Vikan


Vikan - 28.10.1982, Side 21

Vikan - 28.10.1982, Side 21
Frarrthaidssaga hættan var liöin hjá. Boronov vann meö annarri hendinni við lásinn. Meö hinni hélt hann hlustunarpípunni á sínum staö. Hvenær sem hann var ekki viss í sinni sök hætti hann. Hann hélt áfram að hlusta þegar lásinn small opinn. Þau fáu hljóð sem hann heyrði virtust koma úr eldhúsinu. Hann gaf Kunavin merki og sneri snerlinum. Kuna- vin dró upp byssuna sína, hélt henni viö hlið sér. Boronov fann fyrirstöðuna af stólnum. Hann rétti úr sér, sýndi merki um upp- gjöf og gaf Kunavin merki um að fara aftur aö stiganum. Með óumræðilegri þolinmæði opnaði Boronov töskuna aftur. Hann skrúfaði hurðarhúninn af, fjarlægöi hann gætilega og stakk honum í vasa sinn. Enn hlustaði hann meö hlustunarpípunni. Hann ýtti mjúklega á stöngina sem var föst í hinn hurðarhúninn. Þegar hann gat sér til að húnninn væri að því kominn að detta hlustaði hann aftur. Svo ýtti hann húninum alla leið. Tammy var búin að láta renna í bað og hafði á síðustu stundu hætt við að fara í það. Það var eitthvað svo hræðilega vamarlaust að vera nakin í baði. Þetta var órökrétt og það vissi hún. Þegar baðið var til- búið tók hún tappann úr og vatnið byrjaöi að renna burt. Hún fór inn í eldhús, hitaði kaffi og fór að taka til. Eldhúsið var að vísu tandur- hreint en eitthvað varö hún að gera meðan kaffiö kólnaði. Hún gat ekki hugsað sér morgunverð. Það var ekki fyrr en núna, þegar Duncan var farinn, að hún fann til fulls hve taugar hennar voru illa leiknar. Hún hrökk við við hvert hljóð. Þegar hurðarhúnninn féll heyrðist lítiö í honum vegna gólf- teppisins og vatnsniðarins úr baðinu. Engu að síður stirðnaði Tammy upp við vaskinn með ræstiduftið í annarri hendi, tusku í hinni. Hún tók ekki af sér gúmmí- hanskana heldur laumaðist fram í anddyri, hrædd við hvað hún myndi sjá. Hún vildi koma að öllu eins og það haföi verið og skoðunin var yfirborðskennd. Það haföi ekkert færst úr stað. Gluggamir voru enn lokaðir. Ekkert hafði dottið úr gluggakistunum eða af borðum. Stóllinn stóð enn á sínum staðvið hurðina. Fyrst létti henni. Svona vildi hún að það væri. Ekkert athuga- vert. Ekkert úr lagi. Hjarta hennar barðist allt of hratt en þegar það kyrröist endurheimti hún kjarkinn og leit aftur í kringum sig. Þegar hún kom auga á hurðarhúninn á gólfinu undir stólnum niðaði blóðiö fyrir eyrum hennar. Hún var sem gróin föst, einblíndi á hurðarhúninn eins og hann væri að því kominn að springa í loft upp. Skelfing hennar óx þegar stóllinn tók sjálfur að rétta viö. Hann var að verða uppréttur. Hún var svo hrædd að hún gat ekki litiö af stólnum. Hún sá dyrnar ekki opnast en vein í huga hennar fræddi hana um að svo væri; að það væri hurðin sem ýtti á stólinn. Þetta var versta stund sem hún hafði lifað. Ein og óttaslegin reyndi hún að hreyfa sig en gat það ekki. Það voru ekki aöeins fætur hennar sem voru stjarfir heldur líkaminn allur. Enginn líkamshluti hennar var hreyfan- legur. Hún reyndi að veina en ekkert gerðist. Munnur hennar var þurr, hálsinn herptur. Boronov smaug inn í herbergið. Maðurinn sem Duncan kallaöi mongólann. Maðurinn sem hræddi hana einu sinni og stakk í hana hnífi. Tammy fann að hnén voru farin að linast. Annar maður birtist. Sá sem sló Jimbo. Hugsanimar ruddu sér braut í gegnum ótta hennar. En það var verra í annað skiptið; taugar hennar voru þegar þandar. Þeir voru báðir með byssur og dyrnar lokuðust á eftir þeim. Boronov var meö lausu höndina framrétta eins og hann byggist við ópi og hann reyndi að róa hana. „Viðgerum þérekkimein,”sagði hann með hræöilegum hreim. En það var lygi. Hún vissi að það var lygi því hún var enn með plástur yfir skuröunum tveimur. Þeir kræktu fyrir stólinn, komu nær henni. Hún vissi að það yrði verra í þetta sinn, vissi þó ekki af hverju. „Ekki æpa. Við meiðum þig ekki.” „Nei.” Hún hörfaöi, vöðvarnir slöknuðu. „Nei. Ekkigeraþað.” Hún tók annað skref og skildi HVÍLD - MEGRUN LÍKAMSRÆKT - ÚTIVERA Þarftu ad missa nokkur aukakíló ? Þarfnastu hvíldar? Viltu losna frá amstri hversdagsins? VIÐ HÖFUM LAUSIMINA Vertu velkominn «0 Sérhœft starfsfólk svo sem lœknir, íþrótta- kennarar, sjúkraþjálfi, leiðsögumenn og lipurt hótelstarfsfólk mun sjá til þess að þér líði sem best. x Dagskrá: ARDEGI: ' Kl. 08.00 Vakið gegnum hátalarakerfi hússins með\ léttri tónlist og líkamsteygjum. Kl. 08.15 Borið á herbergi heitt sítrónuvatn, drukkið meðan klæðst er (íþróttagalli). Kl. 08.30 Morgunleikfimi í sal,-mál og vog. Kl. 09.30 Morgunverður Kl. 10.30 Sund-gufa-haiturpottur. Kl. 11.00 Frjálstími. Kl. 12.00 Hádegisverður Hótel Húsavik Sími 96-41220 ,í; SIÐDEGI: Kl. 13.00 Hvíld. Kl. 14.00 Gönguferðmeðfararstjóra. Kl. 15.00 Létt miðdagskaffi. Kl. 15.30 Nudd Kl. 17.00 Frjáls tími. Kl. 19.00 Kvöldverður KVÖLD: Kl. 20.30 Kvöldvaka. Stutt ganga fyrir svefn. Verð pr. mann á viku kr. 4.950,- í2M m/baði. kr. 5.450,- í 1M m/baði. Innifalið í þessu verði er: Gisting, allar máltíöir, lœknisskoðun, sund, gufa, heitur pottur, leikfimi, nudd, gönguferðir með fararstjórn, frœðileg erindi, flug og transfer flug- völlur — hótel — flugvöllur. ATH. Hámarksfjöldi í hópi er 20 manns. Áskilinn er réttur til breytinga á ofan greindu verði. 0) > > <0 (A '3 X e E C cg - -í ,2. vika: 17/10-24/10 '82 3. vika: 24/10-31/10 '82 4. vika: 7/11-14/11 '82 5. vika: 21/11-28/11 '82 6. vika: 6/2 -13/2 '83 7. vika: 13/2 -20/2 '83 8. vika: 6/3 -13/3 '83 9. vika 27/3-3/4'83 ''IO. vika 3/4-10/4'83 11. vika 10/4-17/4'83 SÖLUADILAR: Hótel Húsavik Ferðaskrifstofa rikisins Ferðaskrifstofan Úrval Ferðaskrifstofan Útsýn og ferðaskrifstofur viða um land. 43. tbl. Vikan XI

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.