Vikan - 27.11.1980, Síða 51
Draumar
Að dreyma sig
feigan
Kœri drawnráðandi
Mig langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem mig
dreymdi fyrir nokkru. Hann er
svona:
Mér fannst ég vera stödd í
skólanum sem ég var í í fyrra-
vetur og ég var að kyssa
kennslukonuna mín bless því
ég átti að deyja þá um daginn.
Það var eitthvað að blóðinu í
mér. Svo fannst mér ég fara
um allt þorpið þar sem ég á
heima og kveðja alla vini mína.
Mér fannst ég vera að kveðja
bestu vinkonu mína og bað
ég hana að láta strák sem ég
var með (hann býr fyrir
sunnan) fá hálsmen — hjarta
með nafninu mínu grafið í. Bað
ég hana að láta hann hafa það
til minningar um mig. Fór ég
síðan að gráta óstöðvandi gráti
sem ég vaknaði svo við. Með
fyrirfram þökk fyrir birtinguna.
H.
P.S. Mér fannst að ég biði bara
eftir því að deyja.
Að dreyma sig deyjandi eða
feigan er yfirleitt góðs viti. Þú
verður langlif og heilsast vel. í
það minnsta er óliklegt að þú
þjáist nokkurn tíma af blóðsjúk-
dóminum sem þig dreymdi.
Önnur tákn í draumnum eru
einnig fyrir góðu. Gjöfin sem þú
baðst vinkonu þina fyrir til
stráksins — hjartað með nafninu
þínu á — boðar þér ást og
hamingju í sambandinu við
hann. Grátur er ætíð fyrir gleði,
því meiri þvi betra. Ef til vill
gæti feigð þín í draumnum
verið fyrirboði þess að þú giftist
eða lofist fljótt og farsællega.
Hvað sem öðru líður geturðu
horft björtum augum til
framtíðarinnar.
Lík í sjó og
ástarjátning
Ég var að kíkja út um
gluggann við dyrnar og horfði
út á sjó. Þá kom ég auga á lík í
strigapoka í sjónum, hljóp upp
í eldhús og kom varla upp
nokkru orði. Ég gat sagt við
strák sem ég er hrifin af
(köllum hann I): Ég sá, ég sá . .
. . Ég gat ekki sagt meir. Ég
stóð þarna og grét, horfði á I
og égsá að það komu tár í
augun á honum. Ég benti
honum að koma og sýndi
honum líkið. Svo opnaði ég
dyrnar og hljóp eitthvað út. Eg
hljóp hratt en hann var langt á
eftir mér. Hann kallaði og
sagði mér að bíða. Ég stoppaði,
svo sá ég fullt af fólki en sá að
mömmu vantaði. Ég hélt að
mamma vceri líkið og ég
öskraði: Mamma, hvar ertu?
(Þetta var svo eðlilegt.) I stóð
við hliðina á mér. Þá sagði I:
Ég elska þig. Þá féll ég í yfirlið.
Ég vaknaði við að einhver tók
utan um mig. Það var I.
Hvenær kemur mamma?
spurði ég hann. Hann segir: Á
fimmtudaginn. Þttnnig endar
draumurinn. (Mamma er fyrir
sunnan og kemur á
fimmtudaginn.) Viltu birta
þetta fyrir mig, ég hugsa svo
oft um þetta. Með fyrirfram
þökk.
G. N. I.
Áhyggjur og óskir vökunnar
birtast mönnum ósjaldan í
draumi í líki ýmiss konar
atburða. Draumar af því tagi
bera ýmist keim af martröð eða
eru ævintýri líkastir eftir
atvikum. Draumur þinn er
sambland af hvoru tveggja.
Þannig draumar hafa einatt lítið
táknrænt gildi. Með þeim fyrir-
vara má segja að draumurinn
boði þér einhver leiðindi í
sambandi við ástamál. Sagt er að
dreymi ungt fólk að það sjái lík
sé það fyrir misráðinni giftingu.
Ekki er víst að það eigi við hér,
en ætla má að þú eigir í vændum
óhamingjusamt ástarævintýri.
Málið veldur þér hugarangri en
þú átt erfitt með að horfast í
augu við það og reynir að sleppa
frá því. Ólíklegt er að strákurinn
I endurgjaldi hrifningu þína og
að þú hafir mikið saman við
hann að sælda í framtíðinni.
Framtíðin í
draumi
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi undarlegan
draum og langar að vita hvað
hann þýðir.
Mér fannst ég vera stödd á
vinnustað mínum í herbergi
sem ég vinn í og þar voru
stödd einn maður og kona sem
ég vinn með. Einnig var þar
eldri kona sem mér fannst ég
þekkja (en ég þekki ekki í
rauninni). Maðurinn og konan
voru stödd í hinum enda
herbergisins, en ég og þessi
kona vorum að tala saman og
hún sagðist ætla að spá fyrir
mér og biður mig að slökkva
Ijósið, sem ég geri. Þegar ég
slekk verður myrkur og ég heyri
konurödd og sé birtu fyrir ofan
konu og þær tala saman. Ég
fer nær en skil ekki það sem
sagt er. Svo þagnar röddin og
konan snýr sér að mér og réttir
mér löng flauelsbönd sem voru
fest saman í annan endann.
Þau voru fjögur. Þrjú jafnbreið
og löng, en eitt styttra og
mjórra. Eitt var hvítt, annað
Ijósgult, þriðja Ijósdrappað og
það fjórða, sem var minna og
mjórra, var Ijósblátt og var inn
á milli hinna. Konan segir mér
að þetta sé framtíð mín. Þá
finnst mér maðurinn og konan
koma til okkar og biðja hana
að spá fyrir þeim og allt í einu
var ég lögst upp í rúm með
manninn við hlið mér og
fannst mér það óþægilegt. Ég
rauk upp og sagðist þurfa að
fara út í sjoppu. Fór ég þá
fram í sal og sá að ég hafði
slökkt í salnum líka og fólkið
sat í myrkrinu og vann. Ég
kveikti og fór út. Þegar ég kom
í sjoppuna keypti ég súkkulaði
ogsleikibrjóstsykur. Allt íeinu
kemur einhver strákur og rlfur
I handlegginn á mér ogsnýr upp á.
Eg hljóða upp og bið hann
að sleppa. Síðan sný ég mér að
honum og horfi fast í augun á
honum og segi: Ég kann að
meta stríðni, en svona stríðni
kann ég ekki að meta. Þar með
var draumurinn búinn. Með
fyrirfram þökk.
Þessi draumur er sérkennilega
táknrænn en ekki að sama skapi
auðveldur í túlkun. Kjarni
draumsins er spádómurinn og
eins og í draumnum boða
flauelsböndin fjögur hin ýmsu
skeið ævi þinnar. Þú verður
langlif, ævi þín farsæl og ekki
mjög stormasöm. I framtíðinni
mun lífsstaða þín batna. Þín
bíða aukin fjárráð og góð heilsa.
Þó munt þú þurfa að ganga í
gegnum ýmsa erfiðleika. Bláa
bandið merkir lausn frá áhyggj-
um og erfiðleikum. Þar sem það
var inn á milli hinna bendir það
til þess að erfiðleikar þínir séu
tímabundnir. Ef þú lætur ekki
bugast nærðu oftast því marki
sem þú setur þér.
Vinnustaðurinn, fólkið og
myrkrið eru ekki tákn. Fremur
má segja að þetta myndi eins
konar „umgjörð” um drauminn.
Síðari hluti draumsins er
úr tengslum við hinn. Hann er
að öllum líkindum merkingar-
laus, að minnsta kosti ef þig
hefur dreymt hann i svefn-
rofunum. Sælgæti í draumi er
fyrirboði góðs. Ef aðstæður
þínar eru erfiðar nú þá boðar
hann breytingar til góðs, jafn-
vei þótt útlitið sýnist svart í
augnablikinu. Stríðnin eða
hrekkurinn er að sama skapi
fyrir einhverjum ávinningi. Ef
marka má þennan seinni hluta
draumsins er hann fyrirboði
atburða í náinni framtíð.
48. tbl. Vlkan 51