Vikan - 08.05.1980, Page 29
18. Súlnaberg á Akureyri
Einkunnir
nokkurra veitingahúsa
Marg- feldi Saga Loft- leiðir
Matur X5 8 6
Þjónusta X2 9 6
Vínlisti XI 6 6
Umhverfi X2 7 7
Samtals X10 78 62
Vegin meðaleinkunn Meðalverð aðal- rétta i krónum: 8 '8.500 6 8.300
Holt Naust Hornið Laugaás
9 4 6 7
7 9 8 6
6 4 X X
7 9 8 7
79 Q 60 62 6 61
O 8.100 u 8.000 3.600 u 3.600
Versalir Skútan Stillholt (Akranesi) Súlnaberg (Akureyri)
7 5 7 2
8 (II 6 X
7 X X X
8 6 8 5
74 7 39 4 63 6 20 O
/ 6.900 T 4.100 4.100 z 4,300
laust. Rauðkál úr glasi var væmið á
bragðið. Sýrð gúrkan var í lagi sem fyrr
segir. Blandaða dósagrænmetið var
þrælsoðið og viðbjóðslegt. Brúnuðu
kartöflurnar voru i grautarformi. Hin
alræmda, islenska framleiðsla, jarðar-
berjasulta, kórónaði sköpunarverkið.
Verðið var 2.980 krónur.
Grillaðar lambakótilettur
Ekki var ástandið betra í grillinu.
Þaðan bárust okkur mjög svo feitar og
ólögulegar „glóðarsteiktar lamba-
kótilettur með kryddsmjöri, hrásalati og
frönskum kartöflum". Þær jóðluðu i
feiti, auk sinnar eigin feiti. Krydd-
smjörið var sæmilegt, en ákaflega litið
kryddað. Hrásalatið drukknaði i allt of
mikilli og griðarlega væminni sósu.
Frönsku kartöflurnar voru bæði of
saltaðar og of steiktar. Verðið var 3.530
krónur.
Hamborgari
Meira að segja hamborgari staðarins
var þurr og leiðinlegur á bragðið.
Frönsku kartöflurnar voru illa
meðhöndlaðar sem fyrr segir. Og
tómatsósan var disæt, innlend fram-
leiðsla. Verðið var 990 krónur fyrir utan
sósu og kartöflur, en 1.890 krónur með
þeint.
Meðalverð tveggja rétta máltiðar af
matseðli dagsins var 3.100 krónur og
þriggja rétta máltíðar 3.800 krónur.
Meðalverð forrétta, súpa og eggjarétta á
fastaseðlinum var 2.000 krónur,
aðalrétta 4.300 krónur og eftirrétta 700
krónur. Þrírétta máltið af fastaseðli, án
kaffis, ætti þvi að kosta um 7.000
krónur,
Á reikningnum var bara ein heildar-
tala. Ef einstakir liðir hafa verið rétt
reiknaðir. kostar kaffibolli eftir mat
heilar 3.630 krónur. Ef hann kostar
minna, hefur Súlnaberg reiknað verð
máltiðarinnar mjög svo gróflega sér I
hag, umfram það sem stendur á
matseðli. Og eru þau verð nógu há fyrir.
þótt ekki sé á þau smurt.
Súlnaberg er I verðflokki með
Skrínunni, Aski og Halta hananum i
Reykjavik og mun dýrari en miklu betri
staðir á borð við Brauðbæ, Hornið og
Laugaás, svo ekki sé talað um hina
ódýru staði. Múlak^ffi og Matstofu
Austurbæjar.
Súlnaberg fær tvo I einkunn fyrir
matreiðslu og fimm i einkunn fyrir
umhverfi og andrúmsloft. Vegin meðal-
einkunn matstofunnar eru tveir. Að fara
i Súlnaberg var eins og lenda i klóm
ræningja. Jónas Kristjánsson
í nœstu Viku:
Bautinn
á Akureyri
19. tbl. Vikan 29