Vikan - 12.04.1984, Side 8
NÆTURLfF I
AMSTERDAM
sumum kránum þó þær beri það
ekki með sér utan frá. Við Rosen-
gracht stendur svo eitt af diskó-
tekum borgarinnar, Maddsó, og
nálægt horninu á Singelgracht og
Leidsestraat er Odeon, diskótek
og big-band staður.
Leidseplein
Eigi alls fyrir löngu var bannað
að fara inn í miðborg Amsterdam
á bílum eða vögnum svo að
kaupmenn og ferðalangar, sem
erindi áttu inn í borgina, neyddust
til að skilja farartæki sín eftir á
stóru torgi í útjaðri borgarinnar.
Þessi torg voru næstum öll við
borgarhliö Amsterdam næst
þjóðvegum til nærliggjandi borga,
Utrecht, Muiden og Leiden.
Við upphaf þjóövegarins til
Leiden var Leidseplein, eins og öll
önnur hliðstæð torg umkringt
byggingum sem notaðar voru sem
vöruhús, geymslur fyrir bíla og
vagna, jámsmíða- og trésmíða-
verkstæði að ógleymdum krám og
matsöluhúsum, áningarstöðum
fyrir þreyttan feröalanginn áður
en haldið yrði inn í borgina.
Með breyttum tímum hefur
þetta torg, sem áður fyrr stóð í út-
jaðri borgarinnar, orðið að miðju
félagslífs Amsterdam. Þarna er
borgarleikhúsið Stadsschowburg,
Belluwe leikhúsiö, sex kvik-
myndahús eru á næsta leiti
með þrefalt fleiri sýningarsölum.
Þarna er Paradísó, tónleikasalur
fyrir ungu kynslóðina, og Melk-
weg, eins konar Fellahellir Am-
sterdamborgar, með tónleika,
diskó, leikrit- og uppákomur af
ýmsu tagi, kvikmyndasýningar,
matsölustað og kaffihom og geta
þeir sem vilja dvalið þama hálfan
sólarhringinn án þess að borga sig
nema einu sinni inn og séð það
sem þá lystir af því sem fram fer
innandyra.
Barir, matsöluhús og kaffihús
eru hér bak viö hverjar dyr og í
næsta nágrenni við Leidseplein
og næturklúbbar, prívatklúbbar,
hommaklúbbar og spilavíti laða
að sér þá sem geta borgaö vel.
Hinir verða að láta sér nægja að
láta sig dreyma um dýrðina
innandyra. Við stoppum um stund
og horfum á íshokkíkeppni á til-
búna skautasvellinu á miðju
Leidseplein, hendum nokkrum
aurum til svarta flautuleikarans
sem leikur hér á hominu á hverju
kvöldi og virðum fyrir okkur húsin
í kringum torgiö, öll skreytt
ljósum svo þau minna einna helst
á piparkökuhús eða hús nom-
arinnar úr ævintýrinu um Hans og
Grétu.
Það er orðið áliðiö kvölds og við
skjótumst inn á Reijnders og fáum
okkur einn bjór fyrir háttinn.
8 Vikan l*. tbl.