Vikan


Vikan - 01.03.1984, Qupperneq 46

Vikan - 01.03.1984, Qupperneq 46
FRAMHALDSSAGA „Þér gerðuö það ekki,” fullviss- aði Lash hana. „Þér hafið á réttu aö standa um skjölin. Ég er aö reyna að fá bróður yöar til að skrifa undir samninginn ef hann þá fæst til að sitja kyrr nægilega lengi. En hann er erfiður viöur- eignar og núna er ég of latur til að eltast viðhann.” „Hvar er bandaríska atorkan?” spuröi Gussie og brosti breitt. Lash geispaði. „Ætli ég hafi ekki skiliö hana eftir í Napolí — ásamt regnkápunni? Núna vil ég bara slæpast. En engar áhyggjur. Ég kem að þessu einhvern tímann — þaö er öruggt. Hvaö ætlum við annars að gera í dag?” „Ekkert,” sagði Nigel ákveðinn. , ,Gott. Alveg fy rir mig. ’ ’ „Vitleysa!” sagði Gussie ákveðin. „Við förum í búðir og lít- um í kringum okkur í borginni. Það er ákveðið. Svo fáum við okk- ur te á hótelinu og Lorraine var eitthvað að tala um tunglskins- matarboð á ströndinni. ” „Guð hjálpi mér!” muldraði Lash f jálgur. „Var það ekki, Lorraine?” spurði Gussie og lét sem hún hefði ekki heyrt til hans. „Jú, kæra Gussie. En bara fyrir þá sem vilja koma. Þú þarft ekkiaðvera með.” „Það er tilgangslaust að koma til Zanzibar til að liggja í leti og sofa allan daginn. Þaö getur mað- ur heima.” „En ekki á fagurri hvítri strönd í sólskini,” tautaði Amalfi. „Hvers vegna er sandurinn hvítur en ekkigulur, Nigel?” „Ut af kóralnum, flóniö þitt. Sennilega vikurkoli líka. Veistu að ég komst aö dálitlu dásamlegu um daginn? Veistu hvaðan allir litlu vikurmolarnir á ströndinni eru? FráKrakatá!” „Og hvar er Krakatá?” spurði Eduardo. Það fór hrollur um Nigel og hann skyggði fyrir augun. „Menntastig drekkandi stéttar virðist almennt algjörlega óhæft. Krakatá, úrkynjaði villimaöur, var eldfjall á Sundaeyjum — mitt á milli Jövu og Súmötru, ef þú þá veist hvar þær eru — sem sprakk árið 1883 meö hvelli sem engin kjarnorkusprengja mun nokkru sinni leika eftir. Þetta eru brot þaðan. Þau komu með straumn- um og lentu hér. Ég verð að játa að ég hef aldrei notaö vikur áður en nýt þess að gera það núna. Þaö er töfrandi aö skrapa af sér blekblettina meö Krakatá! ” Eduardo sagði: „Þér ættuð að skrifa leiösögubók. Ég les þær aldrei.” „Þér lesið aldrei neitt ef þér komist hjá því!” sagði Nigel arg- ur. „Þetta er óréttlátt, hr. Pont- ing,” sagði Gussie og veifaði fingrinum áminnandi. „Marches- inn var að gera aö gamni sínu. Hann las allt um húsiö fyrsta kvöldið okkar hér, bókina hans afa: Skuggahúsið. Er þaðekki?” „Var það?” sagði Eduardo og yppti bronslitum öxlunum. „Eg man þaö ekki. Kannski hef ég tekið hana upp til aö blaöa í henni. Ég er viss um að ég hef lagt hana fljótt frá mér ef svo hef- ur verið!” „Alls ekki! Þér eruö of hóg- vær! Þér voruð svo niðursokkinn í hana að þér heyrðuð ekkiþegar ég kom inn í bókaherbergið. Eg full- vissa yður um að þér þurfið ekki aö skammast yðar fyrir að vera bókhneigður. Eg er mesti bóka- ormur sjálf.” „Staðreyndin er sú,” sagði Nigel, „aö Skuggahúsið er senni- lega lélegasta bók sem nokkru sinni hefur verið rituö og alla vega sú leiðinlegasta. Þaö er vafasamt aö nokkur kæmist yfir meira en tvær blaðsíöur, hversu bókelskur sem hann væri.” „Hvers vegna er þá verið að tala um hana núna ? ” sagði Amalfi fýlulega. „Ætlar þú að stjórna þessari búða- og skoðunarferð í dag, Nigel?” „Því er fljótsvarað,” sagði Nigel. „Nei! Hvers vegna spyröu? Ætlaðirþýaðfara?” „Kannski. Ef við förum ekki fyrr en hálffjögur eða fjögur. Ég sá dásamlega indverska skart- gripi í búð við Portuguese Street og maðurinn sagðist fá meira í dag. Við Eddie vorum að hugsa umaðlítaáþá.” „Gleymið ekki ávísanaheftinu hans Eddie,” sagði Nigel illgirnis- lega. „Þú hefur veriö geövondur í all- an morgun, elsku Nigel!” sagði Lorraine kvartandi. „Hvað er að þér? Dagurinn er svo yndislegur en þið eruð öll svo óróleg og eiröarlaus. Af hverju hvíliö þið ykkur ekki?” „Viö erum aö hvíla okkur,” sagði Lash sem haföi lokaö augun- um. „Lítiðbaraáokkur!” „Nei. Það lítur kannski þannig út en ég finn taugaspennuna. Ætli það sé ekki út af Honeywood og Jembe og vesalings Millicent...” Gussie Bingham spratt á fætur og þreif handklæðið sitt, sólolíuna og gleraugun. Hún gekk hratt yfir ströndina og eftir stígnum að hlið- inu. Amalfi settist upp, tók ofan sól- gleraugun og sagði: „Nú ertu búin að æsa mágkonu þína upp. Vertu svo væn, elsku Lorrie, að tala ekki aftur um þetta.” „Viö getum ekki látiö eins og strútar,” sagði Lorraine reið. „Hvers vegna ekki? Ég hef ekkert á móti strútum. Ég er sammála þeim. Maöur á að grafa hausinn í sand ef eitthvaö óþægi- legt mætir manni. Ætlarðu með okkur til Zanzibar í dag? ” „Ef þiö viljið. Gussie átti hug- myndina. Hún vill alltaf vera aö gera eitthvað til aö þurfa ekki að hugsa um Millicent. Gussie hatar allt svona. Ja, fyrst viö förum get- ið þiö öll fariö og skrifað nafnið ykkar í gestabókina í höllinni. Þaðersiður.” „Þér hafið leyfi til aö falsa mitt nafn, ” sagði Lash. „Mérdetturþaðekkiíhug. Þér skrifið það sjálfur — með góðu! ” „Ökei, ókei,” sagði Lash sátt- fús. „Þá geri ég þaö. Égfer.” Þau fóru öll nema Nigel, sem sagðist þurfa aö vinna, og Dany, sem sofnaði í hengirúmi í garöin- um. „Leyfum henni að sofa,” sagði Lorraine og hélt aftur af Lash sem ætlaði aö vekja hana. „Þaö er betra fyrir hana en að flækjast um Zanzibar-borg í þessum hita og hún viröist ekki hafa sofið nóg undanfarið. Nei, Lash! Ég vil ekki láta vekja hana.” Hún hafði verið óvenju ákveðin og tekiö þéttingsfast um handlegg Lash og leitt hann að bílnum. Lorraine hafði fengiö fá tæki- færi til að tala einslega viö dóttur sína frá því aö hún kom. Tyson hafði varað hana við að vera vin- gjarnlegri við Dany en hún ætti aö vera við einkaritara eins gesta sinna. En hún hafði séð aö Dany var ein þegar hún fór út í hengi- rúmið eftir hádegisveröinn og Lorraine kom auga á hana þegar hún var að tína rósir sem sáttagjöf handa Gussie. „Mikið er gott aö ná í þig eina, elskan,” sagði Lorraine, lagöi frá sér rósirnar og fór til dóttur sinn- ar. „Þaö er svo erfitt aö mega aldrei tala viö þig nema horfandi um öxl. Eg er hrædd um að þetta sé alveg voðalegt fyrir þig, barniö mitt, en Tyson segir að það standi ekki lengi, lögreglan komist að hinu sanna og við getum hætt að láta sem þú sért þessi Kitchell. Guði sé lof!” Hún andvarpaði, og breytti svo um umræðuefni: „Elskan. . . viövíkjandi Lash. . . ” Hún virtist ekki vita hvað hún vildi segja. Danybrá: „Hvaðumhann?” „Þú kannt víst vel við hann, elskan.” Dany blóöroðnaði undir þessu hræöilega lita hári og Lorraine sá það og sagöi viðutan: „Þessi litur fer þér alls ekki. Leitt.” „Um hvaö ertu að tala, mamma ? ’ ’ spurði Dany. Lorraine leit um öxl. „Ekki, elskan! Ef einhver heyröi til þín?” „Það er enginn hérna nálægt, sagði Dany. „Hvað varstu aö segjaum Lash?” „Ja — mér fannst ég verða að segja eitthvað því að mér datt í hug að þú kynnir kannski betur við hann en einkaritara hæföi. Svo er hann mjög aðlaðandi og...” Hún bandaöi frá sér hendinni og lauk ekki við setninguna. „Og hvað?” spurði Dany eins og í varnarstöðu. „Ja, elskan, ég fór út í gær að sækja tímarit sem ég hafði skilið eftir í garðinum og ég sá ykkur koma gangandi til hússins. Þið virtust vera — vinir.” Dany þagði og Lorraine and- varpaði. „Eg er ómöguleg móð- ir,” sagði hún. „Eg kann ekki að haga mér sem slík. En mér finnst að ég ætti að segja eitthvað — um Lash, á ég við. Þú veist aö hann ætlaði að kvænast Elf — frú Gordon — erþaöekki?” „Jú. Þú skrifaöir mér það. Hann sagði mér það.” „Það er þó eitthvaö.” Lorraine virtist létta. „En þú þarft aö vera gætin, elskan. Þú hefur hitt svo fáa menn. Ég held að það sé mér aö kenna. Ég hef verið svo hræði- lega eigingjörn og alls ekki munaö eftir því hvað tíminn líöur fljótt. Eg ætlaöi alltaf að veröa góð móð- ir seinna en þú varst alltaf eitt- hvað svo mikið barn. Svo varstu allt í einu fullorðin. En þú mátt ekki verða ástfangin af fyrsta aðlaöandi manni sem þú hittir. Það eru hræðileg mistök! Eg hef ekkert ámóti Lashen. . .” . ^ Framhaldínæstablaði. I Á
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.