Vikan - 27.11.1980, Blaðsíða 26
Texti: aób.
„Nög að gera hér fyrir aui
Trésmiðja Fljótsdaishéraðs í
kynningu Vikunnar á einingahús-
um úr timbri.
Á Austurlandi eru hæg heimatökin fyrir þá
sem ætla að koma sér upp einingahúsum. Tré-
smiðja Fljótsdalshéraðs hefur seinustu sex árin
s/nnt einingahúsaframleiðslu af mestu prýði í
h m landshluta. Húsagerðir frá trésmiðjunni
ent margar og fólk getur því sameinað
hagkvœmni og hugmyndir í einingahúsi.
Verð húsanna er með því allra lægsta sem
f-kkist í þessari framleiðslu hér á landi og
uppsetning með einfaldara móti, því eining-
arnar eru færri og stærri en almennt gerist.
Helgi Arngrímsson hjá Trésmiðju Fljótsdals-
héraðs lét fúslega í té allar nauðsynlegar
upplýsingar um fyrirtækið og við gefum honum
orðið:
„Trésmiðja Fljótsdalshéraðs hf. er
skammt frá Egilsstöðum, nánar tiltekið
að Hlöðum, Fellahreppi. Fyrirtækið er
stofnað árið 1973 og hefur framleitt
einingahús úr timbri frá 1974 og er þvi
ein elsta einingahúsaverksmiðja
landsins. Frá upphafi hefur áhersla
verið lögð á ódýra framleiðslu en þó án
þess að það komi niður á gæðum
framleiðslunnar. Húsunum er skilað á
ýmsum byggingarstigum en algengust
eru:
1) Uppsett, fullfrágengin utan.
2) Útveggir og loft einangrað og klætt.
3) Uppsettir milliveggir.
Trésmiðja Fljótsdalshéraðs er að þvi
leyti með sérstöðu meðal einingahúsa-
framleiðenda að reynt er að hafa
einingarnar sem allra fæstar í hverju
húsi, og er t.d. gafl hússins yfirleitt
aðeins ein eining og langhliðarnar tvær
eða þrjár einingar. Með þessu móti er
minni frágangur við uppsetningu
hússins og meiri möguleikar á glugga-
skipulagi og herhergjaskipan i húsinu.”
Hús frá Hornafirði
til Bakkafjarðar
„Húsin eru ýmist klædd utan með
liggjandi eða standandi klæðningu. eða
rásuðum Pine-krossviði, eftir óskum
kaupanda. Það skal tekið fram að
trésmiðjan sér alltaf um uppsetningu
húsanna og er sá kostnaður inni i verði
hússins en kaupandinn sér um fæði og
húsnæði fyrir þá sem reisa húsið.
Einnig sér kaupandi um ferðakostnað
starfsmanna og flutningskostnað
hússins. Hann er í algjöru lágmarki því
húsið kemst á einn vörubíl og ef hann
26 Vlkan 48. tbl.