Vikan - 18.08.1983, Blaðsíða 45
FRAMHALDSSAGA
„Þaö er ekki nóg fyrir mig,”
sagði ég viðhana.
Hún byrjaði að þusa. „Ég elda
fyrir þig, ég held heimilinu flekk-
lausu, ég strauja lökin þín, ég
baka brauð. Og bý til kálböggla.
annað...” Jólin voru næstum ónýt.
Við eyddum tveim vikum af jóla-
leyfinu á býlinu en það var ekki
sérlega skemmtilegt. Við vorum
bæði að hugsa um að þetta yrðu
kannski síðustu jólin okkar þar.
Stjúþan
Veistu hvað það tekur langan tíma
að búa til kálböggla? Ég bý þér
gott heimili. 0, Charlie, við
skulum eignast eitt barn í viðbót.
Mig langar svo mikið í barn! ”
Það var það eina sem hún vildi,
húsið sitt og börnin sín. Hún vildi
mig í rauninni ekki, hún hafði
aldrei kært sig um mig, fremur
um fyrirvinnu, fyrirmyndar eigin-
mann og föður. Henni stóð á sama
þótt við svæfum aldrei aftur
saman, nema ég geröi henni
annað barn. Og viö sváfum ekki
ýkja mikið saman eftir það... ”
Rödd Charlies dó út. Hann hætti
að tala. Við sátum þegjandi um
hríð. Mér leiö hræðilega.
„Og núna,” sagði hann, „hef ég
ekki trú á að hún ráði viö þetta.
Þaö var svo mikils virði fyrir hana
að vera gift, yfirborðskenndi,
opinberi hlutinn af lífinu. Henni
stóð á sama hvernig hjónaband
okkar var í rauninni meöan hún
var gift. Við vorum með hreinasta
eldhúsgólfið í bænum. Núna,
þegar hún er skilin, er engu líkara
en hún sé að reyna að byggja sér
hús til að fela sig í, hús gert úr
reiði, hatri og örvæntingu, því sem
eftir lifir af sambandi okkar, í stað
þess að stíga strax út í nýjan
heim. Ég vildi óska þess að ég
gæti hjálpað henni en það get ég
ekki. Þetta er hræðilegt fyrir hana
og hlýtur að vera hræöilegt fyrir
telpurnar. Góöur guð, ég vona að
hún hitti einhvern geöugan mann
og gifti sig. Þá yröi hún aftur
hamingjusöm.”
Og hvenær skyldum við verða
aftur hamingjusöm? langaði mig
að spyrja. Allt frá þessum
októberdegi, þegar fyrsta bréfið
kom frá Adelaide, höfðum við
lifað eins og tvær manneskjur viö
dauðaganginn. Það höfðu fariö svo
mörg hástemmd bréf og símtöl
milli lögfræðinganna og Charlies. Á
hverju kvöldi, þegar við settumst
að borðum eða fórum í háttinn til
að elskast, beiö hluti af okkur eftir
því að síminn hringdi, að lög-
fræðingur segði: „Afsakaðu að ég
ónáða þig, Charlie, en það er eitt
Og núna, þegar réttarhöldunum
var lokið og býlið var óhult, virtist
okkur sem við gætum ekki enn
haldiö upp á það og verið
hamingjusöm. Mér fannst reið
vofa Adelaide búa með okkur eins
og refsinorn, varna okkur að vera
glöð. Allt virtist mengað. Ég gat
fyrirgefið Caroline og Cathy að
gefa skýrslu um okkur, að skrá
allar eigur okkar, en ég gæti ekki
gleymt því aö þær hefðu gert það.
Það var búið að koma á venju:
Árum saman yrði það sem við
gæfum þeim ekki einfaldar gjafir.
Ef við gæfum þeim mikið værum
við að reyna að kaupa þær. Við
værum rík og eyddum peningum í
vitleysu, peningum sem þær
(Adelaide) ættu að fá. Ef við
gæfum þeim lítið værum við nísk
og aðhaldssöm, viö elskuðum
telpurnar ekki. Ef við vildum að
þær kæmu í heimsókn værum við
að reyna að svipta Adelaide lífs-
gleðinni. Ef við vildum ekki aö
telpurnar kæmu, nú, auðvitað
elskuðum við þær ekki. Árum
saman yrði ekkert skýrt, gott og
frjálst. Og að minnsta kosti einu
sinni á ári kæmu símtöl, bréf frá
lögfræðingum, ógnanir. Lengi vel
bakaði ég ekki brauð eða hélt
eldhúsgólfinu mínu gljáandi. Ég
kærði mig ekki um aö gera neitt
sem Adelaide hafði gert. Ég vildi
ekki líkjast henni á neinn hátt.
„Ef þú skilur við mig,” hafði
hún sagt við Charlie, „skaltu frá
að borgafyrir það.”
Hún notaði frasa en hún stóð við
hótanir sínar. Þetta virtist ekki
sérlega heilbrigöur lífsmáti fyrir
konu en þaö leit út fyrir að hann
veitti henni beiska gleði. Að því er
virtist var þetta um tíma eina
ánægja hennar.
Við Charlie læröum að lifa með
því. Við vorum ánægð í starfi,
hamingjusöm í ást okkar. Við
þroskuöum þurra kímnigáfu í
sambandi viö það allt, en þetta
var eins og að hafa draug á bak
við dyrnar. Ef maður kaupir
fallegt draugahús og ann því nægi-
lega heitt heldur maður því og
Citroen
BX16TRS
90 hestöf1,11,5 sek. í 100 km
hraða og sigurvegari
í sparaksturskeppni BIKR:
Meðaleyosla
6,14 I á hundraðið.
Citroén BX 16 TRS er í einu orði sagt
stórkostlegur bíll. Þú verður helst að koma og kynnast
honum af eigin raun.
Við tökum uppí vel með farna, nýlega Citroén bíla.
Við lánum 25% af kaupverði til 8 mánaða.
Verð kr. 414.100.-
Innifalið:
Hlífðarpanna undir vél, skráning og ryðvörn.
' I G/obus" SÍMI £11555
CITROÉN *
VANDAO MÁNADARRIT SEM ER Í SÉRFLOKKIÁ ÍSLANDI
33. tbl. Vikan 45