Vikan - 27.11.1980, Qupperneq 44
Vantaði hálendið
Steindór yfirfór handrit
Þorsteins og bætti inn í. „En ég
rak augun i að það vantaði
hálendið, það var lítið um að
Steini færi út fvrir byggðir. Við
töluðum saman um að viö
tækjum saman bók um
hálendið, ef þessi seldist vel."
segir Steindór. Landið þitt eftir
Þorstein Jósepsson varð síðan
metsölubók. Árið eftir að hún
kom út hermdi Örlygur
Hálfdánarson upp á Steindór
loforð um bók um hálendið. Or
því varð Landið þitt — ann-
að bindi eftir Steindór
Steindórsson. Sú bók kom úl
1968 og seldist upp á skömmum
tíma.
Eftir þennan góða árangur al'
útgáfu þessara tveggja binda af
Landinu þínu, og þegar Steindór
var að láta af skólameistara-
embættinu, kom þeim Örlygi
saman um að taka bókverkið til
rækilegrar endurskoðunar og
endurútgáfu. Steindór lauk því
starfi á tveim árum og lá
handritið að nýju útgáfunni
fyrir árið 1974.
Af ýmsum ástæðum mætti
segja að þarna sé um nýja bók
að ræða. Eins og lesandanum er
þegar kunnugt eru þetta
uppsláttarbækur. í fyrri útgáf-
unni voru 2700 uppsláttarorðen
í nýju fjögurra binda útgáfunni
FRÍSKANDI LITNR
FALLEGRA HAR
lla ut er að hreyta hárinu ótrúlega með litun. Lkki nauðsynlega með því að
hreyta alveg um lit. heldur örlítil litaskerpun. sem dregur hetur fram þinn
eðlilega háralit.
Ilægt er að fá varanlegan lit. skammtímalitun. jurtalitun og strípur. Leitið
til okkar dömur og herrar og hressið upp á útlitið. Þið sem gráu háriðhafið
munið að úr því er auðvelt að hæta.
HÁRSKERINN
Skulagötu 54, sími 28141
RAKARASTOFAN
Dalbraut 1, simi 86312
HÁRSNYRTISTOFAN PAPILLA
Laugavegi 24. Sími 17144.
verða nær 8000 uppsláttarorð.
Það hefur því einkum verið
aukið við fyrri útgáfuna al'
Landinu þínu.
Reyndar hvarflaði aldrei að
Steindóri að fella niður úr bók
Þorsteins. Þorsteinn var
þaulkunnugur þjóðsögum.
annálum og ýmsu sakamálaefni.
svo að vart finnast hans líkar.
Steindór hefur í nýju útgáfunni
sneitt til og stytt eitthvað, en
einkum hefur hann þó bætt inn í
sögulegu, náttúrufræðilegu og
staðfræðilegu efni.
Bætt við, engu sleppt
,.Til að skapa jafnvægi bætti
ég inn staðlýsingu, náttúrufræði
eða sögulegum staðreyndum. Ég
man sérstaklega eftir í sambandi
við Kornsá í Vatnsdal, að þar
hafði Steini ekkert annað en
44 Vlkan 48. tbl.