Vikan - 08.05.1980, Side 18
Flugslys
Lowenstein skildi ekki eftir sig neitt
bréf til skýringar og hafði enga sýnilega
ástæðu til sjálfsmorðs. Um slys var
heldur ekki að ræða. Öryggislæsing-
arnar á klefadyrunum voru svo öruggar
að þær gátu ekki hafa opnast sjálf-
krafa.
Hvað hafði þá gerst?
Dauði Lowensteins var forsíðufrétt í
öllum blöðum. Leitað var að líki hans í
Ermarsundi en árangurslaust.
Andi Hinchcliffes kofn boðum í
gegnum miðilinn Eileen Garrett og ollu
þau ntiklum óróa:
— Lowenstein er heldur ekki hérna
hjá okkur...
Nokkrum dögum siðar kemur hópur
af fólki saman í London sem hafði
fengist við tilraunir með ósjálfráða
skrift. Fyrirliði þeirra er frú E. M.
Taylor, skynsöm og gagnrýnin kona sem
hlýtur að vera hafín yfir allan grun um
græsku.
Og þátttakendur þurfa ekki lengi að
bíða þess að eitthvað gerist. Þeim til
mikillar undrunar er andinn sem þau
komast i samband við Lowenstein.
— Getið þér fært nokkrar sönnur á
það hver þér eruð? spyr hin gagnrýna frú
Taylor.
Röð af nöfnum og heimilisföngum
birtist á pappírnum og seinna kemur í ljós
að þetta eru allt vinir eða viðskipta-
félagar Belgans.
— Hvernig bar dauða yðar að
höndum? spyr frú Taylor.
Blýanturinn rennur hratt yfir
pappírinn:
— Mér var síst af öllu sjálfsmorð í
huga þegar við lögðum af stað. En
meðan á fluginu stóð fann ég mig allt í
einu knúinri til að opna klefadyrnar og
henda mér út . . . Ég reyndi að berjast
gegn þessari tilfinningu en hún var of
sterk . . . Hvers vegna? Ég veit það ekki.
Svo tók ég hið hræðilega stökk út i
tóntið...
— Hvaðgerðist svo?
— Ég sá fyrir mér fortíð mína eins og í
bíómynd. Allt það góða og líka allt hið
illa sem ég hafði látið af mér leiða ...
— Hröpuðuð þér svo í sjóinn?
— Ég man ekki lengur hvað gerðist
næst. . . Það næsta sem ég man er að ég
horfði á líkama minn í sjónum . . . Það
var eins og þráður byndi mig við hann.
Mig langaði til að leysa þann þráð... Ég
sá framan í sjálfan mig og hrópaði upp
yfir mig af skelfingu því ég skildi þetta
ekki... Á þessu var bara ein skýring. Ég
hlaut að hafa brjálast . . . Ekkert annað
kom til greina...
Svo lýsti Lowenstein því hvemig
hann stóð skyndilega í anddyri Claridge-
hótelsins í London þar sem hann bjó
seinast. Hann sá dyravörðinn handfjatla
bréf, sem voru stíluðá hann.
— Ég gekk til hans og ætlaði að taka
bréfin mín. En mér til mikillar skelfingar
sá ég að hönd min fór beint í gegnum
FLUGMAÐURINN
SEM SNERI AFTUR
Þetta gerðist í 1. og 2. hluta: Raymond Hinchcliffe
flugstjóri og milljónaerfinginn Elsie Mackay
leggja af stað f lítilli flugvél yfir Atlantshafið. Þau
sjást aldrei framar á lífi en Hinchcliffe birtist vini
sínum, Henderson, og kemur fram í andaglasi hjá
gamalli konu, Beatrice Eari. Rithöfundurinn
Arthur Conan Doyle lætur málið til sín taka og
pantar miðilsfund hjá þekktasta miðli Breta,
Eileen Garrett.
Þar kemur Hinchcliffe líka fram og færir konu
sinni, Emilie, ýmsar sannanir um tilvist sína. M.a.
segir hann að hún fái þau 10.000 pund sem Elsie
Mackay hafði lofað honum í líftryggingu, en faðir
hennar, Inchcape lávarður, hafði neitað að greiða,
síðasta dag júlímánaðar. Þrátt fyrir mikla tvísýnu
reynist hann sannspár um það og varar enn
fremur við öðru slysi, hinu dularfulla hvarfi
viðskiptajöfursins og milljónamæringsins
Lowensteins úr flugvél sinni yfir Ermarsundi.
bréfin eins og þau væru bara loft. Ég
skildi þetta ekki.
Á þessu andartaki kom gamall
kunningi Lowensteins, John Rosmarck,
inn í anddyrið.
— Ég ætlaði að rétta honum höndina,
sagði Lowenstein. Hann hikaði andartak
svo yppti hann öxlum og sagði við dyra-
vörðinn: — Það er kalt hérna. Einhver
dragsúgur . . . Hafið þið frétt nokkuð af
Lowenstein?
Nú hættir miðillinn skriftum,
blýanturinn fellur úr hendi hennar. Hún
dregur djúpt að sér andann og hallar sér
þreytulega aftur á bak I stólnum . . .
Sambandið við anda Lowensteins er
slitið.
Þessi skilaboð að handan komu frú
Taylor ekkert á óvart. „Snúran” sem
tengir sálina við líkamann kemur fram í
þúsundum svona lýsinga. Sömuleiðis að
fólk sjái lifshlaup sitt fyrir sér eins og
bíómynd í andarslitrunum. Það kemur
frú Taylor heldur ekki á óvart hversu
bágt Lowenstein á með að átta sig á
18 Víkan 19. tbl.