Vikan - 27.11.1980, Blaðsíða 3
Margt smátt
í þessari Viku
ÚR
HANDRAÐ-
ANUM
„í myrkraklefanum reynir á frábæra
vandvirkni og nákvæmni. Vinnan þar er
erfið, og auk [Dess er hún óholl, þvi að oft
blandast loftið sýrum, sem geta valdið
svima. Taugaóstyrkur maður getur alls
ekki til lengdar fengist við neitt, sem að
ljósmyndun lýtur. Afburða ljósmyndari
verður sá einn, sem er listrænn.
duglegur og sjálfstæður i starfi.” (IJr
bókinni Starfsval (Hvað viltu verða?!
eftir Ólaf Gunnarsson, útg. Isafoldar-
prentsmiðja hf.. 1964.1
KristnifræOikennarinn: Hvað kom
fyrir konu Lots þegar hún leit idð?
Gáfnaljós bekkjarins: Hún
breyttístí natriumklórið.
— Góðan daginn, ég er kominn tíl að
stílla pianóið.
— Nú? Ég hef ekki sent eftír
neinum tílþess.
— Nei, herra minn, það voru
nágrannarnir sem gerðu það.
NAUT SJÁ EKKI RAUTT
Ýmsar rannsóknir hafa leitt í Ijós að
naut geta ekki aðgreint liti. Vissulega
hefur það sitt að segja að grái litar-
tónninn sem bolinn getur séð skeri sig úr
öðrum í umhverfinu, en þó er áhrifa-
meira að þú veiftr dulunni duglega. En
enginn tuddi sér rauða litinn, naut eru
litblind.
VAXTARVERKIR
Það er út í hött að svara ungu fólki sem
kvartar undan verkjum i fótum eða
annars staðar í likamanum: „Svona.
svona — þetta eru nú bara vaxtar-
verkir." Sannleikurinn er sá, að vöxtur
líkamans getur ekki valdið sársauka.
Viðvarandi verki má alla rekja til
einhverskonar slæmsku. Vaxtarverkir
eru ekki til.
sos
Alþjóðlega hjálparbeiðnin SOS þýðir
ekki „Save Our Souls" eða „Save Our
Ship” eins og sumir halda. SOS er ekki
skammstöfun á neinu. Þessi hjálpar-
beiðni var formlega tekin í notkun árið
1908 og varð fyrir valinu vegna þess að
það er auðvelt að muna hana og skilja
þrjú stutt, þrjú löng og þrjú stuttl.
Raunar eru þetta ekki einu sinni þrir
aðgreindir stafir. merkin á að senda i
heild. ekki hvern staf fyrir sig.
Þessi alþjóðlega hjálparbeiðni er þvi
skrifuð i einu lagi, SOS, ekki með
punktum á milli. Hana á að senda sem
hljóð- eða Ijósmerki, en ef nota skal
mælt mál á að nota alþjóðlega hjálpar-
beiðniorðið „Mayday”. Þetta orð var að
öllum líkindum valið vegna þess að það
hljómar líkt og m'aidez á frönsku. en
það merkir „hjálpið mér".
ÍRAN
Þeim skjátlast sem halda að Íran sé
„nýtt" nafn á landi sem áður nefndist
Persia. Innfæddir þar í landi hafa öldum
saman þekkt landið undir nafninu íran.
„Persía” var þara nafn sem útlendingar
gáfu landinu. Grikkir skirðu það eftir
einu af írönsku héruðunum (Parsl, sem
þeir áttu mikil viðskipti við fyrr á öldum.
iranir urðu á endanum þreyttir á að
heyra landið nefnt öðru nafni en þeir
höfðu sjálfir gefið því og létu á fjórða
áratug þessarar aldar boð út ganga um
að þeir myndu eftirleiðis ekki sinna öðru
nafni en Íran.
Orkusparnaður
Setji maður pott eða pönnu, sem er 20
sentimetrar í þvermál, á eldunarhellu
sem mælist 15 sentimetra í þvermál,
sóar maður orku. Enn meiri orkusóun
felst i þvi að nota of lítinn pott. Yfir 30
prósent eldunarorkunnar rjúka út í
veður og vind ef til dæmis pottur sem er
15 sentimetrar í þvermál er settur á
eldunarhellu sem er 18 sentimetrar í
þvermál.
Setjið þess vegna alltaf upp pott sem
er jafnstór hellunni. Þannig sparast orka
allra landsmanna og peningarnir þínir!
Morgunblaðið 5.11.1980.
Veitingastaöurinn Hlíðarendi:
Bókmenntakyiming og
tónlist undir borðum
Gaman vœri að vita hvort borðin eru svona há eða hvort
listamennirnir eru svona feimnir.
YWW
48. tbl. 42. árg. 27. nóv. 1980 Verð kr. 1500
GREINAR OG VIÐTÖL:
4 Vesturheimskrónika: kúrekastígvél til hátíðabrigða.
8 Hvað gera myntsafnarar?
18 Fúllega skilst fretkarl við öndina.
28 Þetta er andlegt stripptís.
42 Landið þitt í 8 þúsund uppsláttarorðum.
58 Þegar unglingar verða kvnþroska.
SÖGUR:
12 Ellefu dagar í snjó — framhaldssaga.
46 Sannleikurinn um Lisu — smás ga.
55 Synir snjóbreiðunnar — Willy Breinholst.
ÝMISLEGT:
2 Margt smátt.
22 Mest um fólk.
24 Grautur „gærdagsins” á krá horfins tíma.
33 Kökur.
49 Ómeletta í eldhúsi Vikunnar.
51 Draumar.
61 Myndasögur.
62 Heilabrot.
70 Pósturinn.
VIKAN. Utgofandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Sigurður Hreiðar Hreiflarsson. Blaflamonn: Anna Ólafsdóttir
Bjömsson, Borghildur Anna Jónsdóttir, Hrafnhildur Sveinsdóttir, Jón Asgeir Sigurflsson, Þórey
Einarsdóttir. Útiitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari: Ragnar Th. Sigurflsson.
RITSTJÓRN I SÍÐUMÚLA 23, sími 27022. AUGLÝSINGAR: Birna Kristjánsdóttir, sími 85320.
AFGREIÐSLA OG DREIFING í Þverholti 11, simi 27022. Pósthólf 533. Verfl í lausasölu 1500 kr.
Áskriftarverfl kr. 5000 pr. mónufl, kr. 15000 fyrir 13 tölublöfl ársfjórflungslega efla kr. 30.000 fyrir 26
blöfl háKsárslega. Áskriftarverfl greiflist fyrirfram, gjalddagar nóvember, febrúar, maí og ágúst
Áskrift i Reykjavík og Kópavogi greiðist mánaflarioga.
Um málefni neytenda er fjallafl í samráfli vifl Neytendasamtökin.
Forsíða
Jón Jóhanncsson bakaramcistari í
Kökuvali vann mikið starf fvrir lesemlur
Vikunnar er hann bjó til jólabaksturinn,
sem kynntur er frekar á átta litsíðum í
miðju blaðinu. Meðal þess sem Jón bjó
til var þessi laglega Vikuhöll — meö
fullfrágenginni lóð, eins og sagt er.
Ljósmynd Ragnar Th.
48. tbl. Vikan 3