Vikan - 29.05.1986, Side 19
við
því
alla
að breyta
var alveg eins og hún hefði séð hádegismatinn
sem ég hafði útbúið, enda fór hann allur beint
í ruslið.“
Ragnheiður hitti síðan konuna sem sagði að
fólk gæti í raun stjórnað því mikið sjálft hvern-
ig því liði líkamlega og hjálpað sér sjálft við
að losna við margs konar sársauka og verki,
til dæmis migreni, með því að breyta matarvenj-
um sínum. Ekki er hægt að gefa hverjum og
einum tæmandi lista yfir þann mat, sem ekki á
að borða, heldur fær hver og einn leiðbeiningar
um það sem honum hæfír. Síðan verða menn
að læra að þekkja á eigin líkama og finna þann-
ig hvenær þeir hafa neytt einhvers sem ekki
hæfir þeim og forðast það þaðan í frá. I tilfelli
Ragnheiðar sagði konan að hún hefði aldrei
hjálpað henni eins veik og hún var orðin þegar
hún fór á spítalann og sú meðferð, sem þar var
veitt, hefði verið algjörlega nauðsynleg. Aftur
á móti taldi konan að hún gæti hjálpað henni
vegna giktarverkjanna. Ragnheiði var síðan
ráðlagt að borða alls ekki neitt sem innihéldi
rotvarnarefni og hvorki drekka neitt með gervi-
sykri í né neinum litarefhum, því líkaminn
getur ekki unnið úr þessum efnum. Hún á ekki
heldur að borða reyktan eða súran mat og ekki
mjólkurmat en skyr er þó í lagi. Ostur er aftur
á móti slæmur vegna saltpétursins sem í honum
er. Ekki má borða sojaolíu né annað þar sem
slíka olíu er að finna. Aftur á móti má borða
allt nýtt kjöt, fisk og grænmeti en ekkert sem
rúgur er í og ekki það sem bragðbætt er með
kanil því það orsakar verki í hnjánum. Afengi
er algjör bannvara en þess neytti Ragnheiður
heldur ekki.
„Eg fór strax eftir öllu því sem fyrir mig var
lagt og tók þetta meira að segja svo alvarlega
að ég drakk ekkert nema vatn og fann þá hvað
það hafði góð áhrif á líkamann, það var eins
og hann hreinsaðist. Það hafa margir sagt við
mig að þetta væri bara vitleysa og að ég ímynd-
aði mér bara að mér liði betur. En ég veit að
þetta virkar. Núna hef ég fylgt þessum reglum
um matarvenjur í sex mánuði og allir verkir
eru horfnir og ég tek engin giktarlyf lengur.
Mér líður alveg stórvel. Það hefur komið fyrir
að ég hef óafvitandi borðað eitthvað sem er
slæmt fyrir mig og þá byrja verkirnir strax.
Það var til dæmis stuttu eftir að ég byrjaði að
ég vaknaði einn morguninn með óskaplega
verki í hnjánum. Ég hélt að nú væri þetta ajlt
að byrja aftur og að allt hefði mistekist. Ég
hringdi í konuna og hún spurði mig þá hvort
ég hefði ekki borðað eitthvað með rúgi eða
■#'
kanil í. Ég þvertók fyrir það en svo mundi ég
að mér hafði verið boðið upp á eplapæ og lík-
lega hefur það verið kryddað með kanil. Eitt
kvöldið var ég úti að borða og fékk mér hrásal-
at á salatbar og líka kotasælu. Það var svo
ekki fyrr en ég var að ljúka við hana að ég
áttaði mig á því að kotasæla er ostur, enda
fann ég morguninn eftir að tærnar á mér voru
farnar að stífna.
Þó þvi fylgi auðvitað töluvert aðhald og
vinna að þurfa að fylgjast svona vel með því
sem maður lætur ofan í sig þá gleymist það
fljótt vegna ánægjunnar yfir því að vera laus
við alla verki og að vera ekki lengur háð stór-
um skammti af lyfjum - sem sagt að vera
heilbrigð."
22 TBL VIKAN 19