Vikan - 06.12.1979, Blaðsíða 87
Hún gæti skilað þvi fyrir kvöldmat. Þá
væru bæði Fay og Henry viðstödd, en
nú varð hún að flýta sér að skipta unt föt
og hitta Tim í upptökusalnum.
Claire ók upp hlíðina, gegnum hliðið
og að malbikuðu svæðinu fyrir framan
útvarpsstöðina. Það var vörður við
hliðið en hann virtist ekki efast neitt um
rétt hennar til að koma inn fyrir. Hún
gat þó hvergi séð bil Tims.
Hún fór út úr bilnum og leit í kringum
sig. Byggingin var nýleg, eins og flestar
byggingar sem hýstu opinberar stofnanir
i Makeli, þó voru strax komnar litlar
klifurjurtir meðfram veggjunum. Hún
flýtti sér inn til að hefja vinnudaginn.
Hér VAR Claire á nokkurn veg-
inn kunnugum slóðum. og hún gekk um
og skoðaði umhverfið. Það var þægileg
tilfinning að sjá kunnuglega plötustafl-
ana og upptökutækin. Hún gladdist við
að sjá aftur plöturnar. sem hún hélt svo
mikið upp á, og uppgötva nýjar, sem
hún hafði ekki vitað um fyrr. Það fylgdi
þvi þægileg tilfinning að setja plöturnar
aftur á stúdíóplötuspilarann.
Um leið og hún hlustaði á tónlistina
reyndi hún að setja saman i huganum
tónlistina fyrirTim.
Allt i einu datt henni i hug að senni-
lega væri hún að taka plötuspilarann frá
starfsfólkinu og hún fékk samviskubit.
Hún flýtti sér að setja saman listann
fyrir Tim og senda hann inn á skrifstof-
una við hliðina. Siðan tók hún upp tösk-
una og lagði af stað út.
Þegar hún fór fram hjá móttökunni sá
hún Carol sem var upptekin við simann.
Hún lyfti hendinni í kveðjuskyni. Bros
hennar var vingjarnlegt og svipurinn
hreinn og opinn.
Claire svaraði i sömu mynt án þess að
hugsa sig frekar um. Siðan gekk hún út i
Undir
Afríku-
himni
sólskinið, dró djúpt að sér andann,
ánægð og undrandi á sjálfri sér.
Enn ein eldraunin var yfirstigin. Tvær
reyndar, ef hún taldi tónlistarvalið með.
Þetta hafði allt gengið sársaukalaust
fyrir sig. Reyndar hafði hún skemmt sér
konunglega viðað velja plöturnar. Þetta
voru líka önnur húsakynni og það gerði
henni auðveldara fyrir. Þarna varekkert
sem minnti hana á Dermott.
Nei, það var allt liðið. Noel Kendrick
hafði rétt fyrir sér. Hún skellti hurðinni
ákveðin á eftir sér og hélt af stað heim-
leiðis.
BINAL kom með Bruce, eins og
alltaf þegar hann kom til Blackrock í
heimsókn. Þegar Claire kom inn i eld-
húsið voru þau Rebecca á kafi i samræð-
um.
Abinal var glaðlyndari og opinskárri
en hin alvörugefna systir hans. Claire
líkaði vel við hann og hún ætlaði að
ræða við hann um stúdentaóeirðirnar.
Hún vissi ekki hvers vegna hún hikaði
en það var eitthvað við svip Abinals —
samanbitinn munnurinn kannski — sem
fékk hana til að hætta við það. Hún
ÍSLENSK FRAMLE/ÐSLA
FURUHÚSGÖGN Grottisgötu 46 - Simi 18580
ÚRVAL
BOK / BLAÐFORMI
Geríst áskrífendur í síma 27022
Nýir, þurrkaðir
02 niðursoðnir ávextir
ÁVEXTIR ALLA DAGA
EGGERT KRISTJÁNSSON HF
Sundagördum 4 — Sími 85300
49. tbl. Vikan 87