Vikan

Eksemplar

Vikan - 18.09.1986, Side 11

Vikan - 18.09.1986, Side 11
RÖDD RITSTJORNAR 24 Heimsókn í Karmelítaklaustrið I Hafnarfirði. Ógleymanlegt. 32 - Ég byrjaði að spila á böllum tíu ára gamall, segir Grétar Bergmann í Vikuviðtalinu. Hann hefur ekki allt- af staðið á sama bletti í tilverunni. 38 Það er POPPAÐ í hverri Viku. 47 Andrea Brabin flýgur á vit örlag- anna. 52 Sakamálasagan eftir hana sjálfa, Agöthu Christie. Skuldabréfaránið heitirsagan þessi. 58 Sara Sörensen ræðir við búðarstrák í kvikmyndinni Stella fer í orlof. 60 Ostía Antica var hafnarborg borgar- innar eilífu, Rómar. Gengið um rústirnar og skyndibitastaður skoð- aður. Krafturinn Váin stærsta, sem nútíma- maður býr við, er kjarnorka. Þessi ógnarkraftur, sem hugvit mannsins hefur leitt yfir okkur bæði til góðs og ills, er stað- reynd. Menn berjast við að halda kraftinum í skefjum, leitast við að láta hann leiða mannkyn- ið áleiðis í tilverunni, en ekkert má út af bera svo eyðingin verði ekki algjör. Þjóðir heims víg- búast með kjarnorkuvopnum og þjóðir heims tæknivæðast og byggja kjarnorkuver. Nútímamaðurinn hefur búið við þessa ógn I áratugi en sjald- an hafa þær raddir verið háværari sem benda á ógn- vænlegar afleiðingar kjarnork- unnar. Slysið í Chernobyl hefur opnað augu margra fyrir hætt- unni sem blasir við. Maðurinn lærir að lifa við aðstæðurnar hverju sinni, flestir eru I sínu horni að leitast við að beisla eigin orku. Margir sætta sig við ógnina sem vofir yfir en flestir mótmæla. Engan lætur vissan um þenn- an ógnarkraft ósnortinn: Ekki nunnurnar í Hafnarfirði sem biðja fyrir einstaklingum alla daga. Ekki íbúana í Grímsey sem við heimsækjum og snæðum með hamborgara. Ekki börnin sem hafa gerst hænsnabændur um tíma. Ekki ferðalanginn sem reikar með okkur um rústir Ostía Antica. Engan. FORSÍÐAN Grétar Bergmann er sjóaður í lífsins ólgusjó. Forsíðumyndina af honum tók Arna Kristjáns- dóttirsem hefur verið Ijósmynd- ari Vikunnar um tíma. ÚTGEFANDI: Frjáls fjölmiðlun hf. RITSTJÓRI: Þórunn Gestsdóttir. BLAÐAMENN: Freyr Þormóðsson, Guðrún Alfreðsdóttir, Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Sigrún Á. Markúsdóttir. LJÓSMYNDARAR: Arna Kristjáns- dóttir og Helgi Friðjónsson. ÚTLITSTEIKNARI: Bergur Garð- arsson. RITSTJÓRN ÞVERHOLTI 11, SÍMI (91) 2 70 22. AUGLÝSINGASTJÓRI: Geir R. Andersen. AFGREIÐSLA OG DREIFING: Þverholti 11, sími (91) 2 70 22. PÓSTFANG RITSTJÓRN- AR, AUGLÝSINGA OG DREIF- INGAR: Pósthólf 5380, 125 Reykjavík. Verð í lausasölu: 125 kr. Áskriftarverð: 420 kr. á mánuði, 1260 kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórð- ungslega eða 2520 krónur fyrir 26 blöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar nóv- ember, febrúar, maí og ágúst. Áskrift í Reykjavík og Kópavogi greiðist mánaðarlega.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.