Vikan - 27.12.1979, Page 26
Enn aitt árið er að renna sitt skeið á enda og
landslýður brennir út því gamla á ýmsan máta.
öfáir klæðast sínu besta skarti og fara á dansleiki
eða I veislur, sem haldnar eru til að kveðja
gamla árið og fagna því nýja. En ekki eru allir
gasddir hinni einu, sönnu útlitsf egurð og álf konan
góða, sem kippti öllu í liðinn fyrir öskubusku hér
um árið, væri meira en velkomin.
Hár á ritstjórn Vikunnar er ósköp venjulegt fólk,
sumir með stóra rassa eða of stór nef, strítt hár,
maga af rangri stærðargráðu og svo mætti lengi
<•. .. . ■ '■ .............'
telja. Því voru góð ráð dýr, þegar halda átti hina
árlegu áramótaveislu og álfkonan góða virtist
ákveðin í að halda sig víðs fjarri. En það er
annaðhvort að duga eða drepast, allsendis ófært
að fagna nýja árinu með óbreyttu útliti ritstjórnar-
innar (sjá meðfylgjandi mynd). Þetta tókst svo
með dyggri hjálp Herrahússins, Parísartískunnar,
hárgreiðslustofunnar Valhallar, hársnyrtistofu
Villa Þórs og Snyrtihúss Bentínu. Stökkbreytingu
starfsliðsins getur svo að líta á þessari og næstu
síðu og heildarkostnaður varð 810.100 krónur.
baj
26 Vlkan 52. tbl.