Vikan - 27.12.1979, Blaðsíða 50
Undarleg atvik — Ævar R. Kvaran
HHNGANORINN
Göfugmennið Albert Schweitzer getur
þess f æviminningum sinum (Aus
meiner Kindheit und Jugendzeit) að
hann hafi snemma fengið megnustu
óbeit á veiöiferðum og skotæfingum
félaga sinna, en ekki þorað að láta á þvl
bera þvi hann hafi óttast að það yrði virt
sér til hugleysis og aumingjaskapar.
Eitt sinn fór hann í sleðaferð með
skólafélögum sinum. Hundur hljóp
urrandi með sleðanum og reyndi að
glefsa í snoppu hestsins. Fannst honum
þá að hann yrði að slá til hans með
svipunni, en höggið hitti dýrið beint i
augað, og veltist hundurinn um ýlfrandi
í fönninni.
„Sársaukavein hans létu mig ekki í
friði, þau ómuðu i eyrum mér vikum
saman,” skrifaði Schweitzer. Þetta atvik
varð til þess að sú sannfæring óx með
honum og varð æ sterkari með aldrin-
um, að menn hefðu engan rétt til þess að
baka öðrum verum þjáning og dauða,
nema það sé óhjákvæmilegt.
Betur að við gætum lært eitthvað af
reynslu þessa spaka göfugmennis.
Ég ætla nú að segja ykkur einhverja
skemmtilegustu dýrasögu sem ég hef
heyrt. En hún er um svolitinn elsku-
legan hringanóra sem fékk uppeldi sitt í
mannheimum. Frá þessari músíkölsku
urtu segir i bókinni Selsmorgunn eftir
Rowenu Farre, en hún er skosk að
ætterni.
Þegar Rowena var telpa bjó hún hjá
Miriam frænku sinni i kofa á hrjóstrugri
og eyðilegri heiði i Norður-Skotlandi.
Það var ekki þægindunum fyrir að fara í
kofanum þeirra. Þær urðu að sækja vatn
i á nokkra skammt frá en olíulampar
önnuðust lýsinguna. Næsta þorp var í
35 km fjarlægð og um sima var ekki að
ræða. í leit að félagsskap leituðu þær
þess vegna til dýranna sinna.
Frænka Rowenu unni öllum villtum
dýrum og i hvert sinn sem þær fundu
særðan fugl eða deyjandi dýr fóru þær
heim með það og reyndu að lækna það
eða lifga við. Á svipaðan hátt kynntust
þær Láru, fjöruga tónvisa kópnum sem
varð ástúðlegur vinur Rowenu og
óaðskiljanlegur félagi.
Þaö var fiskimaður einn sem gaf
henni Láru. Hann sagði að kópinn hefði
tekið út af skeri i ofviðri og þannig hefði
hann týnt móður sinni. Hún var hringa-
nóri, en sú selategund var annars sjald-
séð á þeim slóðum, sem voru uppeldis-
stöðvar landselsins, en hann er stærri
vexti og ekki nándar nærri eins vel
gefinn.
Það er nú af þeim frænkum að segja
að þær höfðu sér til skemmtunar þrjár
geitur, fallegan, gulan hvolp af veiði-
TÚNVfSI
hundakyni, tvo otursunga, tvo tamda
ikorna, já, og jafnvel uppáhaldsrottu
sem þær kölluðu Rodney. En þótt
Miriam frænka væri mikill dýravinur þá
var hún á báðum áttum um það hvort
hyggilegt væri að taka sel í fóstur. Hún
krafðist þess því að Lára yrði flutt aftur
til sjávar, jafnskjótt og hún gæti séð sér
farborða.
En það skipti engum togum. Lára
vann hug þeirra og hjarta. Hún vandist
strax á að drekka geitarmjólk úr flösku
og hafði unun af þvi að láta taka sig upp
og strjúka sér. Augnaráð hennar var
ómótstæðilegt þegar hún bað einhvers
og leit á þær sinum hreinu. skæru
augum.
Rowenu til stórhuggunar gafst
frænka hennar líka fljótt upp fyrir
töfrum Láru, og á brottför hennar var
ekki framar minnst einu orði.
En Rowena komst brátt að því að það
er enginn barnaleikur að ala upp sel. Það
varð að gefa Láru flöskuna fjórum
sinnum á dag. Þegar hún var orðin
svöng lét hún það í ljós með skrítnu
jarmi, en ef því var ekki sinnt strax
breyttist það i aumlegt ýlfur með stöku
gelti inn á milli.
Fyrstu mistök Rowenu í uppeldinu
lágu í þvi að hún leyfði henni að liggja i
kjöltu sér. Jafnvel eftir að hún náði
fullum vexti (en þá var hún þrjú og hálft
fet á lengd og vó sextiu pund) hvarflaði
það ekki að henni að afsala sér þessum
sérréttindum. Það tók margar vikur að
venja hana á að sofa á lágu bambusfleti
á næturnar f stað þess að klifrast upp i
rúmið til Rowenu. En hún kjagaði á
eftir henni um allt húsið, dró sig áfram á
hreifunum, og ef Rowena leyfði sér að
fara i gönguferð, þá mótmælti hún því
með ámátlegu ýlfri.
Rowena komst því að þeirri niður-
stöðu að hún yrði að þjálfa hana til þess
að verða dálitið sjálfstasðari í daglegu
lifi. Dag einn fór hún með Láru í þessum
tilgangi i róðrarbáti út á vatn eitt, sem
var skammt frá kofanum þeirra, og
fleygði henni fyrir borð. Andartaki siðar
synti hún með feiknahraða, kafaði og
þaut i kringum bátinn af ótrúlegum flýti
og fimi. Á landi hafði hún verið klunna-
leg, hægfara skepna, en breyttist nú á
andartaki i dýr sem hafði til að bera
mjúklegasta yndisþokka og fór ferða
sinna sem kólfi væri skotið. Upp frá því
leið ekki svo dagur að Lára synti ekki
klukkustundum saman i vatninu með
otrunum.
Það var lítill vandi að kenna jafnskyn-
samri skepnu og Láru umgengnisvenjur
innanhúss. Hún áttaði sig'þannig brátt á
því að rykfrakkinn hennar var geymdur
á lágri hillu og henni var ljóst að þegar
hún kom heim frá daglegum sund-
iðkunum sínum i vatninu varð hún að
liggja á frakkanum þangað til hún var
orðin þurr. Meðan hún var ennþá kópur
var hún vön að gelta á þær til þess að
þær breiddu úr frakkanum handa henni.
En með timanum lærði hún að draga
hann sjálf niður af og breiða hann
sæmilega vel á gólfið handa sér.
ÆVAR R. KVARAN
Forvitni Láru var takmarkalaus. Allt
sem nýtt var og ókunnugt kom henni
spánskt fyrir sjónir og þurfti því að
rannsakast gaumgæfilega. Einkanlega
hafði hún mikla skemmtun af því að
taka upp úr innkaupakörfunni þeirra,
þegar þær komu heim úr kaupstaðar-
ferð. Niðursuðudósirnar tók hún gæti-
lega upp og velti þeim eftir gólfinu, en
hristi þá pakka sem henni þóttu girni-
legir til fróðleiks. Þegar Lára hafði
þannig tæmt körfuna bar hún hana
ævinlega á sinn stað við matarskápinn.
Þannig kenndi Rowena henni að
sækja og bera ýmiss konar hluti. Já, hún
tók jafnvel við bréfunum af bréf-
beranum. Lára mætti póstinum jafnan
uppi á hæðardragi og bar bréfin i
munninum þaðan til þeirra frænknanna
En einn daginn tókst nú samt heldur illa
til! Þegar Lára var sem sagt komin hálfa
leið heim með bréfin varð henni litið út á
vatnið og stóðst ekki freistinguna að fá
sér bað, en hafði bréfin í munninum!
Það er alkunnugt hve músíkalskir
selir eru og hæfileikar Láru í þá átt
komu snemma í ljós. í hvert sinn sem
þær frænkur slógu nokkrar nótur á
píanóinu kom Lára kjagandi að því og
hallaði sér upp að því, eða það sem
henni fannst enn betra, hallaði sér upp
að fótum þess sem lék. Þá hlustaði hún í
ofvæni og gleðin speglaðist í tærum
augunum og stundum vaggaði Lára sér
til og frá með öllum búknum í takt við
músíkina. Þegar laginu var lokið sat hún
gjarnan kyrrlát í nokkrar mínútur, enn
bundin töfrum tónanna.
Dag einn tók Rowena að syngja
dálítið þjóðlag. Lára gaf þá frá sér stunu
og hóf svo að syngja sjálf! Selir hafa vítt
tónsvið. Á því sviði má heyra frýs, gelt,
hvæs, mjálm, urr og ýlfur, oft úr dýpsta
bassa upp í hæsta sópran. Og Rowena
komst brátt að raun um, að hún mátti
sín lítils i þessari músíksamkeppni, enda
yfirgnæfði Lára hana gjörsamlega og
hún tók því þá ákvörðun að gefast upp
en láta Láru syngja og spila sjálf undir á
munnhörpuna sína. Þegar Rowena lék
einfalt lag hægt, þá fylgdi Lára laginu
með nokkurs konar laglausu ýlfri. En
áður en vikan var liðin gat hún sungið
tvö barnavísnalög hiklaust og var byrjuð
að læra erfiðara lag.
En hún lét sér þetta ekki nægja. Nú
tók Lára að heimta af Rowenu munn-
hörpuna og þrýsti skeggjuðu andlitinu
framan í hana til þess að reyna að hrifsa
munnhörpuna af henni. Að lokum lét
Rowena undan henni, fékk henni
munnhörpuna og stakk henni upp í
hana. Sér til mikillar gremju komst Lára
að þvi að harpan gaf ekki frá sér neitt
hljóð, hvernig sem hún nagaði hana eða
beit. I örvænting gaf Lára frá sér þunga
stunu meðan hún hafði munnhörpuna
uppi í sér en hljómurinn, sem hún fram-
leiddi við þetta, gaf henni byr undir báða
vængi með áframhaldandi tilraunir.
Skömmu síðar brá Rowena sér í
gönguferð. Þegar hún kom aftur heim
heyrði hún furðulegustu hljóð innan úr
kofanum. Lára var sem sagt búin að
læra munnhörpu-galdurinn, að anda
ýmist að sér eða frá, og þarna blés hún
af litlum mætti, enda alveg að þrotum
komin og úrvinda, því hún hafði
sennilega haldið sér látlaust við efnið
síðan Rowena fór í gönguferðina.
Ein vinkona Rowenu, sem heimsótti
þær frænkur og hafði vitanlega mjög
gaman af Láru, sendi henni seinna
barnalúður og var Lára ekki lengi að
komast upp á lagið með að framleiða
feiknamikinn lúðurþyt, ef lúðrinum var
50 Vikan 52. tbl.