Vikan - 12.04.1984, Síða 56
6 stúlkur komust í úrslit í Ford-keppninni 1984
í þessari Viku kynnum vid þrjár stúlkur af þeim sex sem Eileen Ford
valdi til að keppa til úrslita í fyrirsœtukeppninni FACE OF THE 80’S.
Sigurvegarinn tekur síðan þátt í aðalkeppninni í Bandaríkjunum fyrir
hönd Íslands, en þar eru glœsileg verðlaun í boði, 7,5 milljónir íslenskra
króna, aukþess sem sigurvegarinn fœr samning hjá Ford Models.
í nœstu VIKU kynnum við hinar þrjár stúlkurnar sem komust í úrslit í
þessari keppni, sem álitin er eitt frábœrasta tœkifœri sem íslenskum
stúlkum er áhuga hafa á fyrirsœtustörfum stendur til boða.
Tvö og hálft ár á Costa Rica:
Hugsa stundum: Var ég í rauninni þarna?
Hólmfríður Garðarsdóttir er frá Eskifirði en starfar nú hjá Hafskip í
Reykjavík. Hún er nýlega komin frá Costa Rica eftir tveggja og hálfs árs dvöl
þar í landi, fyrst sem skiptinemi, síðan við ýmis störfog undir lok dvalarinn-
ar var hún sveitakona og eldaði á hlóðum, bjó í litlu þorpi. . . og skilur
stundum ekkert í því hvers vegna hún var að koma aftur til íslands. Meira í
nœstu Viku!
í léttri peysu í vorsólinni
Nú er kominn tími til að prjóna eina létta, þœgilega peysu sem gott er að
vera í þegar sólin loksins aumkar sig yfir okkur eftir langan vetur. Upp-
skriftina er auðvitað að finna í nœstu VIKU.
Hvað vill rokk upp á dekk?
Aldrei fœr maður nóg afþessu rokki — og nú er það uppi á dekki í Broadway
(frb. broddveij; merkir breiðgata). Við kíktum á byrjunina á Rock-Rock-
Rock hátíðinni, sáum Tarzan sveifla sér í Ijóskösturunum og margt fleira
stórskemmtilegt. Myndir og frásögn í nœstu Viku.
Fögur eru hænueggin
Margar venjur hafa myndast í kringum páskana, jafnt hér á landi sem er-
lendis. Súkkulaðipáskaeggin þekkja allir og gjarnan er skreytt með gulum
páskaungum og páskagreinum.
Nú fœrist í vöxt að hœnuegg séu notuð til skreytinga á páskum. í nœstu
VIKU birtum við ótal hugmyndir um hvernig skreyta má hœnuegg, einfaldar
hugmyndir fyrir ákafar, ungar hendur og flóknari fyrirþá sem við þœr ráða.
VIKU
\