Vikan - 18.08.1983, Side 23
VÍSINDANNA VEKJA NÝJAR VONIR text/. þórey
los á sér staö. Læknirinn tekur
sýni úr konunni eftir samfarir um
það leyti sem egglosið fer fram til
þess aö rannsaka leghálsslímuna,
hvort hún er nægilega þunn til
þess aö hleypa sæðisfrumunum í
gegn og hvort nægilega margar
sæöisfrumur lifa eftir samfarir.
Læknirinn rannsakar gerö og
starfsemi æxlunarfæranna og hor-
mónastarfsemi.
Karlmaöurinn kemur tvisvar,
með nokkurra mánaöa millibili,
meö sæöissýni sem rannsakað er
undir smásjá, frumurnar eru tald-
ar, gerö þeirra og hreyfingar at-
hugaðar og hve lengi þær lifa.
Ofrjósemi kvenna stafar oft af
truflunum á viðkvæmu hormóna-
jafnvægi líkamans. Ýmis hormón
stuöla aö þroskun eggbúsins, egg-
losi og undirbúa legiö fyrir komu
fóstursins. Ef hormónastarfsemin
viröist í ólagi eru reynd ýmis lyf
meö góöum árangri. Hormóna-
lyfjagjafir leiöa stundum til þess
aö fleiri en eitt egg losnar og
margar fjölburafæöingar eiga
rætur að rekja til þessara
hormónalyfja. Um þaö bil
helmingur kvenna í Bandaríkjun-
um sem ófrjóar eru af völdum
ójafnvægis í hormónum hafa oröiö
barnshafandi eftir hormónameð-
ferö og vonir standa til aö enn
verði hægt að bæta árangurinn.
Meðferðin hefur í för meö sér tölu-
verð óþægindi fyrir viðkomandi
hjón. Þau verða aö skipuleggja
kynlíf sitt, konan verður stööugt
að vera aö mæla sig og gangast
undir rannsóknir eftir samfarir.
Hætt er viö að ánægjan við kyn-
lífið geti rokið út í veöur og vind.
Bandaríkjamaöurinn Dale Perry
lýsti þessu þannig. „Þetta varð
næstum því eins og skrípaleikur.
Þaö var eins og viö værum alltaf
þrjú í rúminu — ég, konan og
læknirinn!”
Skurðaðgeröir
Þegar um endometriosis er að
ræöa er stundum beitt lyfjagjöf,
en oft þarf aö gera smærri eöa
stærri skurðaðgeröir til að fjar-
lægja legslímuna. I Bandaríkjun-
um er fariö aö gera tilraunir með
notkun leysigeisla viö þess konar
aögerðir meö vænlegum árangri.
Samgróningar í eggjaleiðurum
eru einnig fjarlægöir með míkró-
skuröaögerðum, en þessar aö-
gerðir hafa hjálpaö fjölmörgum
konum hér á landi sem erlendis til
aö verða barnshafandi.
„Glasabörn"
Frú Lesley Brown haföi
skemmda eggjaleiðara sem ekki
var hægt aö lækna meö skuröað-
gerö. Eggþroskun og egglos voru
meö eölilegum hætti og heilsufar
hennar að öllu leyti mjög gott.
Hún er nú tveggja barna móðir en
heföi aö líkindum aldrei getað
gengiö meö barn ef ekki heföu
komið til aögerðir læknanna
Patrick Steptoe og Robert Ed-
wards.
Meðferðin hefst meö því að
komið er reglu á tíöahringinn og
fylgst er meö líkamshita og östró-
genhormónainnihaldi blóösins svo
læknirinn megi vita nákvæmlega
hvenær egglos á sér stað. Tíma-
setningin verður aö vera mjög ná-
kvæm því taka veröur eggiö þegar
þaö er orðiö fullþroskað en þaö má
ekki hafa losnað úr eggjastokkn-
um. Konan er deyfð og gerð er
smárista á kviðinn. I gegnum
hana er stungið örsmáu skoöunar-
tæki, laparoscope, sem gerir lækn-
inum kleift aö sjá líffæri í grindar-
holi. Sérhannaöri nál er komið fyr-
ir í skoðunartækinu og þegar eggið
er um þaö bil að losna úr eggbúinu
stingur læknirinn gat á það og sog-
ar eggið upp.
Egginu er síöan komið i
næringarupplausn á glerplötu.
Sæöi eiginmannsins er sett á plöt-
una og henni komið fyrir í hita-
skáp. Þar er platan síöan geymd í
36—48 klukkustundir og sé allt
með felldu og frjóvgun hefur átt
sér staö hefur það þegar skipt sér
nokkrum sinnum. Þá er fóstur-
vísinum komiö fyrir í glersprautu
og sprautaö varlega inn í leg kon-
unnar gegnum leggöngin.
Mjög mikil hætta er á að legið
hafni fósturvísinum eins og hverj-
um öðrum aðskotahlut og í raun-
inni verða einungis um 20—25%
kvenna barnshafandi eftir þessa
meðferö. Þegar hafa um 700 börn,
sem getin eru á þennan hátt, fæöst
í ýmsum löndum heims. Enn eru
aöeins fáar lækningastofnanir í
Hcrsést hvar 20—30 harðskcyttustu sæðisfrumurnarleggjatil atiögu við cggið. Um tcið og ein fruma hefur komist inn í eggið er það orðið frjóvgað og aðrar
frumur fá ekki aðgang.
33. tbl. Vikan 23