Vikan - 29.05.1986, Síða 3
- Vikulega með Arnarflugi
A sumrin flyst lífið í Hamborg
út á götur, torg og garða.
Borgin græna býður upp á
svo ótrúlegt úrval alþjóðlegra
skemmtana og listviðburða að
það hálfa væri nóg. Mest fer
þetta fram undir berum himni,
hvort sem um er að ræða
rokk-konserta, sinfóníuhljóm-
leika, ballett eða tívolí. Og
það segir sitt um sumarveðr-
áttuna. Hamborg ómar af
hlátri, söng og dansi. Dag
eftir dag, nótt eftir nótt.
Hér á eftir fer lítið brot af
því sem boðið er upp á í
sumar.
Cats
Fyrsta uppsetningin á hin-
um fræga söngleik Cats, í
Þýskalandi, fer á fjalirnar 18.
aprfl í Óperettuhúsinu í
Hamborg.
Afmæli hafnarínnar
Höfnin í Hamborg verður
797 ára á þessu ári. Afmæli
hennar er árlegur stórviðburð-
ur í borginni. Þá er skotið upp
flugeldum og ýmsar skemmt-
anir haldnar. (7.-11. maí.) •
Útitónleikar
fgölmargar hljómsveitir
koma fram á röð tónleika sem
haldnir verða í útileikhúsi, í
skemmtigarði skammt frá
Saarlandsstrasse. (9. maí-29.
júni' og 9. ágúst - 12. sept-
ember.)
Flughátíð
Fuhlsbuttel, alþjóðaflug-
völlurinn í Hamborg, verður
75 ára þann 8. júní. Flug-
áhugamenn munu finna þar
ýmislegt við sitt hæfi í fjöl-
breyttri dagskrá og sýningum.
Kvikmyndir
Kvikmyndaunnendur og
framleiðendur hittast í Ham-
burg Filmhaus til að taka þátt
í evrópskri kvikmyndahátíð
þeirra sem framleiða ódýrar
kvikmyndir. (12.-15. júní.)
Beethoven
Níunda sinfónia Beethov-
ens verður flutt á útihljómleik-
um á ráðhústorginu 21. júní.
Aðgangur ókeypis.
Rithöfundar
Þing alþjóðasamtaka rit-
höfunda (PEN) verður í
Hamborg 22.-27. júní. Efni
þingsins verður hvernig sam-
tímasagan endurspeglast í al-
þjóða bókmenntum. Frægir
höfundar víðs vegar að úr
heiminum lesa upp og taka
þátt í umræðum.
Sinfónían
Dagana 10.-17. og 31. júlí
og 8. ágúst verður haldin röð
sinfóníuhljómleika undir ber-
um himni, á ráðhústorginu.
Sumarleikhús
Alþjóðleg háti'ð leikhópa í
Kampnagelfabrik. Leikhóparn-
ir koma frá Japan, Bandaríkj-
unum og Evrópu og þeir flytja
ein áttatíu verk. (11. júlí til 8.
ágúst.)
Myndlistarkonur
í Hamburg Kunsthalle verð-
ur fjallað um hlut kvenna í
myndlist, allt frá dögum
frönsku byltingarinnar. (11.
júlí til 14. sept.)
Verslunarhátíð
Það eru níu yfirbyggðar
verslunargötur í Hamborg.
Þær halda si'na sérstöku hátíð
í sumar og kalla til alls konar
listafólk og matreiðslumeist-
ara. (9.-10. ágúst.)
Ballett
Hamborgarballettinn held-
ur sex útisýningar á ráðhús-
torginu, dagana 15. til 21.
ágúst.
Allt á floti
Fjögurra daga útihátíð
verður við innra Alstervatn
dagana 28.-31. ágúst. Það
verður mikið um dýrðir; alls
konar yatnasport, tívolí og
leikir. Útihátíð fyrir alla fjöl-
skylduna i' fögru umhverfi.
Kvennahátíð
Listakonur frá fimm heims-
álfum sýna margvísleg lista-
verk. (23. ágúst til 15. sept-
ember.)
Rússasilfur
Þessi Qársjóður fer ekki oft
að heiman. En 11. september
til 15. nóvember verður hægt
að dást að silfurmunum frá
rússneska keisaratímanum í
Museum fúr Kunst und
Gewerbe.
^fARNARFLUG
Lágmúla 7, sími 84477