Vikan - 27.11.1980, Side 14
— Ég vil fara heim, snökti Trína. —
Ég vil ekki vera lengur i þessu óhugnan-
lega húsi!
Jennifer var henni hjartanlega
sammála.
Á endanum komust þau loks alla
leiðina inn. Börri komst ckki lengra en i
forsalinn og þau þurftu að halda honum
uppi því hann gat ekki staðið í fæturna.
— Ég vonaðist til að þurfa ekki að sjá
þetta bölvaða hreiður aftur. muldraði
hann ógreinilega því varir hans voru
stífar af kulda. — Bréfahólfin . . . þaðer
eitthvaðdularfullt aðgerasl hcr.
— Hvað ertu að segja? spurði
Rikarður.
Hann hristi höfuðið ringlaður. — Það
eru fleiri en við hérna. Í morgun þegar
ég . ..
- Já?
Börri skipti um skoðun. — Nei. mér
hlýtur að hafa missýnst.
Þau gáfusl upp þar sem það var
augljóst að hann ætlaði sér ekki aðsegja
meira. Trina sá lil þess að hann væri
lagður i rúm og fengi tesopa og litiðeitt
af mat. Lovisa hafði fundið niður
suðuvörur i kjallaranum. Ríkarður hafði
áhyggjur af Börra. Hann var hræddur
um aðekki væri hægt aðbjarga höndum
hans.
Það kom að þvi að honum var orðið
nógu heitt lil að hann gæti byrjað að
skipa Trínu fyrir. Hún hentist fram og
til baka. þess á milli hreytti hann út úr
sér ruddalegum athugasemdum um
frostsprungið andlit hennar og grál-
bólgin augun.
Ríkarður varð reiður. — Þú hefur
ekki aðeins stofnað lífi okkar.
sérstaklega konu þinnar, i hættu með
forkastanlegu fótboltaæði þinu heldur
hefurðu valdið dauða ungs manns þvi
við getum ekki haldið áfram leitinni án
bess aðokkur kali. Nú skalt þú koma al-
mennilega fram við Trinu eða mér er að
mæta!
— Taktu því rólega! sagði Börri
háöslega. — Ef þú hefur mikinn áhuga á
henni þáskaltu bara.. .
— Reyndu nú að halda kjafti! sagði
Rikarður. — Segðu okkur hvað gerðist.
Hefurðu ekki gert þér grein fyrir þvi að
héreralvara á ferðum?
Börri starði æstur á hann en róaðist
þó innan stundar. Þau voru öll stödd
inni i herbergi þeirra hjónanna. Trina
sat á enda rúmsins og grét. Hin sátu eða
stóðu þarsem pláss var I herberginu.
— Ég lagði af stað um áttaleytið.
sagði Börri skapillur. — Það hefði verið
auðvelt að finna veginn ef stormurinn
hefði ekki magnast. Ég villtist en fann
langferðabílinn eftir um það bil
klukkutíma. Ég veit ekki hvar ég var
fram að þeim tíma. Mér var svo kalt að
ég settist inn í bilinn, en þar var engan
hita að fá. Ég uppgötvaði það fljólt að
ég myndi aldrei finna aðalveginn. svo
það var ekkert annað að gera en koma
aftur hingað á hótelið. Ég sá spor nokkr-
um sinnum en hvort það voru min
spor eða Sveins. ja. það veit ég ekki.
— Sveinn er nokkuð kunnugur hér
um slóðir, er það ekki, lvar? spurði
Rikarður eftirvæntingarfullur.
— Jú. hann hefur meiri möguleika á
að finna aðalveginn. svaraði ívar.
Það varð þögn i herberginu. Þau
gerðu sér öll grein fyrir þvi að það var
fyrir einskæra hcppni að Börri fannst.
Það var vonlaust að fara út aftur.
Trína og Lovisa fóru út i eldhús til að
útbúa morgunmat. Hin fóru hvert í sina
áttina. Ríkarður fór með Jennifer til her
bergis hennar til að athuga hvort hún
væri kalin.
— Hvað hefur eiginlega komið fyrir
þig. Jennifer? spurði hann um leið og
hann athugaði andlit hennar. — Þú
likist sjálfri þér. en samt ertu einhvern
veginn svo breytt. Ég skil þetta ekki.
Hvernig hefurðu haft það i öll þessi ár?
— Ég hef haft það ágætt. svaraði
hún.
— Hefurðu átt einhvem góðan vin?
— Nei.
Hún horfði ekki á hann. Ríkarður tók
eftir að það sem áður hafði gert hana
lika álfamær hafði þróast út i eitthvað
blitt og fallegt. En aðeins á meðan hún
leit undan. Um leið og hún leit til hans
með þessu ráðvillta og barnalega augna-
ráði minntist hann fortíðarinnar aftur.
Nei. Jennifer átti ekki kærasta. Hún
virtist gjörsamlega ókunnug
staðreyndum lifsins — eða ætti fremur
að segja staðreyndum ástarinnar.
hvernig ungir menn urðu hrifnir af
stúlkum. sem þó voru ekki jafnflóknar
og hún.
— Hefurðu verið mjög einmana. . . ?
spurði hann gegn vilja sinum.
Örskamma stund varð hún hnuggin
en svo brosti hún og sagði:
— Hvað með þig. Ríkarður? Þú
virðist vera orðinn miklu harðari af þér.
já. eiginlega bitur og kaldhæðinn.
Hann forðaðist að horfast í augu viö
hana. — Þaðer bara núna.
— Einhver kona? spurði hún lág-
mælt
— Já. hvaðannað?
— Viltu ekki segja mér frá þvi?
Allt i einu fannst honum eins og það
yrði léttir fyrir hann að segja Jennifer
frá Marit. Hún hafði alltaf haft áhuga á
velferð hans. í þetta skipti gat það ekki
komið honum i klipu. Þar að auki var
hún orðin eldri og reyndari.
— Já, ég var mjög reiður þegar ég
Ellef u dagar í
14 Vikan 4«. tbl.