Vikan - 18.09.1980, Síða 36
Hnýtingar
Nokkrar verslanir í
Reykjavík eiga nokkuð gott
úrval af því sem þarf til
hnýtinga. Þar má nefna
verslunina íslenskur
heimilisiðnaður í Hafnar-
stræti, Handíð, Laugavegi
og verslunina Virku í
Árbæjarhverfi. Auk þess
er ekkert sem bannar að
nota alls kyns garn og
snæri til hnýtinga, én
útkomuna ábyrgjumst við
á VIKUNNI ekki. Hnýti-
garn er nefnilega svolítið
sérstakt.
VIKAN lagði leið sína í
eina þessara verslana, sem
leiðþeinandi okkar í þessu
blaði, Guðfinna Helga-
dóttir, er með en hún hefur
farið út á þá þraut að
versla mest með vörur til
hnýtinga og í bótasaum.
Hún sýndi okkur mikið
úrval ýmiss konar garns og
annars, sem notað er í
hnýtingar, en auk þess
hefur hún mikið af blöðum
og bókum um hnýtingar
uppi við sem hægt er að fá
keypt og er notað á
námskeiðum hennar. Hún
sagði að töluvert væri um
að fólk utan af landi
hringdi eða skrifaði eftir
blöðum og pantaði síðan
eftir þeim allt til hnýtinga,
Hún sendir í póstkröfu allt
það sem beðið er um úr
verslun hennar (Virku) og
sagði hún að fólk sem ekki
er alltaf statt í Reykjavík
kynni vel að meta það.
Hún sagði að mikill og
vaxandi áhugi væri á
hnýtingum, það sýndu bæði
viðskiptavinir og einnig sá
fjöldi sem sækti námskeið í
hnýtingum. Möguleikarnir
eru óendanlegir og það
sýnir hún best með því sem
hér birtist, en rétt er að
taka fram að flóknustu
hlutirnir eru ekki á færi
annarra en þeirra sem hafa
talsverða þjálfun. Hins
vegar sagði Guðfinna að
mjög fljótlegt væri að
hnýta, t.d. gæti verið miklu
fljótlegra að hnýta
gardínur en t.d. að hekla
þær. Aðalþolinmæðisverkið
er stundum að klippa niður
í verkið og setja upp. Hún
hefur þann háttinn á að
vefja endana ekki upp,
þegar hún hnýtir, eins og
víða er kennt og sagði að
þeir vildu oft flækjast
meira ef þeir væru vafðir
upp. Og svo vonum við að
lesendur Vikunnar hafi
bæði gagn og gaman af því
efni sem hér í þessum blað-
auka er, uppskriftum,
hollráðum og myndum af
hnútum.