Vikan - 27.11.1980, Page 7
Vesturheimskrónika
orrusta stóð um trúboðsstöðina Alamó i
borginni San Antóníó. Þar féll
þjóðsagnapersónan Davíð Krokkett sent
Walt okkar Disney hefur endurvakið
með hasarblöðum og ballöðusöng. Alls
munu sex fánar hafa blakt yfir fylkinu á
skömmum tíma. Þá er Texas frægasta
sögusvið i Vesturheimi fyrir skotglaða
kúreka og úilegumenn.
Vikan heimsækir skemmtigarðinn Sex
flögg og fær sér ný kúrekastigvél til
hátíðabrigða. Unt nóttina setur að henni
hroll því daginn eftir liggur leiðin aftur
til Nýju Jórvikur. Heimferðin er hafin.
Þaðer fallegra í Texas fyrir bragðið.
Rúsína í pylsuendann
New York andar köldu að vanda
þegar Vikan rennir i hlað á heimleið á
norðurhvelið. Af fyrirhyggjuleysi
gleymdi Vikan að bóka sæti til heima-
landsins og vegna ásóknar i hálfstopular
samgöngur við umheiminn sá hún frant
á fimm nótta bið í borginni. Tilhugsun
um slíka biðstöðu á þessum stað var
Vikunni um megn og því þáði hún
þakksamlega aðstoð frá starfsliði Flug-
leiða við að eyða biðtimanum á
sólvermdum baðsandi á Flórídaskaga.
Þannig hlaut hún óvænta uppbót á
vinsælum baðstað íslendinga og lagði af
stað strax um nóttina með áningu í
þrumuveðri í Atlantaborg. Þar gekk eitt
slagveðrið enn yfir Vikuna á heinta-
slóðum Carters forseta en hún kærði sig -
kollótta því sólargeislinn frá Flórida
svíkur engan þegar mest á reynir.
Miami er tæplega gleðiborg eða
skemmtistaður að hætti nátthrafna og
glaumverja. Frekar er borgin sniðin að
þörfum eldra fólks sem vill njóta veður-
sældar i sólskini án þátttöku í nætur-
iðnaðinum. Þá er vel séð fyrir þörfum
fjölskyldufólks í sumarleyfi og góður
staður fyrir börn að leik við ströndina.
Flugleiðir hafa sérstakan ræðismann á
Miami til að vera farþegum sinum til
halds og trausts i sólarleyfinu. Skipu-
lagðar eru ferðir á hefðbundna staði i
nágrenninu svo sem sædýrasöfnin sem
alls staðar njóta vinsælda. Þá er stutt I
Disneyheima sem er glæsilegt framhald
á Disneylandi vestursins. Hótelin sent
Islendingum standa til boða i hópferðunt
eru jafngóð og best verður á kosið.
. Vikan svaf sinar fintm nætur á
Konoverhóteli sem áður hét
Playboyhótel og var i eigu þess merki-
lega fyrirtækis. Þar eru góðir veitinga-
salir og skemmtiprógrömm ásamt
verslunum i kjallara en útifyrir er gott
næði til sóldýrkunar.
Vikan lét fara vel um sig á Flórida-
skaga og hélt heim á leið við svo búið og
hlupu engar snurður á heimferðina. I
Frihöfninni fengust hins vegar enga salt-
töflur þann daginn og aðeins ein tegund
af öli. Þeir verða að fara að t ■
herða sig þarna i Frihöfninni. k—i
ELECTROLJUX HRÆRIVÉLIN
ER FRAMLEIDD
EFTIRTILSÖGN HÚSMÆÐRA
í 112 ÞJÓÐLÖNDUM
Ef til vill ert þú ein þeirra!
Með því að fylgjast stöðugt með ábend-
ingum og kröfum notenda í áratugi hefur
Electrolux tekist að framleiða eina full-
komnustu hrærivél sem völ er á. Það eru
því engir nýgræðingar. sem nú senda frá
sér nýja gerð hrærivéla. Nýja gerðin er
með veggfestingu og bætir því enn við
kosti hinnar eldri.
Komdu í Vörumarkaðinn og kynnstu
Electrolux!
STARFSKYNNING
Hvernig er með
eftirlaunamálin?
Hafðu ekki svona hátt, Boggi, ég hey ri
ekkert í henni Sigrúnu Stcfánsdóttur.
Komdu Snati, mér er orðið kalt á
tánum.
48. tbl. Vikan 7