Vikan - 08.05.1980, Side 46
Fjölskyldumál — Guðfinna Eydal
AÐ SLÁ
BÖRN
Þann 1. júlí 1979 gengu í gildi ný lög í
Svíþjóð þess efnis að foreldrum er
bannað að slá börn sín. 1 því tilliti urðu
börn jafnrétthá og fullorðnir, þar sem
það hefur varðað við lög ef fullorðnir
ráðast hver á annan og slá. Þar sem
fullorðnir hafa verndað hver annan gegn
líkamlegu ofbeldi fannst löggjafar-
valdinu rétt að verja börn einnig
gagnvart árásum fullorðinna.
Mörgum hefur fundist hálfbroslegt að
það þurfi að setja lög til þess að verja
börn gegn barsmíðum og heyrst hefur að
flestu geti Svíar fundið upp á til að vera
öðruvísi en aðrir. Mörgum finnst einnig
að það sé ekki svo hættulegt að slá börn,
og nefna gjarnan í því sambandi að þessi
eða hinn eða viðkomandi sjálfur hafi
verið sleginn sem barn, án þess að
skaðast af því. 1 því sambandi gerir fólk
gjarnan greinarmun á því að slá börn
fast svo að þau finni til eða slá þau laust
á fingurna eða í rassinn, og nefnir að það
sé oft eina leiðin til þess að fá börn til að
hlýða að sláþau.
Því hefur oft verið haldið fram að
börn séu ekki slegin á íslandi og að
barsmíðar hafi aldrei tíðkast hér sem
uppeldisaðferð. Þetta er hins vegar ekki
rétt þótt ekki séu til neinar verulegar
rannsóknir eða opinberar skýrslur á
tíðni né eðli barsmíða hér á landi. Það
kemur í Ijós í meðhöndlunarstarfi við
foreldra að þeir gripa oft til barsmíða
þegar öll önnur ráð þrjóta. Hvort
barsmíðar koma oftar eða sjaldnar fyrir
á tslandi en í öðrum löndum er ef til vill
ekki svo áhugavert en aðalatriðið er að
það tíðkast verulega sem uppeldisaðferð
hér aðbörnséu slegin.
Hyggið þér
á ferðalag
erlendis
interRent bílaleigan býður yður fulltryggöan bíl á
næstum hvaða flugvelli erlendis sem er - nýja bíla
af þeirri stærð, sem hentar yöur og fjölskyldu yóar.
Vér útvegum yður afslátt - og jafnvel er leiguupp-
hæðin lægri (ekkert kílómetragjald) en þér þurfið
að greiða fyrir flutning á yðar bíl með skipi - auk
þess hafið þér yðar bíl að brottfarardegi hér heima.
Verói óhapp, tryggir interRent yður strax annan bíl,
í hvaða landi sem þér kunnið að vera staddur í.
interRent er stærsta bílaleiga Evrópu, vér veitum
yður fúslega allar upplýsingar.
interRent
interRent á íslandi / Bílaleiga Akureyrar
Reykjavík - Skeifan 9 - Símar: 86915, 31615
Akureyri -Tryggvabr. 14 - Símar: 21715, 23515
í Svíþjóð kom í ljós að almenningur
hafði skipt mikið um skoðun á réttmæti
barsmíða á ca tiu ára timabili. Árið 1965
voiu það um 53% sem álitu að
það væri nauðsynlegt í uppeldi að slá
börn,á móti 26% árið 1978.
Þegar öll ráð þrjóta
Fæstir foreldrar vilja slá börn og
flestir vita innst inni að það er slæm
uppeldisaðferð. Margir slá hins vegar og
fá mikla sektarkennd eða samviskubit á
eftir. I slíkum tilvikum er algengt að for-
eldrar segi að þeir hafi verið búnir að
reyna öll ráð sem þeir kunna, t.d. að tala
barnið til, æsa sig upp við það, öskra á
það, hóta öllu illu og siðast að slá. Oft
gerast þessir hlutir þegar foreldrarnir eru
sjálfir illa upplagðir eða þreyttir. Það
finna börn fljótt inn á og reyna gjarnan
að ögra foreldrunum með þvi að gera
þeim allt á móti skapi. Börn geta rifist,
lamið foreldrana, sagt við þá leiðinlega
hluti, neitað að gera allt sem þau eru
beðin um. Við þetta æsist leikurinn
gjarnan og getur endað með því að
slegið er. Viðvíkjandi minni börnum á
mótþróaskeiði geta foreldrar oft misst
þolinmæðina þegar þau segja nei við
öllu. í þeim tilvikum geta foreldrar sagt
að þeir skuli sýna börnunum fram á-bver
ræður og kenna þeim að segja.já.
Það er staðreynd að í mörgum
aðstæðum standa foreldrar ráðþrota og
verða svo reiðir og uppgefnir að höndin
verður eina ráðið sem hægt er að grípa
til, eins og t.d. þegar börn vilja aldrei
fara að sofa á kvöldin, heimta allt annan
mat en boðið er upp á, láta „illa” þegar
gestir eru, eru ómöguleg í búðum o.s.frv.
Það getur verið skiljanlegt að gripið sé til
þess að slá en eitt er víst, að í flestum
tilvikum skaðast börn á því. Mörg dæmi
vitna um að börn sem hafa verið slegin i
æsku þjást af hræðslu og sektarkennd
seinna meir. I mörgum þessum tilvikum
hefur ekki verið um að ræða annað en
það sem margir kalla að dangla í eða slá
lauslega. Einnig er hætta á því að börn
sem alast upp við þá uppeldisaðferð að
allt sé í lagi að slá geri slíkt hið sama sjálf
þegar þau verða einhvern timann
foreldrar.
Einn tilgangur með þvi að setja inn í
sænska löggjöf að: „börn megi ekki
verða fyrir líkamlegri hegningu né
annarri niðurlægjandi meðferð” er
einmitt sá að reyna að auka á meðvitund
foreldra og bama um að uppeldi og það
að slá börn eru tveir óskyldir hlutir og að
það sé mikilvægt að reyna að finna aðrar
leiðir til að leysa úr árekstrum.
46 Vlkan 19. tbl.