Vikan


Vikan - 27.11.1980, Page 4

Vikan - 27.11.1980, Page 4
Texti: Ásgeir Hannes Ei Bouclé TASSO vegg- striginn fráokkurer auðveldur i ■>'] i 'j | ; j,. j 1 : í 5 . íuppsetningu sími 83500 Söngleikur og indíánasveit Við komuna til Oklahómafylkis rifjast upp fyrir Vikunni samnefndur söngleikur: Tjaldið rís og við áhorf- endum blasa hávaxnir kornakrar í gullinni morgunsól sléttunnar. Einsam- all kúreki syngur hástöfum um fegurð dagsins og áhorfendur hrifast með tóna- flóði Rodgers og Hammerstein. Oklahómafylki er þvi ekki lengur fábrotin sveit sem lengir saman þéttbýlar strendur Bandarikjanna á landabréfinu heldur dálitill heimur með eigin söngleik. Hvitir menn stigu liklega fyrst fæti á Oklahómagrundir árið 1540 þegar spánskir gullleitarmenn lögðu héraðið undir konung sinn. Fram að síðustu aldamótum var sveitin griðastaður fyrir rauðskinna sem reyndar höfðu búið þar um slóðir i ein fimmtán þúsund ár og veitt mammútdýr með tréspjótum. Skömmu fyrir aldamótin var svæðið opnað til ræktunar fyrir landnema og fólksstraumurinn lá um héraðið úr öllum áttum enda er það girnilegt fyrir akuryrkju og búpening. Seinna gaus svo blessuð olian úr jörðinni og fylkisbúar veltu sér upp úr peningum. Síðan hefur ríkt velmegun i Oklahóma og heima- menn haft vel til hnifs og skeiðar. Saga Steinbecks um Þrúgur reiðinnar er þó ntögnuð lýsing á örlögum smábænda sem flosnuðu upp vegna kreppunnar miklu í kringum 1930 og öxluðu skinnin i atvinnuleit vestur til Kaliforníu. Fljúgandi Spartverjar Tulsa er vingjarnleg sveitaborg sem minnti Vikuna einna helst á Borgames eða Selfoss þrátt fyrir nokkurn stærðarmun. Fylkisbúar kalla hana höfuðborg olíuvinnslunnar i heiminum og þar með hefur Persaflói þann sannleika á hreinu. Ýmsar þjónustu- greinar fyrir landbúnað standa sterkum fótum i borginni og klæðnaður heima- manna ber þess öll merki að stutt er yfir í sveitasæluna. Þar er og hlutfall jeppa og hálfkassabíla með hæsta móti en þau farartæki minna mjög á íslenskan ferða- máta. 1 bænum Henríettu rikir einnig „Veistu hvaó Ljóminn er Ijómandi góöur ” 4 Vikan 48. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.