Vikan - 12.04.1984, Blaðsíða 41
Gúmmísvuntan var sett á mig,
svo átti ég aö halda á vatnsfötunni
í brjósthæö og síðan nálguðust
hjúkrunarkonurnar mig ísmeygi-
lega meö gúmmíslönguna.
— Hefuröu gert þetta áöur?
spuröi önnur þeirra.
Ég gætti mín á þessu bragöi.
Eg sá í hendi mér að ef ég opnaði
munninn og segöi nei þá myndi
gúmmíslangan tafarlaust verða
rekin niöur í kok á mér svo ég lét
mér nægja aö hrista höfuðið.
— Ertu með falskar? spuröi
hin.
Aftur hristi ég höfuöið og mætti
augnaráði andstæöingsins
ótrauöur. Svo herti ég takið um
vatnsfötuna svo hnúarnir
hvítnuðu og ákvaö að ég skyldi
selja mig eins dýrt og kostur væri.
I dyrunum stóðu þrír sjúklingar af
deildinni og horfðu stjarfir á.
— Þú skalt ekkert vera hrædd-
ur, sagöi einn þeirra og flissaði
vandræðalega, þetta er ekkert.
Það bítur enginn. Þú segir bara
HAPS og þá er þetta komið.
Hann þúaði mig, það gera
sjúklingar á spítulum svo sem
alltaf, og ég varö ekkert móðg-
aður þó hann væri svona kumpán-
legur við mig. Viö vorum reyndar
öll á sama báti ef svo mátti segja.
Þegar gúmmíslönguhetjurnar
króa mann af í orrustunni verða
óbreyttur og hershöfðingi sam-
herjar og öll mörk titlatogs
falla.
— Opna vel og anda rólega,
sagði önnur hjúkkan hljómlaust.
Eg gnísti tönnum og andaði ótt og
títt.
— Hvernig er þetta, ertu
skræfa, heyrði ég einn áhorfand-
ann segja í dyrunum, þorirðu
ekki?
— Hvemig væri að loka
dyrunum? sagði ég argur. En þaö
hefði ég ekki átt að segja því um
leið og ég opnaði munninn var
slangan komin niður í kok. Ég
gerði örvæntingarfulla tilraun til
að bíta en í hvert sinn sem mér
fannst ég ná tannfestu ýtti
hjúkrunarkonan slöngunni lengra
niður í kok. Tárin trítluöu niður
kinnarnar á mér og mér fannst ég
nær dauða en lífi.
— Andaðu bara rólega, andaðu
rólega, heyrði ég gegnum tárin.
Hvemig er hægt að vera að kæfa
mann og biðja hann samtímis að
anda rólega? Það eru líklegast
bara konur sem láta sér detta slíkt
og þvíumlíkt í hug. Hjúkkan
stoppaði í þessu, hún átti ekki
nema tuttugu sentímetra eftir. Þá
sleppti ég vatnsfötunni, sló hana
harkalega í höndina og togaöi
slönguna tuttugu sentímetra upp!
Ég fylltist baráttuþreki eftir þetta
einstæða afrek. Til að safna
kröftum í næstu atlögu dró ég and-
ann djúpt ... og þá óð slangan
tuttugu sentímetra niður aftur. Þá
greip ég dauðahaldi í handleggi
hjúkrunarkonunnar og hélt þeim
eins og skrúfstykki. Andartak
horföumst við í auga með haturs-
svip.
— Kitlaöu hann, sagði hún þá.
Hin fór á bak við mig og kitlaði
mig svolítiö í handakrikanum eftir
því sem hún komst að. Það er
versti staður sem ég get hugsað
mér. Þær kunna sko sitt fag.
— Ha-ha-ha, heyrðist í mér og
nú rauk slangan að minnsta kosti
hálfan metra niður.
— Ég skal veðja heilum pakka
af sígarettum að ykkur tekst
þetta, sagði einhver í dyrunum.
En nei! Með eldsnöggri
höfuðhreyfingu tókst mér að losa
mig við þetta gúmmískrímsli og
það flaug á gólfið í glæsilegri
sveiflu eins og eiturslanga í
krampakasti. Ég og önnur
hjúkkan vorum jafnsnögg . . . og
stukkum á hana. Andartak lágum
viö þarna bæði á gólfinu og mát-
um vígstöðuna. Við fylgdumst náið
með hreyfingum hvort annars.
Fjandmaður minn þorði ekkert að
segja. Það var á hreinu að um leið
og hjúkrunarkonan myndi segja
eitt einasta orð fengi hún
slönguna í kokiö.
Svo dró hin mig gróflega með
hnakkataki aftur í stólinn og batt
hendurnar á mér niður með ólum.
— Nú er úti um hann, vesl-
inginn, heyrði ég einn í dyrunum
segja.
Um leið fann ég fyrir
harðsvíraðri árás í maganum og
um leið og ég sagði ÖÖ-ÖÐ var
gúmmíslangan komin 1,20 niður í
maga á mér. Gúmmíboltinn var
skrúfaður á og nú hófst
eyðileggingarstarfið fyrir alvöru.
Eftir fimm mínútna þaulæföar
pyntingar kom afgangurinn af
kexinu fram í dagsljósið.
— Þetta var prýðilegt! Þá er að
skola, og svo er þetta búið. And-
aðu rólega.
Svo var skolvatni hellt í gegn-
um trektina og niður í magann.
Vatniö var jökulkalt, ég fann að
hernaðaraðgerðirnar höföu tekist.
Loksins eftir langa mæöu var
gúmmíslangan veidd upp úr mag-
anum á mér. Aðgerð: „Tilrauna-
máltíð” varáenda.
I raun og veru er varla orð á
þessu gerandi, eins og ég sagði við
hana Maríönnu nokkrum dögum
seinna, þegar ég mátti aftur
mæla:
— Vissulega fylgja þessu smá-
vægileg óþægindi en ef maður
man bara að anda rólega þá
gengur þetta nú allt af sjálfu sér.
a
Stjörnuspá
Hrúturinn 21. mars-20. april
Þér hættir til aö
reiðast þeim sem
ekkert vilja þér nema
gott. Þetta hleypir
illu blóöi í fólk og
bætir ekki
sambúöina. Ljúktu af
aö fara í heimsókn
sem þú hefur dregiö
lengi.
Nautið 21. april - 21. mai
Þú ert mikið fyrir aö
ræöa málin fram og
til baka og skoöa þau
frá öllum hliöum.
Líklegast þarft þú aö
taka á vandamáli þar
sem enginn tími gefst
til slíkra vanga-
veltna. Arangurinn
veröur mjög góöur.
Tviburarnir 22. mai-21. júni
Þú þarft alltaf aö
gæta aö því hvaö þú
segir og viö hvern.
Þaö er mjög auðvelt
aö rangtúlka orö og
einhver hefur mikinn
áhuga á að spilla
milli þín og annars
manns.
Krabbinn 22. júni - 23. júli
Þú hefur haft óhemju
mikiö aö gera aö
undanförnu og nú
finnst þér erfitt aö ná
þér niður. Þú þarfn-
ast þess aö hvíla þig
rækilega og þú
verður aö gera þér
grein fyrir aö allt
annað getur beöiö.
Ijónið 24. júli - 24. ágúst
Þaö er mjög góður
tími framundan hjá
þér. Þér hefur tekist
aö ljúka viö ákveöið
verkefni á réttum
tíma og þú átt von á
því aö fá hrós fyrir.
Einhver vill hitta þig
og þú ættir aö gefa
þér tíma til þess.
Meyjan 24. ágúst - 23. sept.
Engir stórviöburðir
framundan en ekki er
þar með sagt aö þú
eigir ekki aö nýta
tímann vel. Þér
veröur boöiö í mjög
skemmtilegt sam-
kvæmi og þú hittir
þar fólk sem þú hefur
ekki séö lengi.
Vogin 24. sept. - 23. okt.
Líklegast kemur í
ljós aö þú getur ekki
framkvæmt ákveöinn
hlut sem þig var búíö
aö dreyma um. Vertu
alveg rólegur því í
staðinn munt þú
líklegast fara í feröa-
lag sem veröur mjög
vel heppnaö.
Steingeitin 22. des. - 20. jan.
Þú ert undir
þrýstingi frá
ákveönum aöila og
þú átt mjög erfitt
meö aö gera upp hug
þinn. Þaö er alltaf
best aö reyna aö fara
einhverja millileiö,
þannig geta báðir
aöilar oröiö ánægöir.
Sporódrekinn 24. okt. - 23. nóv.
Þú sýnir félags-
málum og samkvæm-
um mikinn áhuga á
næstunni og þú
skemmtir þér ótrú-
lega vel þessa dag-
ana. Þú hefur
einhverjar fjárhags-
áhyggjur en öll
vandamál munu leys-
ast af sjálfu sér.
Vatnsberinn 21. jan. - 19. febr.
Allt mun ganga þér í
haginn næstu daga.
Þetta er rétti tíminn
til aö taka stórar
ákvarðanir og þú
skalt ekki vera
hræddur viö aö tefla
á tvær hættur. Ahætt-
an mun borga sig.
Bogmaðurinn 24. nóv. 21. des.
Þaö lítur út fyrir aö
allir vinir og ættingj-
ar þínir ætlist til aó
þú gerir eitthvað
fyrir þá á sama
tíma! Dragöu djúpt
andann og geröu
nákvæmlega þaö sem
þér sjálfum finnst
rétt, þaö er best.
Fiskarnir 20. tebr. — 20. mars
Þú átt von á skila-
boðum sem gætu haft
miklar breytingar í
för meö sér fyrir þig.
Bittu samt ekki alltof
miklar vonir viö þær,
ef til vill veröa þetta
ekki eins miklar
breytingar og þú
vonar.
lS.tbl. ViKan 41