Vikan - 27.12.1979, Blaðsíða 34
Fimm mínútur með Willy Breinholst
ENDASLEPP
SÖLARFERÐ
I Aðstoöarbankagjaldkeranum
Páli Hansen og hinni fögru
eiginkonu hans, Yvonne, haföi
loks tekist að nurla nægilegu fé
saman til aö komast í sólarlanda-
ferð til Norður-ítaliu þar sem
sólin speglast í dimmbláu
Miðjarðarhafinu, pálmamir
blakta, sítrónulundimir anga,
svo ekki sé minnst á fom-
minjamar og listaverkin frá all-
flestum skeiðum sögunnar. Svo
kostaði heilsdagsferð til
Feneyja, drottningar Adria-
hafsins, ekki nema 5 þúsund
krónur aukalega.
Þetta varð ferð sem gjald-
kerinn ungi átti seint eftir að
gleyma. Strax í dagsferðinni til
Feneyja fóm grunsamlegir hlut-
ir að gerast. Eftir skyldu-
skoðunarferð í Dogehöllina fór
hann einsamall á Markúsar-
torgið til að gefa dúfunum og
lita með eigin augum fjöl-
skrúðugt mannlífið sem þar
þrifst. Síðan settist hann niður á
litla en vinalega „trattoria” og
var ekki fyrr búinn að panta sér
eina „chianti” en honum varð
ljóst að hann hafði týnt ein-
hverju.
— Hatturinn minn! æpti
hann af öllum lifs og sálar
kröftum. —- Týrólahatturinn
minn! Einhver hefur stolið nýja
Týrólahattinum minum!
Hatturinn hafði verið með
fjöðmm og tilheyrandi. Hann
hafði keypt hann i Týról á
leiðinni suður. í hugsunarleysi
hafði hann sett hann á næsta
borð við sig — og nú var hann
augsýnilega horfinn. Einhver
ræfillinn hafði stolið honum.
Það voru ekki falleg orð sem
Páll notaði i lýsingum sinum á
Feneyjabúum það sem eftir
lifði dags. En þetta var aðeins
byrjunin. Ýmislegt verra átti
eftir að gerast. Nokkmm dögum
siðar fóru þau hjónin ásamt
ferðafélögum sínum í dagsferð
til Flórens. Þar var sest niður á
„ristorante” nærri Piazza della
Signorina og pöntunin hljóðaði
upp á „calamari”, smokkfiska-
armar steiktir i olifuolíu og fleiri
framandi sósum. Fólk var ekki
fyrr búið að stinga fyrsta
bitanum upp í sig en Páll rauk
upp af stól sínum eins og særður
köttur með tilheyrandi látbragði
og hljóðum.
— Ljósmyndavélin mín! æpti
hann í angist. — Nýja dýra
myndavélin mín!
Það var satt — myndavélin
var horfin. Hann hefði heldur
ekki átt að skilja hana eftir i
fatahenginu við útidymar þar
sem var stöðugur straumur fólks
— jafnt ferðamanna sem
innfæddra. Páll tók þann
kostinn að kenna þeim
innfæddu um þjófnaðinn.
— Þær eru ósvífnar þessar
spaghettiætur, var það eina sem
hann gat sagt.
Aðstæður hans voru nú
orðnar heldur slæmar — jafnvel
hrikalegar. Hann átti enga
peninga til að kaupa sér nýja
myndavél, en hatt varð hann að
Stjörnuspó
llnilurinn 2l.mar* 20.a|iril
Þér gengur illa að horf-
ast í augu við erfið-
ieikana og nýja árið
sýnist ekki boða bjartari
tiraa. í þessu tilviki er
engu um að kenna öðru
en eigin mistökum, sem
ættu ekki að endurtaka
sig.
ViuliA 21.april 2l.mai
Stiflyndið hefur að
ýmsu leyti varpað
skugga á annars ágæta
jólahelgi og það væri
þér happadrýgst að gera
þér far um að slaka á.
Láttu áhyggjurnar lönd
og leið og skemmtu þér
um áramótin.
iMhurarnir 22.mai 21. júni
Ósigur getur breyst i
sigur fyrr en varir og þú
skalt engu kviða
varðandi þessi áramót.
Láttu ekki óvissu og efa
um eigin getu tefja fram-
gang þýðingarmikiila
framkvæmda.
Kr.'hhinn 22. júni 2.L júli
Ýmis atvik hafa orðið
til þess að þér hefur
gengið illa að koma lagi
á tilfinningallfið og
sjálfsblekkingin verið
eina haldreipið.
Hugsaðu málin af
raunsæi, því ekki er
alit jafnslæmt og virðist.
Lj(ini4 24. jtili 24. ii{ú«l
Skarpskyggni þin gerir
þér kleift að skiija kjarn-
ann frá hisminu og grár
hversdagsleikinn víkur
fyrir ævintýraiegum
áætlunum. Stattu fast á
þessum áformum, því
það er litlu að tapa.
>lc>jan 24.iiiíúsi 2.Vscpl.
Þér hefur ætíð reynst
auðvelt að afla vina og
nú kemur það sér ve! á
fleiri en einn máta.
Aðstoð þeirra reynist
þér ómetanleg og svo
virðist sem þessi
samvinna sé einnig
þeirra gróði.
Það gengur illa hjá þér
að taka ákvörðun I
ýmsum málum og er
það reyndar ekkert nýtt.
Gerðu þér grein fyrir að
timinn liður á meðan þú
sveiflast miili
möguleikanna og allt
getur orðið um seinan.
Sporðtlrckinn 24.okl. .Miim.
öliu gamni fylgir
nokkur alvara og það
ættir þú að hafa ofar-
lega i huga um þessa
helgi. Það er allt i iagi
að skvetta úr klauf-
unum en ekki sakar að
hafa nokkurt hóf á gieð-
inni.
Hoijniaðurinn 24.nnt. 21.dcs
Brátt kemur I Ijós hvað
áunnist hefur undan-
fama mánuði. Sýndu
stillingu, þótt ekki gangi
allt eins og þú hafðir
hugsað þér, þvi þetta
hefst örugglega með
þolinmæðinni.
Slcingcilin 22.dcs. 20. jan.
Myndaðu þér skoðanir
eftir góða umhugsun og
framkvæmdu ekkert í
augnabliks bræði.
Áramótin geta orðið
lifleg og það er varla
um annað að rasða fyrir
þig en gleðjast með
öðrum.
\atnsl»crinn 2l.jan. It.íchr.
Sannleikurinn I vissu
málefni veldur þér sárs-
auka, einkum þó vegna
þess að þú hefur lokað
augunum fyrir. stað-.
reyndum. Krefstu ekki
of mikils af öðrum og
sættu þig við orðinn
hlut.
Fiskarnir20.ícbr. 20.mar«
Það ætti að vera óhætt
að reyna að taka lífinu
með ró, jafnvel þótt
áramótin séu I nánd.
Gakktu hægt um
gleðinnar dyr og gerðu
þér grein fyrir að
skemmtanir eru með
ýmsu móti.
34 Vlkan **. tbl.