Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 39
Þýðandi: Anna
og horfði rannsakandi augum
upp eftir Simonsen og niður eftir
aftur.
— Ertu nýr hérna? spurði
rekstrarstjórinn hörkulega.
— Nei, ég átti 25 ára starfsaf-
mæli í fyrra. Ég fékk öskubakka
með áletrun forstjórans af því til-
efni. Og vínglas. Ég sé um frá-
gangsvélina í vélasal númer 4.
— Notar þú alltaf þetta áhald
þarna? hélt rekstrarstjórinn
áfram.
Simonsen leit niður á tærnar á
sér. Svo kinkaði hann varlega
kolli.
— Konan mín gaf mér þetta í
jólagjöf. Rekstrarstjórinn gekk
um gólf nokkrum sinnum þungt
hugsi, brýnnar voru hnyklaðar
og hausinn niður í bringu. Svo
stakk hann sígarettukveikjaran-
um í vasann og yfirgaf skrifstof-
una.
Hálftíma seinna var Simonsen
kallaður upp til forstjórans sjálfs.
Hann var ekkert sérlega stoltur af
því þegar verkstjórinn kom og
sótti hann. Fyrir framan stóru
voldugu mahónídyrnar fór hann
úr tréklossunum sínum, barði
síðan varlega að dyrum og fór of-
urvarlega inn.
Forstjórinn leit upp úr plögg-
um sínum.
— Komdu nær, sagði hann
stuttur í spuna, og Simonsen
gekk nokkur skref nær, mjög
skelkaður.
— Þú hefur verið við þetta
fyrirtæki í 25 ár, Simonsen, byrj-
aði forstjórinn, og ég hef ástæðu
til að ætla að öll þau ár hafi ekki
verið ástæða til að kvarta undan
störfum þínum. Þess vegna er
það enn sárara að Rassmussen
verkstjóri skuli hafa komið að þér
í dag með þetta áhald þarna.
Forstjórinn benti með holdug-
um fingrinum á kveikjarann
hans Simonsens.
— Segðu mér eitt, Simonsen,
í hve mörg ár hefur þetta gengið
svona?
— Konan mín gaf mér þetta
einu sinni. . . í jólagjöf.
— Oghvaðerlangtsíðan?
— Svona tíu til fimmtán ár.
— Og flnnst þér hentugt að
vera með svona lagað?
— Já. . .á, ég verð að viður-
kenna það, sagði Simonsen.
Forstjórinn sat nokkrar sek-
úndur hljóður og það leit helst
út fyrir að hann myndi springa
af reiði, en svo stillti hann sig,
beygði sig aðeins fram á stóra
palesanderskrifborðið sitt og
sagði eins rólega og hann gat:
— Mig tekur það sárt, Simon-
sen, en þú ert rekinn!
Það var ekki um annað að
ræða fyrir hann. Það var ekki
mögulegt í fyrirtæki eins og
hann rak að vera með mann í
vinnu sem notaði kveikjara.
Hann var nefnilega forstjóri
fyrir eldspýtnaverksmiðju.
Framkvæmum
MÓTOR * HJÓLA ¥ LJÓSA
rr
Ef þú lætur stilla bílin
reglulega (á 10.000 km. fresti)
eyðir hann minna en ella.
\BÍLASKODUN
% &STILLING
S13 ÍOO HÁTÚN 2a
33. tbl. Vikan 39