Vikan - 18.08.1983, Síða 17
í MINNINGU
CALC0S
ÍTALSKAR FLUGVÉLAR
YFIR REYKJAVÍK EINS OG
FYRIR 50 ARUM
Ej
xm
< 2
Z <
O Q
K Z
.. DC
DC<
|s
S H
ðalfrétt ársins 1933 á íslandi:
,,í gær lagði af stað frá Rómaborg stór,
ítalskur flugleiðangur, og er förinni heitið
til Chicago í Bandaríkjunum. í leiðangri
þessum taka þátt 24 flugvélar. Leiðangurs-
stjóri er Balbo hershöfðingi, flugmálaráð-
herra ítala.
Leiðangur þessi mun koma við í Reykja-
vík á leið sinni vestur um haf. Hafa allmarg-
ir ítalir dvalið hér á landi að undanförnu til
að undirbúa lendingu flugvélanna og dvöl
leiðangursmanna í Reykjavík. ’ ’
Síðan segir frá komu flugflotans hingað:
,,6/7. Flugleiðangurinn ítalski kom til
Reykjavíkur í gær eftir sex stunda flug frá
Londonderry. Lentu flugvélarnar í Vatna-
görðum kl. nálega 5 síðdegis. Veður var
ekki gott, sunnan dimmviðri og storm-
ur. . . Inn í Vatnagarða var stöðugur
straumur fólks og söfnuðust þar saman þús-
undir manna. Fólk hópaðist einnig upp á
húsaþök í bænum þar sem því var við komið
og nokkur von var að sjá til flugvélanna. . .
Kl. að ganga sjö kom Balbo loks að bryggj-
unni. Bátur sá, er sótti hann út í flugskipið,
var fánum skreyttur. Balbo gekk hvatlega á
land og skundaði til móts við þá er komnir
voru til að heilsa honum. Heilsaði honum
fyrstur Ásgeir Ásgeirsson forsætisráðherra,
ásamt frú sinni, en lítil stúlka rétti Balbo
blómvönd og kyssti Balbo á kinn hennar í
þakklætisskyni. . . Síðan ók Balbo til bæjar-
ins í för með forsætisráðherrahjónunum.
Mannfjöldinn fagnaði honum og félögum
hans er þeir óku til bæjarins. ’ ’
Ein af aðalfréttum ársins í ár er koma
geimskipsins Enterprise. Stemmningin var
svipuð: þúsundir manna uppi á hæðum og
úti á þökum, allir mænandi á fyrirbærið. En
það voru líka margir að horfa á þegar ítölsk
flugsveit kom til landsins í 50 ára minningu
ferðar Balbos. Flugsveitin fór sömu leið og
hann og á sama tíma. En nú voru ekki not-
aðar sjóflugvélar, þær eru löngu horfnar af
sjónarsviðinu. Þær eru líka horfnar af
sjónarsviðinu, gömlu flughetjurnar sem
heilluðu fólk með afrekum sínum fyrir
hálfri öld, hetjur eins og Balbo, Lindbergh
og Grierson. Síðan þá hafa flugmenn aldrei
orðið eins frægir, nú em það geimfararnir
sem heilla.
Við birtum hér nokkrar myndir af ítölsku
flugsveitinni sem teknar voru á meðan hún
flaug yfir Reykjavík og sýndi listir sínar. Við
sýnum líka áhorfendurna og getum reynt að
ímynda okkur hvernig stemmningin hefur
verið fyrir 50 árum þegar ítalskir flugmenn
ruddu fluginu braut yfir Atlantshafið og til
íslands. Nútíminn var á leiðinni.
33. tbl. Vikan 17