Vikan - 08.05.1980, Blaðsíða 31
Popp
Þorgeir
Astvaldsson
DONNA SUMMER:
Hin eina sanna diskódrottning
„Guð gaf mér diskó," segir Donna
Summer og engin furða því dans- og
diskófárið hefur fært henni fé og frægð
svo um munar. Frami hennar hefur
verið skjótur og leiðin á toppinn greið-
fær. Ekki eru mörg ár siðan hún var alls-
endis óþekkt söngkona í Þýskalandi og
hafði þó heLst unnið sér það til frægðar
að taka þátt í uppfærslu á söngleiknum
Hárið þar í landi. Hún vakti fyrst
verulega athvgli þegar hún söng eða öllu
heldur stundi lagið Lxive to love you inn
á plötu. Það rauk beint á topp helstu
vinsældalista og Donna komst í sviðs-
Ijósið. Fleiri lög fylgdu í kjölfarið og allt
fór á sömu leið — þetta var á árunum
'15-11 jregar diskómúsikin var í hröðum
uppgangi. Það voru kannski fremur þeir
sem að baki Donnu stóðu sem skópu
vinsældir laga hennar heldur en hún
sjálf — menn sem sömdu lög, útsettu og
gæddu sérstöku hljómfalli i anda dans-
og diskótónlistar. Koma margir þar við
sögu, m.a. lslendingur einn, Þórir
Baldursson, sem leikur og útsetur á
fyrstu plötum Donnu.
Sá er öðrum fremur hefur staðið að
baki velgengni Donnu heitir Giorgio
Moroder. Hann þykir snjall upptöku-
maður og hefur auk þess samið mörg
þekktustu lög hennar (oft ásamt
drottningunni sjálfri og Peter Bellotte).
Það er ekki hægt að segja að þær
lagasmíðar séu margbrotnar en engu að
síður fallið í mjög góðan jarðveg í
flutningi Donnu og þær orðið mesta
söluvara diskótónlistarinnar.
Donna Summer sló fyrst i gegn í
Evrópu en eftir að Bandaríkjamenn tóku
henni opnum örmum opnuðust
flóðgáttir frægðar og frama. Hún er
fastagestur á helstu vinsældalistum —
hefur tekið þátt i kvikmyndum með
þokkalegunt árangri og hlotnast mörg
æðstu verðlaun dægurtónlistarinnar, t.d.
Grammy-verðlaunin á síðasta ári sem
besta poppsöngkonan o.s.frv.
Donna er ekki aðeins frambærileg
söngkona, hún er allra kvenna friðust og
víst er að útlit hennar hefur ekki spillt
fyrir henni á framabrautinni. Hún er
ótvirætt hin eina sanna diskódrottning
— kom fram i sviðsljósið á réttum tíma
Donna í heimahúsum. Ósköp
venjuleg og hæglát stúlka.
og það gerir oft gæfumuninn. Svo er að
sjá hvernig henni reiðir af þegar diskó-
aldan er gengin yfir.
19. tbl. Vtkan 31