Vikan - 01.03.1984, Side 11
Munið að skila
getraunaseðlunum
Vinningshafinn í Afmælisgetraun I, María Bjargmundsdóttir skattendurskoðandi,
tekur við farseðlunum i skemmtisiglingu með Maxim Gorki úr hendi Böðvars
Valgeirssonar, forstjóra Feiðaski ifstofunnar Atlantik.
„Ég trúi þessu ekki, ég
trúi þessu ekki, ég trúi
þessu ekki,”
voru fyrstu viöbrögö Maríu
Bjargmundsdóttur skatt-
endurskoðanda þegar
henni var tilkynnt að hún
heföi unnið draumaferöina,
skemmtisiglingu með
lúxusskipinu Maxim Gorki
um Karíbahaf, í Afmælis-
getraun Vikunnar þegar
dregið var 12. janúar
síðastliöinn.
Engu að síður var þetta
rétt og ferðina fór hún og
bauð Margréti systur sinni
með sér því að auövitað
gilti vinningurinn fyrir tvo.
Sama er að segja um vinn-
ingana sem dregnir verða
út núna 15. mars, ferðir til
Mallorka og Ibiza á vegum
ferðaskrifstofunnar Úr-
vals.
Þess vegna er áríöandi
einmitt núna að enginn
gleymi að senda inn lausn-
irnar úr Afmælisgetraun
II. Skilafrestur er til 10.
mars. Takið þátt í léttum
og skemmtilegum leik.
Hver veit hvar heppnin ber
aðdyrumnæst?
Hagstætt brúð„kaup”
(brúðarkaup eða kaup á brúði)
Hún Janni Spies þarf ekki að kvarta um þessar mundir. Maki hennar, öldungurinn
hressi, Simon Spies, hefur það fyrir vana að skera aldrei neitt við nögl og hefur
hann ausið ótrúlegum fjármunum í hana Janni sína síóan þau giftust. Pelsar, kjólar,
skartgripir, bílar, þjónar og ekki lætur hann það nægja. Janni lætur hafa það eftir
sér að Simon sé svo ánægður með hana að hann borgi henni tugi þúsunda fyrir
hvert skipti sem þau gera það. Afleiðingar þessa geta verið þrennar: a) Janni setur
Simon á hausinn. b) Simon fær hjartaslag. c) Simon gefst upp og kærir Janni fyrir
vændi.
og nafnið eeeri
Þetta gæti verið áfall fyrir suma en við látum það flakka.
„Mærin” Marilyn heitir í raun og veru, nei, þið gætuð aldrei getið
upp á því: Peter Maz Robinson.
9. tbl. Vikan II