Vikan


Vikan - 01.03.1984, Page 38

Vikan - 01.03.1984, Page 38
J Vikan og tilveran ÉG VAR ÓÞOLANDIFREK OG SJÁLFSELSK Mér þykir mjög gaman aö vera innan um annað fólk, helst vil ég vera einhvers staðar þar sem margt fólk kemur og fer. Og mér líkar best við störf þar sem ég þarf aö umgangast fólk mikið. Mér fellur á hinn bóginn illa þegar annað fólk skipar mér fyrir, ég vil fá að ráða mér sjálf. Eg starfa sem ritari hjá lög- fræðingi og kann mjög vel við það, ég vinn að talsverðu leyti sjálf- stætt, þarf oft að taka ákvarðanir sjálf og kynnist mörgu og marg- víslegu fólki. Hitt er svo annað mál að stundum langar mig aö vera alein, en það líður aldrei á löngu þar til þráin eftir hinu iðandi mannlífi verður yfirsterkari. Mér þykir mjög gaman að spá í fólk og velta fyrir mér hvernig það sé aö innræti. Um sjálfa mig hugsa ég aftur á móti ekki yfir- máta mikið, nema eitthvað sé aö eins og þaö sem ég ætla að segja frá hér á eftir. Þaö var helst þegar mér fannst ég hafa gert eitthvað frámunalega heimskulegt að ég velti fyrir mér hvernig ég væri og ég gerði mér heldur neikvæðar hugmyndir, var jafnvel reið út í sjálfa mig fyrir að hafa brugðist asnalega við. Mér finnst stundum að ég hefði getað hagað mér af meira viti og verið réttsýnni og er alls ekki ánægð með sjálfa mig. Skap mitt fer oft eftir mínu líkamlega ástandi. Stundum þegar eitthvað amar að mér líkamlega, það þarf ekki að vera annað en skítugt hár, þá er ég skapstygg. Sama er að segja ef ég hef einhverjar áhyggjur. En verst þótti mér að fyrir um það bil einu og hálfu ári var ég farin að skeyta skapi mínu á þeim sem mér þykir í rauninni vænst um og sá svo eftir öllu saman þeg- ar mér var runnin reiðin. Strákurinn, sem ég var með, var farinn aö tala um hve uppstökk ég væri og svo var um annað fólk nákomið mér. Ég viðurkenni að ég er skap- mikil, en samt er ég ekki lang- rækin og mér rennur jafnfljótt reiðin og hún getur blossað upp. Þótt fólk segði að ég stykki upp á nef mér út af engu fannst mér þaö frekar vera ósanngirni og frekja annarra sem hleyptu mér upp. Ég hafði í raun og veru ekki gert mér grein fyrir því hvað var að ske fyrr en ég las um það í heim- ilisblaði hvernig fólk byggir í kringum sig ómeövitaðan varnar- múr. Ég velti þessu mikið fyrir mér — og þá ekki síst hvernig ég sjálf brygðist við öðru fólki. Ég komst að þeirri niðurstöðu að ég hneigðist í raun og veru til að fela blíölyndi mitt. Ég varð þess vör að ég hrakti lítil börn frá mér í stað þess aö gera það sem mig í raun og veru langaöi til: að sýna þeim blíðuhót. Ég hef alla tíð talið að ég væri ekki feimin. Innst inni finn ég þó stundum fyrir skorti á sjálfs- öryggi, sem gæti kannski alveg eins kallast feimni. Þetta kemur helst fram þegar mig langar til að vera góð við annað fólk, einhvers konar snertur af minnimáttar- kennd. Ég fann sem sagt fyrir tilhneig- ingu til að sýna jákvæðar tilfinn- ingar í garð einhvers, en fann um leið fyrir óörygginu og þá fékk ég útrás með geðvonskukasti og því að beina huganum að feitu, ljótu og heimskulegu fólki! Þá brást varla að eftir stutta stund hafði ég gleymt ástæðunni fyrir óörygginu. Ef mér gafst ekki ráðrúm til út- rásar á þennan hátt fitjaði ég upp á trýnið við annaö fólk með þeim afleiðingum að það sniðgekk mig og ég fékk svo sannarlega það sem ég vildi: frið. Aö mínu mati var ég á þessum tíma orðin óeðlilega frek og ágeng. Jafnframt varð mér ljóst hversu þessi persónueinkenni fóru í taugarnar á mér ef ég fann fyrir þeim hjá öðrum. Ég reyndi að taka sjálfa mig fyrir og fylltist gremju þegar ég fann fyrir þessari sjálfselsku. Ég reyndi þetta um tíma og gekk jafnvel svo langt að þegar við hættum að vera saman, strákurinn sem ég minnt- ist á og ég, reyndi ég að sam- gleðjast honum þegar ég sá hann með annarri stelpu. En mér fannst þessi aðferð að skamma sjálfa mig ekki gefast nógu vel. Ég ákvað að gera á henni bragarbót og reyna að fara í hlutina á jákvæðari hátt. Stundum þegar ég hef tekið stórar ákvarðanir hafa þær þegar á hólminn var komið reynst lítið annað en ákvaröanir. Mig hefur skort staðfestu til að standa við það sem ég hef ákveðið. En í þetta skipti ákvað ég að gefast ekki upp fyrr en ástandið lagaðist. Aðferðin, sem ég notaði, var ósköp einföld. Mér finnst þaö aug- ljós sannindi að tilfinningalífið fléttast mjög saman við margt sem viðkemur huganum — hugs- un getur komið af stað tilfinn- ingum og öfugt. Ég byrjaði því að breyta til þar sem það mátti teljast auðveldast, það er að segja með því að vera opnari við litlu börnin. Þar var um aö ræða þrjú börn systur minnar sem ég um- gengst mikið og passa oft fyrir hana. Eg leyfði sjálfri mér þann „lúxus” að sýna þeim þá blíðu sem ég fann fyrir innra með mér. Ég er óþolinmóð og ef mér mis- tekst í fyrstu atrennu þá nenni ég oft ekki að eiga við það meir. Þetta á líka við þegar ég þarf aö bíða í óvissu. En í þetta skipti lét árangurinn ekki á sér standa, kannski vegna þess hve mjög mig langaði að breyta til en kannski líka vegna þess að krakkarnir kunnu vel að meta þessa breyttu framkomu mína. Það getur jafn- vel verið að þetta tvennt hafi haldist í hendur. Löngun mín var heiðarleg og ég held að börn þekki strax muninn á heiðarlegri fram- komu og óheiðarlegri. Nú fór ég aö taka eftir því að ég varð jákvæöari í garð þeirra sem vekja áhuga minn. Þegar ég hugsaði um fólk sem mér þótti vænt um fann ég hvernig ég fyllt- ist vellíöan. Ég fór að veita því sem skeði í kringum mig meiri athygli og hafði meiri ánægju af að horfa á fallegt fólk og náttúru- fyrirbæri. Því er skemmst frá því að segja að mér finnst að á þessum tiltölulega skamma tíma hafi ég orðið miklu innilegri við fólk almennt og ég er mjög ánægð með þá auknu lífsgleði sem ég hef fundið fyrir síðan. 38 Vikan 9* tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.