Vikan - 06.12.1979, Qupperneq 110
POSTURIMI
Holur í andlitinu
Kæri Póstur.
Ég er hér ein með eitt af
vandamálum mínum.
Ég er með einhverjar holur í
andlitinu. Geta það verið svita-
holur? Það er eins og þær
greinist þegar ég fer í gufu.
Elsku Póstur, segðu mér
hvað þetta getur verið og hvað
ég á að gera því ég líð svo fyrir
þetta. Og af hverju getur þetta
stafað og getur þetta horfið?
Viltu reyna að svara þessu
fyrir mig. Hér er annað. Móðir
mín er alltaf að rausa um hvað
ég sé feit og ég þoli það ekki.
Hvað á ég að gera? Ég er alls
ekki feit, ég er um 166 sm á
hæð og 55 kg. Á ég að leggja
af?
Jæja Póstur. Nú œtla ég að
hætta þessari vitleysu. Þakka
þér fyrir birtinguna.
Ein með vandamál.
Hversu stórar eru þessar holur í
andlitinu? Svitaholurnar á
venjulegu fólki opnast þegar hiti
eða gufa kemst að þeim og því er
ekki útilokað að þarna sé um
ósköp eðlilegar svitaholur að
ræða. Ef svo er þarftu ekki að
hafa neinar áhyggjur, því það
væri einungis ástæða til heila-
brota ef þessi líkamsstarfsemi
væri ekki á sínum stað. Hafir þú
miklar áhyggjur af þessu skaltu
leita læknis og athuga hvort allt
er þarna með eðlilegum hætti.
Sértu smábeinótt er þyngdin
einmitt hæfileg, svo móðir þín
hlýtur að vera að glettast við
þig, en þú skilur ekki skopið.
Samt finnst mér
ég ekki þekkja
hann
Komdu sæll, kæri Póstur.
Mig langar til þess að biðja þig
að leysa úr vandamáli mínu.
Ég er alveg búin að tapa
tölunni á bréfunum sem ég hef
skrifað þér. Ég vona að þetta
bréf lendi ekki hjá hinum
bréfunum.
Þannig er mál með vexti að
ég er með strák, við erum búin
að vera saman í nokkra
mánuði, en samt finnst mér að
ég þekki hann ekki neitt. Ég
meina hans innri persónu. Við
tölum nefnilega ekki nógu
mikið saman. Við erum í sama
skóla og á daginn, þegar við
hittumst, þá segir hann bara:
„Hæ, hvað segir þú?" Ég reyni
að segja eitthvað, sem mér
dettur í hug til þess að tala um,
og við getum jú alveg talað
saman þannig. Um helgar
hringir hann oft í mig og biður
mig að koma á diskótek, þá
fmnst mér hann ætli alveg að
gleypa mig, en á virkum
dögum hefur hann ekki neinn
áhuga á mér. Hann kemur
aldrei heim til mín en ég kem
oft heim til hans. Hann hefur
aldrei sagt að hann sé hrifinn
af mér. Ég held að hann sé að
nota mig. Ég hef aldrei hleypt
honum alveg upp á mig. Mér
finnst einhvern veginn vera of
langt á milli okkar. Mér finnst
samt vænt um hann. Þegar
hann er fullur, þá er hann
vitlaus í mig, en þegar hann er
edrú þorir hann ekki að kyssa
mig. Hvað á ég að gera til þess
að við nálgumst meira og
tölum meira saman? Ekki segja
Rauð í kinnum og með
feitt hár
Kæri Póstur!
Ég þakka þér fyrir birtingar á mínum fyrri bréfum í
Vikunni og eins fyrir gott blað.
Gætir þú, Póstur kær, gefið mér nafn á góðu andlits-
kremi? Ég hef nefnilega alveg hræðilega Ijóta og viðkvæma
húð. Ég er ekki bólugrafm, heldur eru svo miklir flapenslar
á nefinu, sem ég næ ekki af. Ég er alltaf svo rauð I kinnum
og það er svo Ijótt. Hvað er hægt að gera svo hárið sýnist
þykkara? Er til sjampó sem gerir það að verkum að maður
þarf aðeins að þvo sér einu sinni í viku? Þar sem ég er að
vinna er svo mikið rafmagn í loftinu að ég þarf að þvo mér
annan hvern dag. Geturðu svo að lokum gefið mér góða
megrunaruppskrift? Ekki segja mér að hætta að éta
sælgæti, borða minna eða því um líkt. Hvernig stendur á
því að blæðingar standa bara yfir í tvo daga hjá mér?
Ég er alveg hundóánægð með mig.
Þökk fyrir birtinguna.
Ein Ijót.
Pósturinn getur ekki tekið einhverja eina gerð af snyrtivörum
og mælt með fram yfir aðrar, en allar slíkar ráðleggingar gætir
þú fengið hjá snyrtisérfræðingi. Til reynslu gætir þú keypt þér
svokallaðan andlitsmaska, sem á að bera á húðina einu sinni í
viku til hreinsunar. Einnig ættir þú að forðast allt, sem heitir
litað krem, en nota aðeins rakakrem. Við feitu hári er
langárangursríkast að fá sér gott permanent og nota síðan
hárþvottaefni, sem vinna gegn fitu. Þetta tvennt fær líka
hárið til að virðast þykkara. Ef þú þarft að bleyta á þér hárið
skaltu reyna að forðast að nota sjampó í hvert skipti, því það
fer illa með hárið.
Það er varla mikil von til þess að þú leggir af, ef þú getur
ekki hugsað þér að hætta að borða sælgæti. Ef þú hættir þvi
algjörlega og borðar jafnframt fæðu með minna fituinnihaldi
er von til þess að þú leggir af og jafnframt að hárið og húðin
losni við fyrrnefnda kvilla.
Blæðingar geta verið með ýmsu móti, slíkt er mjög
einstaklingsbundið. Ef þú hefur áhyggjur af einhverju í
sambandi við heilsufarið er eina ráðið að leita læknis.
Pósturinn getur ekki læknað fólk eða sagt til um líkamsstarf-
semi þess í gegnum bréfadálk.
að það komi með tímanum, því
þetta er búið að vera svona
lengi og ekki segja mér að
hætta með honum, því það get
ég ekki.
Með fyrirfram þökk fyrir
svar.
Ein í vanda.
Þið eruð svo ung ennþá að það
er ekki óliklegt að hann sé
feiminn við þig og þori alls ekki
að láta skólafélagana sjá að
honum standi ekki alveg á sama
um þig. Þótt hann elti þig ekki á
röndum í skólanum er ekki þar
með sagt að hann kæri sig ekkert
um þig og sé að nota þig á ein-
hvern máta. Feimnin getur lika
valdið því að hann kemur sér
ekki að þvi að fara heim til þín
og allt getur þetta einmitt breyst
með tímanum. Farðu samt
varlega í sakirnar og gerðu ekk-
ert vanhugsað því á þessum aldri
geta málin tekið miklum
breytingum á skömmum tíma.
Nokkrir mánuðir eru engin
eilífð í sambandi tveggja persóna
og nánari kynni geta einmitt
komið með tímanum. Það eina
sem þú getur gert er að sýna
biðlund og leyfa sambandi ykkar
að þróast í friði.
Pcnnavinir
Piero Querzoli, Via C. Masetti N° 6,1-
40069, Zola Predosa, Prov. Bologna,
Italy, er ítalskur strákur, 16 ára gamall,
sem óskar eftir að eignast íslenska
pennavini. Hann er í skóla og lærir bæði
ensku og frönsku.
Rannveig Ólafsdóttir, Birkimel lOa, 107
Reykjavfk, óskar eftir pennavinum á
aldrinum 16-20 ára. Hún er sjálf 16 ára.
Ahugamál eru m.a. pennavinir, ýmsar
íþróttir, ferðalög (út um allan heim),
tónlist o.fl. Mynd óskast með fyrsta
bréfi.
Emelía Pétursdóttir, Túngötu 12, 710
Seyðisfirði, óskar eftir að skrifast á við
stráka og stelpur á aldrinum 10-12 ára.
Sjálf er hún 11 ára. Mynd fylgi fyrsta
bréfi ef hægt er.
Inga Heiðdal, Gilsbakka 7, 710 Seyðis-
firði. N-Múl., óskar eftir að komast i
bréfasamband við stráka á aldrinum 13-
15 ára. Hún er sjálf 13 ára. Æskilegt að
mynd fylgi fyrsta bréfi ef mögulegt er.
Ahugamál hennar eru dans. strákar,
hestar, diskólög og margt fleira.
Inga Ósk Jóhannsdóttir, Vesturvegi 3,
710 Seyðisfirði, N-Múlasýslu óskar
eftir að skrifast á við stráka á aldrinum
14-17 ára. Hún er sjálf 14 ára. Mynd
fylgi fyrsta bréfi ef hægt er. Áhugamál
eru margvisleg.
ÍIO Vikan 49. tbl.