Vikan - 27.11.1980, Side 71
Valborg Ingólfsdóttir, Eyjum, Kjós, 280
Evrarkoti, og Svanhvít Kristjánsdóttir,
Grjóteyri, Kjós, 280 Eyrarkoti, eru 15
ára og óska eftir að skrifast á viðstráka á
aldrinum 15-16 ára. Áhugamál eru
hestar, böll og strákar.
Edda Björk Sigurðardóttir, Fögru-
brekku 38 Kópavogi, óskar eftir
pennavinum (strákuml á aldrinum 17-19
ára. Húner 16 ára.
Raju, P.O. Box No. 8498, Salmiak,
Kuwait, óskar eftir pennavinum. Hann
er 18 ára. Áhugamál: pennavinir.
tónlist. mótorhjól og líkamsuppbygging.
Birthe Merhel Christensen, Meserodvej
22, DK-21OOKBH0, Danmark, óskar
eftir að skrifast á við stráka. Skrifar
ensku. þýsku og frönsku auk dönsku.
Hún er 20 ára og áhugamál hennar eru
iþróttir, ferðalög. póstkort og frímerki.
Á fósturpabba, sem ég
hata ...
Kæri Póstur!
Ég hef ekki skrifað þér áður. en nú finnst mér timi til
kominn.
Þannig er mál með vexti að ég á fósturpahha. sem ég
hata. Hann er alltaf að skipta sér af öllu sem ég geri.
Hann ákveður hvenœr ég á að koma inn á kvöldin o.sfrv.
Mig langar oft að segja honum að vera ekki að skipta sér
af mér. því að hann sé ekki pabhi minn. Hvað á ég að gera.
ég er hálfhrædd við hann?
Á ég að tala við pabha lalvörupahba) um þetta? Eða á ég
að tala við mömmu? Mig langar oft að strjúka. en ég v'U
ekki særa mömmu.
Elsku Póslur. svaraðu mér.
Ein hrædd. sem hiður eftir svari.
Líklega er svo sannarlega tími til kominn að þú annaðhvort
skrifir Póstinum eða trúir einhverjum fullorðnum fyrir vand-
anum. Samband þitt við fósturföður þinn er greinilega ekki
eins og það á að vera, en hvort þar er raunverulega hægt að
kenna einhverjum einum um vandann er erfitt að dæma.
■Póstíirinn erekkipersónulegakunnugurá heimili þínu ogá því
býsna erfitt með að dæma um hvorum megin hryggjar
vandinn liggur, en telur þó líklegast að þarna sé margt sem
veldur. Mjög algengt er að böm sem búa hjá fósturforeldrum eigi
við ýmiss konar sálarflækjur að stríða og oft er þama alls
ekki við fósturforeldrið að sakast. Viðhorf til fósturforeldra
hafa ekki alltaf verið sem jákvæðust, samanber vondar
stjúpur í ævintýrum, sem byrla fósturbörnum sínum eitur og
gera þeim allt mögulegt til miska. Börnum getur fundist þau
sjálf eitthvað afbrigðileg ef þau búa ekki hjá báðum foreldrum
eins og svo margir aðrir. Sannleikurinn er þó oft sá að fóstur-
foreldrinu er ekki síður vorkunn en barninu, því þrátt fyrir
góðan vilja og sanna ást á barninu virðist uppskeran á
stundum harla rýr.
Ertu alveg viss um að þú hatir hann? Ef svo er. þá hvers
vegna? Og hugleiddu líka hvor þeirra er í rauninni „alvöru-
pabbi” þinn. Er ekki rökrétt að álykta að það sé sá, sem meira
hefur af sér að segja? Væntumþykja er víst alveg örugglega
ekkert sem kemur án fyrirhafnar, þú fæðist ekki með
tilfinningar til ákveðinna manna. Þegar öllu er á botninn
hvolft hljóta kynforeldrar að vega harla lítið miðað við þá sem
ala önn fyrir hverjum og einum einstaklingi. Hugleiddu málin
af sanngirni og reyndu að gera þér grein fyrir. hvort þú
tekur kannski ekki full óstinnt upp fullkomlega eðlilegar
áminningar einungis af því að þér finnst að uppeldi þitt komi
fósturföðurnum ekkert við. Settu þig í hans spor og gerðu
upp við þig, hvort þú sjálf vildir taka að þér barn annarra,
elska það sem þitt eigið og annast að öllu leyti en uppskera svo
viðhorf svipað því og þú sjálf berð til þíns fósturföður.
í næstu Viku
Næsta blað
verður jólablað 1980, 96 síður að stœrð. Að vanda verður það troðfullt
af ýmsu athyglisverðu efni og það sem nefnt er hór ó siðunni er aðeins
lítið sýnishorn.
Jólahár
í nsestu Viku sýnum við fjórar mismunandi jóla-hárgreiðslur fyrir alla
aldursflokka.
-¥■
Bestu vínin — og þau lélegustu
Nokkuð er um liðið siðan Jónas Kristjánsson gaf umsögn um lóttu
vinin, sem fóst hór í Ríkinu. Nú bætum við úr þessu, þvi í næstu Viku
ræðir Jónas um hvað ó boðstólum er, kosti þess og galla, og hvað á
við hverju sinni.
¥
Smásagnakeppni Vikunnar — 1. verðlaun
Gífurleg þótttaka varð i smásagnakeppni þeirri, sem Vikan efndi til fyrr
á árinu. En dómnefnd hefur lokið störfum og í næstu Viku kynnum við
fyrstu verðlaunasöguna.
¥
Litast um í kirkjum landsins
Oft hefur verið af þvi látið, hve íslenskar kirkjur væru hver annarri
likar og snauðar af öllum gersemum og fögrum búnaði. Er þetta rótt?
— Vikan hefur rætt við nokkra aðila sem þekkja þessi mál út í æsar og
við birtum líka fjöida mynda.
¥
Haukur Morthens
Enginn dægurlagasöngvari hefur staðið sig i líkingu við Hauk
Morthens, sem áratugum saman hefur verið á toppnum. Vikan
heimsækir kempuna og ræðir við hann um feril hans og líf.
-¥
Jólaföndur
Margur hefur þann háttinn á, þegar hann fer að undirbúa jólin, að búa
til ýmiss konar skreytingar og figúrur með eigin höndum. Við lóttum
undir með þeim sem þennan vana hafa með vönduðum föndursiðum.
48. tbl. Vikan 71