Vikan - 08.05.1980, Qupperneq 19
Flugmaðurinn sem
sneri aftur
þessu nýja ástandi sínu. Fólk sem ferst á
voveiflegan hátt þarf oft langan tíma til
að átta sig á því að það er dáið. Það
skýrir líka hvers vegna Hinchcliffe hafði
ekki orðið var við hann fyrir handan.
Við rannsóknir minar á dauða
Lowensteins fann ég blöðin sem
miðillinn hafði skrifað hina ósjálfráðu
skrift sína á. Ég fann líka athugasemdir
sem Conan Doyle og frú Taylor höfðu
skrifað eftir fundinn. Þau höfðu talað
við dyravörðinn á Claridge og hann
mundi eftir að hafa flett í gegnum bréf
Lowensteins. Og John Rosmarck
staðfesti að hann hefði verið á Claridge
1. júlí og mundi eftir að hann hefði haft
þá einkennilegu tilfinningu að vinur
hans Lowenstein stæði skyndilega fyrir
framan hann. — Sennilega hefur þetta
bara verið einhver skynvilla, sagði hann.
15. júli 1928, tveimur vikum eftir
hvarf Lowensteins, fiskaði áhöfn bresks
flutningaskips nakið og torkennilegt
karlmannslik upp úr sjónum.
Líkið bar þó samskonar armbandsúr
og Alfred Lowenstein og tannlæknirinn
hans þekkti hann á tönnunum. En það
var ekki hægt að skera úr því hvort hann
hefði drukknað eða látist við það að
skella í sjóinn.
Mánuðir liðu.
Emilie Hinchcliffe þurfti ekki lengur
að hafa áhyggjur af fjárhag sinum.
10.000 pundin frá Inchcape lávarði
tryggðu lífsafkomu hennar. Hún fór oft
á miðilsfund hjá Eileen Garrett hjá
sálarrannsóknarfélaginu í London. Og
Emilie var svo viss um að þar kæmist
hún í samband við mann sinn að hún
hélt fyrirlestra um þessi efni. Þeir nutu
mikillar athygli.
Árið 1929 gekk í garð og tími stóru
loftfaranna rann upp. Þeirra var
framtíðin, þessara risafugla sem með
leik gátu klofið loftin blá með 50 farþega
eða fleiri um borð. Þýska loftfarið
Zeppelin LZ 126 var nýbúið að fara yfir
NorðurAtlantshafið, ítalinn Nobile
hafði flogið yfir norðurpólinn og
Zeppelin LZ 127 fór í 55 daga hnattferð.
Á Bretlandi var nýja risaloftfarið R
101 í smíðum, stærsta, öruggasta og
glæstasta loftfar allra tíma. Það var
rúmlega 240 metra langt með borðsal
fyrir 50 manns, danssal, reyksal og
glæsilega klefa eins og lystiskip.
R 101 átti að reisa við álitið á breska
flugvélaiðnaðinum, sem hafði orðið að
láta deigan síga undan Þjóðverjum, og
sýna heiminum að enn bar ljóma á
breska heimsveldið.
Ferðaáætlunin var á þessa leið: Frá
London til Kairó á tveimur dögum,
Kanada á þremur dögum, Indland á
fimm dögum, og þaðan til Ástralíu á tíu
dögum. Enginn hafði þorað að láta sig
dreyma um slíka ferð. En fyrst átti að
fara til Indlands og var fullbókað í þá
ferð löngu fyrir reynsluflug.
Einn morguninn varð Eileen Garrett
fyrir hræðilegri reynslu.
Hún var á einni af sínum venjulegu
skemmtigöngum um Hyde Park garðinn
þegar henni fannst hún sjá risaloftfar á
flugi. En skyndilega sá hún hvernig
eldur gaus upp í einum klefanum og
þykkir reykjarmekkir teygðu sig til
himins. Síðan seig loftfarið hægt niður
og hvarf í skjóli við húsin.
Eileen Garrett varð gripin skelfingu
og flýtti sér heim. Hún kveikti á út-
varpinu og bjóst við einhverri slysa-
tilkynningu. En ekkert slíkt gerðist.
Seinast hringdi Eileen Garrett til að
spyrjast fyrir um ferðir loftfara. En
þeirra var ekki von, R 100 og systurfarið
R 101 voru enn ekki orðin flugfær.
Annaðhvort var þetta skynvilla hjá
Eileen Garrett eða þá að hún hafði séð
fyrir óorðið slys eins og kom fyrir í
sambandi við dauða manns hennar.
Skömmu seinna kom Hinchcliffe
fram á miðilsfundi með nýja viðvörun:
— Það skeður nýtt slys . . . Loftfarið
þolir ekki hleðsluna. Ég vil ekki að
Johnston verði fyrir sömu örlögum og
ég ... hann var vinur minn ... þeir ættu
að fresta reynslufluginu ...
Johnston var fyrrverandi stríðsfélagi
Hinchcliffes og hafði verið ráðinn sem
loftsiglingafræðingur í fyrstu ferð loft-
farsinsR 101 til Indlands.
Emilie hikaði. Átti hún að vara hann
við? Johnston mundi hlæja að henni.
Hún bað Conan Doyle um ráð. Hann
fór með henni til Johnstons. Hann
hlustaði þolinmóður á hinn fræga
rithöfund og þakkaði fyrir ráðið.
— Hafið engar áhyggjur, sagði hann.
— Við munum gæta fyllstu varúðar.
Við tökum ekki nokkra einustu áhættu.
Því miður var þetta ekki allur
sannleikurinn því að ótal gallar komu
fram hjá loftfarinu R 101 fyrir reynslu-
flugið. Það var enn ekki fullbúið tækni-
lega séð.
En stjórnin, sem þurfti á stjórnmála-
legri auglýsingu að halda, lagði hart að
viðkomandi aðilum að hraða reynslu-
fluginu.
Einn sá allra ákafasti var Thomson
lávarður, flugmálaráðherra. Hann var
55 ára gamall og ókvæntur. Og hann lét
sig dreyma um að verða aðstoðar-
konungur á Indlandi. Þess vegna ætlaði
hann sjálfur með í reynsluflugið. Það
átti aðaukaáálit hans.
7. júlí 1930 lést sir Arthur Conan
Doyle.
Maðurinn sem hafði helgað síðustu ár
Hinn látni sagði: Ég
horfði á líkama
minn í sjónum.
Þriðji hluti
Tveimur vikum eftir
hvarf Lowensteins
fiskaði áhöfn bresks
f lutningaskips nakið
og torkennilegt
karlmannslík upp úr
sjónum.
lífs síns sálarrannsóknarstörfum var
dáinn. Og brátt lét hann líka vita af sér á
miðilsfundi eins og þeir Hinchcliffe og
Lowenstein.
Reynsluflug R 101 til Indlands var
ákveðið þann 4. október 1930. Viku
áður var Eileen Garrett stödd i kvöld-
verðarboði í London ásamt sir Sefton
Brancker, fyrrverandi félaga
Hinchcliffes. Hann hafði á sínum tíma
gegnt háu embætti í flugmálaráðuneyt-
inu. Eileen sagði honum frá sýn sinni og
varnaðarorðum Hinchcliffes.
Sir Sefton þrýsti einglyrninu betur að
auga sér og hló taugaóstyrkur.
— Og um hvaða loftfar haldið þér að
sé að ræða?
— R 101, svaraði Eileen.
— Það á að fljúga til Indlands með
mig og Thomson lávarð um borð.
Vonandi hefur yður bara dreymt illa.
— Já, það væri óskandi, sagði Eileen.
— Erekkihægtaðfrestaþessuflugi?
— Nei, þetta er allt saman fast-
ákveðið, svaraði Brancker. — Þvi
verður ekki breytt.
4. október 1930. Allt er tilbúið fyrir
flugið. Veðurspáin veldur mönnum
nokkrum áhyggjum. Lægð yfir lrlandi.
Skýjað. Rigning og 6 vindstig. Öll önnur
skilyrði eru þó góð, það er ekki hægt að
fresta fluginu.
Klukkan 19.34 leggur loftfarið af stað
frá Cardington og hefur sig til skýja.
Áhorfendur fagna ákaft á meðan það
hverfur hægt úr sjónmáli.
Á sömu stundu situr Eileen Garrett í
stofunni heima hjá sér ásamt vinkonu
sinni, Beatrice Earl. Hún reynir að ná
sambandi við Hinchcliffe.
Þær þurftu heldur ekki lengi að biða.
„Hinch” kemur skilaboðum til þeirra
með ósjálfráðri skrift, miðinn er enn til.
Þau eru ekki löng, aðeins tvær
setningar:
Það fer að hvessa. Nú getur ekkert
bjargað þeim nema kraftaverk.
„Það skeður nýtt
slys: Loftfarið þolir
ekki hleðsluna . . .
þeir ættu að fresta
reynslufluginu . . ."
Skop
\\i //
X
Bulls
19. tbl. Vikan 19