er ekki í mínum verkahring að ákveða hlutverk mitt hér á stöðinni, en ég er þreytt, hr. Jacovich. Þreytt á að upplýsa fólk um afmælisveislur Ijóna í dýragörðum, talandi hunda og veika hitabeltisfiska. Þetta er sagan min. Ég gróf hana upp, ég spann utan um hana og ég ætla að senda hana beint út — á morgun eftir hádegi.” „Veistu ekki hver þessi náungi, Elliot Lowell, er? Hann er deiluflenna. Atvinnumaður í að valda illindum. Auð- vitað kemur hann þessu efni áfram. Það eru einhverjir þrýstihópar sem greiða honum fyrir það!” „Ég held að þú skiljir mig ekki. Ég ætla ekki að ræða frekar um þetta,” sagði Kimberly. „Annaðhvort kem ég þessu efni fram fyrir þessa stöð eða ég segi upp núna á stundinni og fer með mitt eigið fréttaefni i einhverja aðra sjónvarpsstöð.” „Þú myndirekki —” „Athugaðu.” 49- tbl. Víkan 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.