Vikan - 18.09.1980, Qupperneq 26
I
Alþýðutónlist — veggspjald
Akureyrarsándið er orðið
nokkuð áberandi í tónlistar-
lífinu. Hljómsveitin HVER frá
Akureyri er nefnilega einstök i
sinni röð. Tónlistin sem þeir
leika getur kallast soul, funk
eða black music. í anda
þessarar tónlistarstefnu fengu
félagar i hljómsveitinni HVER
svörtu söngkonuna Susan
Causey til að syngja með sér í
sumar.
Upphaflega var hljómsveitin
HVER skólahljómsveit,
stofnuð af nokkrum náms-
mönnum við Menntaskólann á
Akureyri árið 1976. Brátt var
tekið til við að leika á sveita-
böllum og fast form komst á
hljómsveitina. Eftir annan
veturinn var hljóðfæra-
leikaraskipan orðin föst:
Baldur Pétursson leikur á
hljómborð, Hilmar Þór
Hilmarsson á gitar, Leifur
Hallgrímsson á bassa,
Steingrímur Óli Sigurðarson á
trommur og Þórhallur Vogar á
gítar. Hilmar Þór syngur, auk
þess að leika á gítar.
Soul og funk tónlist hefur
lítt verið leikin af íslenskum
hljómsveitum, en þess háttar
tónlist er í mestu uppáhaldi hjá
HVER. Þeir félagar segjast
einkum hlusta á plötur með
George Duke, Spyro Gyra,
Earth, Wind and Fire, Brother
Johnson, Chaka Khan, Bob
Jones, Jakob Magnússyni og
Mezzoforte.
Funk, soul og jass rock gerir
kröfur til hljómlistarmannsins
um kunnáttu og leikni, segja
þeir HVER-menn. Til þess að
tjá tilfinningar sínar eiga
hljómlistarmenn að nota
hljóðfærin sem mest en töluð
orð sem minnst.
„Það er ekki hægt að : fela
hljóðfæraleikinn bak við
sungin orð, það er ekki tónlist
heldur ljóðlist,” segja félagar í
hljómsveitinni HVER. Þetta
vilja þeir að svonefndir
„alþýðutónlistarmenn” hafi í
huga.
Sjálfir segjast þeir vera
alþýðuhljómsveit, það er að
segja HVER hafnar tónlist
með vélvæddum diskó-stimpli
og leggur i staðinn áherslu á
leikni í hljóðfæraleik og góðan
söng. 1 black-music er söngur
eða söngkona eitt af aðal-
atriðunum.
Þrjár söngkonur bættust við
hljómsveitina vorið 1977, þær
Erna, Eva og Erna. Góður
andi ríkti í hljómsveitinni og
tónlistin tók miklum framför-
um. HVER ferðaðist víða,
kom fram á útisamkomunni
„Ein með öllu,” á Laugahátíð
og fjölmörgum sveitaböllum.
Á árinu 1978 var gerð
sjónvarpsmynd með átt-
menningunum í HVER.
Tveggja-laga plata sem út kom
fyrir ári var gerð á þessum
tíma.
Stöllurnar þrjár hættu
haustið 1978 að syngja með
HVER en vorið 1979 var
ráðin ung söngkona,
Arnheiður Ingimundardóttir
frá Húsavík. Hljómsveitin
ferðaðist um landið og kom
víða fram, en síðan var haldið
til Færeyja á miðju sumri.
HVER spilaði um borð í
Smyrli á leiðinni yfir hafið bláa
og síðan á skemmtistöðum í
Þórshöfn og Klakksvik.
Fram að þessum tíma höfðu
meðlimir hljómsveitarinnar
haft það af að stunda ekki aðra
vinnu og draga fram lífið af
rýrum tekjum spila-
mennskunnar. Arnheiður
hætti með HVER um haustið
og hélt áfram skólanámi, sem
og sumir aðrir hljómsveitar-
meðlimir.
Þórhallur, Baldur og Leifur
héldu til Bandaríkjanna þá um
haustið i því skyni að kynnast
tónlistarlífinu þar í landi, og
þeir höfðu einnig hugsað sér
að fá að fylgjast með
upptökum og flutningi
tónlistar ýmissa þarlendra
tónlistarmanna.
Þremenningarnir heimsóttu
helstu upptökustúdíó i New
York og Los Angeles og
kynntu sér vinnubrögð ýmissa
snillinga. Þeir segja að á
flestum stöðum hafi verið
augljóst að tónlistarmennirnir
lögðu sig alla fram i flutningi
og vinnslu efnis. Enda sé
árangurinn sá að alþýðutónlist
njóti viðurkenningar sem
atvinnugrein, fyrir utan að
vera vinsæk tónlistarform.
Leifur, Baldur og Þórhallur
léku á Íslendingahátíð i Los
Angeles og það var einnig í
Los Angeles sem þeir lögðu
drög að þvi að fá Susan
Causey hingað til lands í
sumar.
Susan kom til landsins í júní
síðastliðnum. Hún hefur
sungið með þekktum
bandarískum listamönnum,
svo sem Stevie Wonder,
Thelmu Houston, Arethu
Franklin og fleirum. Eftir
tveggja vikna æfingar hófu
HVER og Susan Causey að
leika á skemmtistöðum og enn
var ferðast um landið auk þess
að leika á Akureyri.
HVER lék í Árnesi um
verslunarmannahelgina, en
þar var sett landsmet i aðsókn
innanhúss, en áætlað var að
þarna á svæðinu hafi dvalist
um 5000 manns um þá helgi.
Susan Causey hélt til
Bandarikjanna um miðjan
september en hefur fullan hug
á að koma aftur til íslands og
syngja með HVER, eins og
fram kemur í viðtalinu við
hana hér á opnunni. HVER
áformar að gefa út plötu i
vetur en að öðru leyti er
framtiðin óráðin.
-jás
AfldAendur HVERS troflfylltu Klúbbinn I Reykjavik.
Lerfur (Grim) leikur funk-tónlist af lifi og sál.
26 Vlkan 38. tbl.