Vikan - 01.03.1984, Page 61
Eitt af mörgum vandamálum Sheenu Easton er sú staðreynd að hún
lætur svo lítið yfir sér að það er hreinlega ekki tekið eftir henni þegar í
höfuðstöðvar hennar er komið. Margir telja hana hálfgert barn ennþá og
kalla hana „ungfrú vingjarnlega". Það er hinn mesti misskilningur því
Sheena hefur fullt vald yfir starfsfólki sinu og kemur ákveðið fram, stund-
um jafnvel harkalega. Allt hefur sína ástæðu og svo er einuig hér. Sheena
er nefnilega ekkert alltof örugg með sig, sérstaklega e'tir að hún varð
verulega vinsæl. Ha? Jú, þetta er alveg satt, eftir þvi sem hún verður vin-
sælli verður hún hræddari. Ástæðan er mörgum augljós. Sheena er nefni-
lega búin að fá sinn skammt af leiðinlegum aðdáendum sem að sögn geta
verið virkilega leiðó ef þvi er að skipta. Núorðið kemur hún ekki fram nema
í fylgd 12 filefldra filmenna sem fylgjast grannt með því sem hún kallar
„vofurnar". Það munu vera furðufuglar sem koma alltaf á hljómleika
hennar og gera hana að taugahrúgu með því einu að horfa á hana. Hún veit
vel að sennilega vilja flestir þeirra ekkert illt en siðan John Lennon var
myrtur hafa flestir frægir skemmtikraftar — einnig Sheena — verið
Þrátt fyrir efasemdirnar um getu hennar til að standa sig i bransanum
telur hún sig vel geta spjarað sig. Hún bendir réttilega á að hún hefur
staðið i þessu í 7 ár eða frá þvi að hún var 17 ára. Þá var hún óþekkt nætur-
klúbbasöngkona og söng 5 kvöld í viku fyrir 10£, eða um 400 kr. Ekki beint
ráðherralaun, en svona er það nú einu sinni með tónlistarmenn að þeir fá
sama sem ekkert fyrir snúð sinn — þar til þeir slá í gegn.
Ástamál Sheenu hafa heldur ekki alltaf verið dans á rósum en þar viður-
kennir hún veikleika sína. Hún segist vera algjör asni í þeim efnum og má
sem dæmi um það nefna hjónaband hennar þegar hún var 19 ára en það
entist í 8 mán. Það var víst ekki eina samband hennar við karlmann sem
entist stutt, yfirleitt hafa kynni hennar við karlmenn endað eftir fáeinar
vikur. Þó eru betri horfur um þessar mundir hjá henni þvi hún hefur tollað
ótrúlega lengi með Don Grierson, en hann er einhvers konar boss i plötu-
bransanum vestan hafs. Það er Ijóst að Sheena Easton ætlar sér stóra hluti,
enn stærri en nú, en málið er bara: Getur hún það, ég meina sálfræðilega
séð?
dauðhræddir um líf sitt.
Texti: Hörður
HBÆÐSLUPUKINN
SHEENA