Vikan - 18.09.1986, Side 8
Að lokinni máltið útbýttu Jónas og Gissur sleikjó-
um og skýlum viö mikinn fögnuð viðstaddra.
Systkinin Jóhann, 12 ára, og Halla, 7 ára,
voru harðánægð. Halla sagði að hún ætlaði
héðan í frá aldrei að borða neitt annað en
hamborgara. Jóhann var þessu ekki alveg
sammála, hann sagði að það væri nú ágætt
að fá soðna ýsu svona inn á milli. „Sérstak-
lega ef ég hef veitt hana sjálfur,“ bætti hann
við. Það kom upp úr kafinu að Jóhann er
þrælvanur sjómaður því í sumar hefur hann
róið með pabba sínum.
Okkur gafst góður tími til þess að skoða
eyjuna því ekki var flogið fyrr en klukkan
sex. Grímsey er nyrsta byggða eyja við ís-
land og heimskautsbaugur liggur um hana
þvera. Eyjan er hömrum girt nema að sunn-
an. Þar er fjölskrúðug flóra, fundist hafa 119
blómategundir. 60 fuglategundir hafa fundist
í eyjunni, mest er þar af kríu og mávi.
Ibúar eru um eitt hundrað og tuttugu.
Byggðin er á sunnan- og vestanverðri eyj-
unni. Mikilvægasti atvinnuvegur Grímsey-
vel fyrir sig, Grímseyingar sýndu mikla þol-
inmæði og biðu rólegir eftir sínum skammti.
Borgararnir hafa eflaust bragðast vel því
þeir kláruðust á 45 mínútum. Viðbrögð fólks
voru líka á einn veg. Mönnum fannst þetta
framtak þeirra Jónasar og Gissurar mjög
lofsvert. Það er ekki á hverjum degi sem
öllum eyjarbúum er boðið í mat. Sérstaklega
var yngri kynslóðin ánægð því allir fengu
sleikjó og Tommaskýli.
Jórunn Magnúsdóttir er húsmóðir í eyj-
unni. Hún sagðist vera mjög ánægð með
þessa nýbreytni og fannst borgarinn góður.
Þó gat hún nú ekki hugsað sér að lifa á
svona fæðu en sagði að þetta væri ágætis
tilbreyting og gott að losna við matseldina
svona einu sinni. Jórunn taldi lítinn grund-
völl fyrir því að reka skyndibitastað i
eyjunni en svona heimsóknir væru alltaf
skemmtilegar. Næstur varð á vegi okkar
Sigurður Guðmarsson. Sigurður er bruna-
vörður í Reykjavík en gerir út trillu og á
sumarbústað í Grímsey. Sigurður kvaðst
dveljast þar öll sumur. Hann var mjög á-
nægður með þetta framtak þeirra Jónasar
og Gissurar og hvatti eigendur veitingastaða
til þess að fylgja fordæmi þeirra.
Baugaborgaranna nutu allir ungir sem aldnir
Grimey.
w \ip Ijft
r Mk M
'toivuvim
»IIAMHOIU.AUAlJt<l
inga er fiskveiðar en þar stunda menn einnig
landbúnað og fuglatekju.
Á sumrin sækir fjöldi ferðamanna eyjuna
heim, einkum kringum sumarsólstöður, þá
gengur sól ekki undir í Grimsey.
Þarna eyddum við sem sagt deginum.
Meðal annars skoðuðum við vitann sem er
syðst á eyjunni. í klettunum fyrir neðan vit-
ann er fuglavarp. En ljót var aðkoman;
fuglinn lá þar dauður eins og hráviði um
allt, í hann hafði komist nýrnaveiki.
Að lokinni skoðunarferð þáðum við kaffi
og afbragðsgóðar jógúrtkökur hjá Kristjönu.
Þar sátum við lungann úr deginum enda
hamlaði veður frekari útiveru. Rétt fyrir sex
kvöddum við þetta skemmtilega og gestrisna
fólk. Jónas og Gissur voru svo ánægðir með
viðtökurnar að þeir hugleiða nú aðra ferð
út í Grímsey. Við skulum vona að af því
verði!
Nokkur hluti gestanna stillti sér upp fyrir Ijós-
myndarann.