Vikan - 18.09.1986, Page 15
Hattar og hausttiska hjá gestum.
í blíðviðrinu á dögunum buðu þrjár verslanir að Pósthússtræti 13 í
Reykjavík til tískusýningar á stéttinni fyrir utan húsið. Gestir voru
hvattir til að mæta með hatta og er álitamál hverjir voru flottari,
hattar gestanna eða sýningarstúlknanna!
Þær verslanir, sem þarna sýndu haustvörur sínar, voru: Jens Guð-
jónsson gullsmiður, sem sýndi gullfallega skartgripi - þó ekki úr gulli
heldur eir og silfri; Blái fuglinn, sem var með nokkuð nýstárleg en
mjög falleg föt, og Kristine með mjög vandaðan, fínan fatnað.
ATTAR OG
ADSTTÍSKA
.. .og sýningarstúlkum.
4
HERRAR OG
Til að gæta jafnvægis og jafnréttis birtum við hér myndir af hlýleg-
um haust- og vetrarfatnaði tískukónganna Lucien Foncel og Pierre
Balmain. Óneitanlega eru leðui “rakkarnir glæsilegir og eflaust kosta
þeir líka skildinginn. En ullarfrakkinn og jakkinn eru í þessum
gamla, góða, klassíska stíl og eru svipaðar flíkur áreiðanlega fáanleg-
ar víða, fyrir heppilegra verð. Trefillinn er svo punkturinn yfir i-ið!
Ullarfiikur P. Balmain.
33 TBL VIKAN 15