Vikan


Vikan - 28.10.1982, Síða 30

Vikan - 28.10.1982, Síða 30
Likamsæfingar Jane Fonda I sumar sem leiö var nokkuö sérstæð bók á list- anum yfir metsölubækur. Sömuleiðis skaut plata ein upp kollinum á vinsælda- listanum yfir hljómplötur og naut allnokkurrar sér- stöðu innan um allt poppið. Þarna var um að ræða verk leikkonunnar Jane Fonda, Jane Fonda’s Workout Book og Jane Fonda’s Workout Record. Jane Fonda er mikil líkams- ræktarkona og hefur komið á fót iíkamsræktarstöðinni Jane Fonda’s Workout Centre. I Bandaríkjunum hefur verið ríkjandi sann- kallað líkamsræktaræði hin seinni ár og því féllu hug- myndir Jane Fonda í góðan jarðveg. Hugmyndin að líkams- ræktarstöðinni kviknaði fyrir nokkrum árum. Jane Fonda var umhugað um að verja fjármunum sínum í eitthvað sem gæti komið fólki að gagni. Sjálf hafði hún stundað dans og líkamsæfingar í tuttugu ár og jafnan átt í vandræðum meö að finna heppileg nám- skeið. Því var það að hún ákvað að hafa forgöngu um stofnun líkamsræktarað- stöðu fyrir konur og hafði þá einkum skrifstofustúlk- ur í huga. Hún segist alls ekki stefna að því „yngja konurnar upp”. Markmiðið sé að láta þær kynnast líkama sínum og stæla hann svo að þeim líði betur. Hún hefur verið gagnrýnd fyrir þetta tiltæki sitt og sumum þykir sem hún hefði getað látið eitthvað betra af sér leiða en kenna kvenfólki að spenna vöðvana. Einnig þykja tím- arnir nokkuð dýrir hjá henni fyrir Los Angelesbúa með meðallaun (um 80 kr. tíminn). Nýjasta verkið frá Jane Fonda er Jane Fonda’s Workout Book For Pregn- ancy And Recovery, bók um líkamsrækt á með- göngutíma og eftir barns- burð. Meðal þeirra sem tóku þátt í æfingapró- gramminu og „sátu fyrir” á ljósmyndum sem prýða bókina er Jane Seymour leikkona (AustanEden). Æfingarnar eru samdar af sérlegum ráðgjafa Jane Fonda í þessum efnum. Æfingarnar miðast að því að gera líkamann sterkari og jafnframt sveigjanlegri og búa hann sem best undir átökin. Einnig eru kaflar um öndun, slökun, fæðingartækni, brjóstagjöf og leikfimiæfingar eftir fæðingu, um lyfjaneyslu á meðgöngu og við fæðingu, keisaraskurð og ýmis góð ráð til mæðra og feðra. 11 30 Vikan 43. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.