Vikan - 08.05.1980, Qupperneq 38
Vikan og Félag húsgagna- og innanhússarkitekta
og vöruviöskipti hafa ýtt undir þróun til
aukins þrifnaðar og hollustuhátta í
meðferð og vinnslu hráefnis og hefur
hraðfrystiiðnaðurinn hér á landi tekið
stórstígum framförum á síðari árum,
m.a. vegna kröfu um betri fiskafurðir á
Bandaríkjamarkað.
Lög, reglugerðir og samningar aðila
vinnumarkaðarins hafa reynt að tryggja
öryggi og góðan aðbúnað á
vinnustöðum en það dugar skammt
nema til komi veruleg almenn
umræða, upplýsingar og þekking alls
þorra fólks á því hvernig gera skuli
umhverfið þannig úr garði að ekki
einasta sé það hættulaust og spilli ekki
heilsu, heldur sé það hannað með tilliti
til þess að stuðla að almennri velliðan
fólksins sem þar vinnur.
Við tslendingar þykjum byggja stór
og íburðarmikil hús og gerum miklar
kröfur til gæða híbýla okkar, sem
vafalaust helgast að einhverju leyti af
köldu loftslagi og löngum vetrum. En
þegar þess er gætt að mörg hver verjum
við meira en helmingi vökutíma okkar
á vinnustað þá er eðlilegt að athyglin
beinist að því umhverfi og samsvarandi
gæðakröfur verði gerðar til vinnu-
umhverfis og heimahúsnæðis, frístunda-
eða annars umhverfis.
Vinnuumhverfi merkir hér alla þá
samverkandi þætti í umhverfi staðarins
sem hafa áhrif á líðan og möguleika
starfsfólksins til áhrifaríkra vinnu-
bragða, s.s. lýsing, hiti, loftræsting,
hávaði, litir, innréttingar. Hönnun allra
þessara þátta ásamt formi rýmisins og
hlutföllum, innréttingum og áferð efna
sem notuð eru, skipta sköpum um það
hvort viðkomandi umhverfi nær því að
geta talist manneskjulegur vinnustaður
sem stuðlar að fyrrgreindum
markmiðum eða ekki. Skipulag og
hönnun vinnustaða er auk þess oft
flókin aðgerð og krefst nákvæmrar skil-
greiningar á þeim athöfnum sem fram
eiga að fara og miðast m.a. við að
auðvelda samskipti innbyrðis milli verk-
þátta og að ákvarðantaka eða árangur
verks nái fram að ganga á réttum stað á
réttum tíma. Húsgögn og innréttingar
verður að vanda vel og hönnun þeirra að
miðast við hvernig á að nota þær. Að
sjálfsögðu skiptir miklu að hæð vinnu-
borða sé góð og að vinnustólar sem
menn sitja í langtímum saman stuðli að
réttri og afslappaðri stellingu líkamans.
Sama máli gegnir um staðsetningu tækja
og annars búnaðar.
Litir hafa ákveðnu hlutverki að gegna
jafnframt þvi að vera til augnayndis.
Gott litaval, í samspili við áferð þeirra
efna sem notuð eru, getur haft gildi til
þess að einfalda umhverfið og til að
auka áhrif lýsingar, til að koma í veg
fyrir glampa í augun, auka á viðbragðs-
skyn starfsfólksins og getur þar með
dregið verulega úr slysahættu. Litir geta
líka stuðlað að þrifnaði og hafa auk þess
mikil áhrif á persónulega og sálræna
38 Vikan 19- tbl.
liðan fólks. Þó erfitt sé að skilgreina
almennt þá merkingu sem felst í orðinu
„karakter” staðarins þarf hann eigi að
síður að vera í samræmi við tilgang hans
og litir, form og áferðir skipta þar
meginmáli.
Lýsing þarf að vera almenn og best
þar sem meginstarfið fer fram. Einnig er
mikilvægt að jafnvægi sé á milli styrk-
leika raflýsingar og dagsbirtu einkum í
námunda við glugga. Sé þess ekki gætt
virkar raflýsing að degi til léleg í saman-
burði við birtuna úti fyrir. Góð birta og
knnnáttusamleg hönnun lýsingar er
mikilvægur þáttur í heilsuvernd og
öryggi gegn slysum.
Hávaði hefur aukist verulega með
tækniþróun og stórvirkum vélum
loft” vinnustaða, auk þeirra sem að
framan greinir, en sem erfitt eða óæski-
legt er að setja við mælistiku eða gera
lög um. Þar má nefna fagurt útsýni,
lifandi plöntur, vel valin listaverk,
persónulega muni starfsfólks, s.s. blóma-
vasa, myndir, sem allt getur stuðlað að
heimilislegum svip og góðum starfsanda
á vinnustað. Miklar framfarir hafa orðið
á siðari árum i hönnun iðnaðar-
húsnæðis, skrifstofubygginga og verk-
smiðja og eru nú víða gerðar sams konar
kröfur um þess háttar umhverfi sem um
ibúðarhús, opinberar byggingar og
umhverfi þeirra. Þar má nefna t.d.
Bretland. Þessar nýju reglugerðir hafa
hvatt arkitekta og hönnuði til skapandi
vinnubragða, minni einhæfni og fegurri
formsköpunar, bæði við hönnun þessara
tegunda mannvirkja og alls
umhverfisins í tengslum við þau,
stöðuvötn hafa verið búin til, akrar,
kjarr og hraun vernduð og fleira mætti
telja.
Hér á landi þarf að verða mikil hugar-
farsbreyting allra sem um þessi mál
fjalla á þýðingu umhverfisins, hve afger-
and þátt það á í að móta okkur, viðhorf
okkar og lífshætti og hve miklu það
ræður um almenna líðan fólks og
lifsinnihald. Þegar þess er jafnframt
gætt hve dýrt er að breyta því umhverfi
sem á annað borð hefur verið búið til,
má öilum vera Ijós nauðsyn þess að
vanda vel það umhverfi sem við erum að
móta í dag. □
Reynt er að
tengja skrif-
stofur vinnslu-
sölum með þvi
að nota
grænan lit
bæði á teppi
og hurðir.
Innréttingar
eru hannaðar
af Teiknistof-
unni Garða-
stræti 17, en
vinnuborð og
stólar á skrif-
stofum eru
eftir Pétur B.
Lúthersson hús-
gagnaarkitekt.
nútimans. Á mannmörgum vinnu-
stöðum eru hljóð þýðingarmikið atriði
og krefjast oft mikillar nákvæmni ef
takast á að koma i veg fyrir heilsutjón
af völdum hávaða. Jafnvel lág hljóð geta
valdið ónæði, meðalhá hljóð framkallað
taugatruflun og líkamlega þreytu og
mjög há hljóð í langan tíma orsakað
varanlegan heyrnarmissi. Sýnt hefur
verið fram á að sé verulega dregið úr
hávaða eykst að sama skapi vellíðan
fólks og aukning verður á vinnu-
afköstum. Hljóðdeyfing er m.a. gerð
með notkun hljóðeinangrunar í
veggjum, skilrúmum, leiðsluþróm og
með vali efna og áferða.
Ýmsir aðrir þættir geta haft mikil
áhrif á hvernig til tekst um „andrúms-